Sport

Jón Ólafur aftur í Snæfell

Miðherjinn Jón Ólafur Jónsson sem lék með KR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í fyrravetur, hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Snæfell og mun leika með þeim á næstu leiktíð. Ólafur er tveggja metra maður og fékk lítið að spreyta sig með KR-ingum í fyrra, en hann segir ástæðurnar fyrir félagaskiptunum nokkrar. Mestu muni fyrir sig að sjá fram á að fá að spila meira með Snæfelli en hann gerði með KR, enda hefur Vesturbæjarliðið fengið til sín landsliðsmanninn Fannar Ólafsson sem líklega mun leika bróðurpartinn af þeim mínútum sem í boði eru næsta vetur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×