Frábær febrúar Helenu og Hauka 1. mars 2005 00:01
Kvennalið Hauka hefur slegið í gegn í kvennakörfunni í vetur og þá sérstaklega eftir áramót en liðið hefur nú unnið 8 af 11 leikjum sínum á árinu 2005 og einn af sigrinum kom einmitt í bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík í Höllinni. Tveir af þessum þremur tapleikjum réðust með sigurkörfu mótherjanna á lokasekúndunum og með 22 stiga sigri í Grindavík í síðustu vikuhafa Haukastúlkur unnið sannfærandi útisigra á liðinum tveimur sem eru fyrir ofan þær í stigatöflunni. Haukar eiga enn möguleika á þriðja sætinu þegar tveir leikir eru eftir en komast þó ekki ofar. Helena Sverrisdóttir hefur farið fyrir sínu liði og átti frábæran febrúarmánuð þar sem hún var meðal annars með þrefalda tvennu að meðaltali í fjórum leikjum, þremur deildarleikjum og bikarúrslitaleiknum. Helena náði þrefaldri tvennu í tveimur þessum leikja, var með 22 stig, 13 stoðsendingar og 10 fráköst í 82-75 sigri á ÍS og 22 stig, 20 fráköst og 12 stoðsendingar í sigrinum í Grindavík en auk þessa náði hún þrefaldri tvennu í undanúrslitaleiknum í Keflavík í lok janúar og hefur því þrisvar á tæpum mánuði náð þessum eftirsótta vitnisburði um fjölhæfni í körfuboltanum. Það er ljóst að Ágúst Björgvinsson er að gera frábæra hluti með hið unga lið Hauka, sem spilar hraðan og skemmtilegan bolta sem sérlega gaman er að horfa á. Með sigrinum í Grindavík tryggði liðið sér endanlega sætið í úrslitakeppninni og varð þar með fyrstu nýliðarnir sem komast þangað síðan Breiðablik varð Íslandsmeistari á sínu fyrsta ári fyrir tíu árum síðan. Tölfræði Helenu í febrúar: Leikir: 4 Sigurleikir: 3 Stig í leik: 19,5 Fráköst í leik:14,0 Stoðsendingar í leik: 10,8 Framlag í leik: 31,3 Þrefaldar tvennur: 2 Tvöfaldar tvennur: 4
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Jóhann Berg skoraði en Al Orubah úr leik Enn eitt flautumark Leverkusen og Dortmund steinlá Júlíus lagði upp og Fredrikstad nálgast Evrópusæti Lewandowski skoraði tvö og klikkaði á víti í stórsigri Barcelona Gabbia hetjan í borgarslagnum Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli „Endum leikinn sem betra liðið“ Sjá meira