Sport

Milwaukee valdi Bogut

Það kom fáum á óvart að Milwaukee Bucks skyldu velja Andrew Bogut frá Utah Háskólanum fyrstan í nýliðavalinu í NBA í gærkvöldi, en hann er talinn muni láta hart að sér kveða í deildinni strax. Atlanta valdi hinn unga Marvin Williams frá Norður-Karólínu númer tvö. Það var svo Utah Jazz sem fékk þriðja valréttinn eftir skipti við Portland Trailblazers og það notuðu þeir til að velja leikstjórnandann Deron Williams frá Illinois, en liðið var lengi búið að reyna að semja sig í aðstöðu til að krækja hann, enda er enginn heill leikstjórnandi í hóp liðsins fyrir næsta tímabil. New Orleans Hornets völdu leikstjórnandann Chris Paul frá Wake Forest númer fjögur og Charlotte Bobcats tóku Raymond Felton frá Norður-Karólínu númer fimm, en hann er leikstjórnandi og annar tveggja leikmanna frá Karólínuskólanum sem Bobcats kræktu sér í. Það að Bogut skyldi fara fyrst er ekki síður merkilegt fyrir þær sakir að nú lítur út fyrir að nýliði númer eitt í nýliðavali NBA deildarinnar og NFL deildarinnar muni koma frá sama háskólanum, en það er mikill heiður fyrir Utah-háskólann og hefur slíkt ekki gerst áður í Bandaríkjunum svo vitað sé. Hér má sjá yfirlit yfir 10 efstu leikmennina í valinu: NR.LIÐLEIKMAÐUR1Milwaukee BucksAndrew Bogut, Utah2Atlanta HawksMarvin Williams,  North Carolina3Utah JazzDeron Williams,  Illinois4New Orleans HornetsChris Paul, Wake Forest5Charlotte BobcatsRaymond Felton,  North Carolina6Portland Trail BlazersMartell Webster,  Seattle Prep HS7Toronto RaptorsCharlie Villanueva, Connecticut8New York KnicksChanning Frye, Arizona9Golden State WarriorsIke Diogu, Arizona State10LA LakersAndrew Bynum, St. Joseph (NJ) HS



Fleiri fréttir

Sjá meira


×