Félagsmenn eignast séreignasjóð 7. mars 2005 00:01
Á aðalfundi Verzlunarmannafélgs Reykjavíkur mun stjórn félagsins leggja til að hver félagsmaður eignist séreignarsjóð hjá félaginu. "Með þessu erum við í raun og veru að setja allar hliðarþjónustur félagsins í einn sjóð. Sjötíu prósent iðgjalda rennur áfram til samtryggingar félagsins og fer í sjúkra- og slysadagpeninga, dagpeninga fyrir langveik börn, dánarbætur, lögfræðiaðstoð og svo framvegis," segir Gunnar Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélagsins. "Þetta er útvíkkun á styrkjafyrirkomulagi okkar. Hver og einn félagsmaður ræður í hvað peningarnir úr sjóðnum fara, til dæmis orlof, símenntun, ný gleraugu eða heilsubrest. Við munum hækka verð í orlofshús okkar og fólk getur þá valið hvort það leitar til okkar eða einhverrar ferðaþjónustu. Við setjum aukna fjármuni í þessa varasjóði og fyrir þá sem lítið hafa notað sér styrkjafyrirkomulagið til þessa er þetta mikil breyting þeim í hag," segir Gunnar. Varasjóðafyrirkomulagið verður tekið í gagnið um næstu áramót, verði það samþykkt. Hver félagsmaður fær þá að meðaltali 45 þúsund í sinn varasjóð til að byrja með og síðan vissa upphæð árlega eftir launum viðkomandi en gert er ráð fyrir að 350 til 400 milljónir renni í varasjóði félagsmanna árlega.
Innlent Viðskipti Mest lesið Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira