Enn tapa Lakers 23. mars 2005 00:01
Lið Los Angeles Lakers á í miklum erfiðleikum þessa dagana og í nótt hjálpaði liðið Utah Jazz að afstýra fyrstu 10 leikja taphrinu félagsins í yfir 20 ár. Utah hafði tapað 9 leikjum í röð og voru komnir heim til Salt Lake City aftur eftir langa og erfiða útileikjahrinu þar sem liðið tapaði öllum leikjum sínum. Þeir náðu þó að spýta í lófana og ná í sinn fyrsta sigur í rúmar þrjár vikur þegar þeir lögðu vængbrotið lið Lakers, sem lék án Lamar Odom, sem er meiddur. Þrátt fyrir skotsýningu Kobe Bryant, sem skoraði 43 stig í leiknum, náði Utah að vinna 115-107. Bryant skoraði 9 þriggja stiga körfur í leiknum og fór hamförum fyrstu þrjá leikfjórðungana, en kólnaði all hressilega í þeim síðasta þar sem Utah liðið tók öll völd á vellinum og náði í dýrmætan sigur. Tyrkinn Mehmet Okur var atkvæðamestur hjá liði Utah Jazz með 27 stig og 16 fráköst, sem er hans besti leikur síðan hann gekk til liðs við félagið. Phoenix Suns unnu sinn 50. leik í nótt þegar þeir skelltu slöppu liði Atlanta Hawks, sem þó náði að stríða Suns og halda jöfnu lengst af í leiknum, en 40 stig frá Amare Stoudamire var liðinu hreinlega ofviða og enn eitt tapið staðreynd hjá Hawks, sem eru fastir í kjallara NBA deildarinnar og hafa aðeins unnið 11 leiki. Lið Cleveland náði að hrista af sér slenið og vinna fyrsta leik sinn undir stjórn nýja þjálfara síns, Brendan Malone. Það voru sjálfir meistararnir í Detroit sem urðu fyrir barðinu á Cleveland, sem sigraði 91-76. LeBron James var atkvæðamestur í liði Cleveland eins og venjulega og skoraði 29 stig. Denver Nuggets eru á mikilli siglingu þessa dagana og allt annað að sjá til liðsins eftir að George Karl tók við þjálfun liðsins. Nuggets hafa nú unnið 12 af síðustu 13 leikjum sínum og í nótt tóku þeir Washington Wizards í kennslustund og sigruðu 127-98. Liðið gerir nú harða hríð að 6-7 sætinu í vesturdeildinni og verða ekki árennilegir ef þeir halda áfram að leika eins vel og þeir hafa gert undanfarið. Houston Rockets eru líka að gera góða hluti þessa dagana og í nótt náði liðið að stöðva sigurgöngu Miami Heat, en þeir höfðu unnið 12 leiki í röð fyrir leik liðanna í nótt. Houston hafði sigur 84-82 í æsispennandi leik þar sem Tracy McGrady skoraði 26 stig fyrir Rockets og kláraði leikinn í lokinn með góðum leik, þrátt fyrir að hafa hitt afleitlega í leiknum.
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Jóhann Berg skoraði en Al Orubah úr leik Enn eitt flautumark Leverkusen og Dortmund steinlá Júlíus lagði upp og Fredrikstad nálgast Evrópusæti Lewandowski skoraði tvö og klikkaði á víti í stórsigri Barcelona Gabbia hetjan í borgarslagnum Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli „Endum leikinn sem betra liðið“ Sjá meira