Stærsta farþegavél sögunnar 17. janúar 2005 00:01
Airbus A380 farþegaflugvélin verður frumsýnd við hátíðlega athöfn í dag í Toulouse í Frakklandi og muna marka tímamót því hún er stærsta farþegaflugvél sögunnar. Vélin er sett Boeing 747 vélinni til höfuðs og tekur þriðjungi fleiri farþega í sæti en keppinauturinn og hefur fimm prósent meira flugþol. Talsmenn Airbus segja að þetta geri þeim kleift að bjóða 20 prósent lægri fargjöld en Boeing. Þeir viðurkenna þó að hönnun og bygging vélarinnar hafi verið þrautaganga, kostnaður hafi farið fram úr áætlun og vélin sé þyngri en til stóð. Það hefur kostað Airbus um 120 milljarða króna að framleiða vélina sem vegur tæp 280 tonn. Að sögn talsmanna Airbus hefur sala á vélinni farið fram úr björtustu vonum en þeir gera ráð fyrir að á næstu 20 árum verði eftirspurn eftir 1.250 Airbus vélum um allan heim. Spár benda til að fjöldi flugfarþega muni þrefaldast á sama tímabili. Tilraunaflug á Airbus A380 hefst fyrir 1. apríl en gert er ráð fyrir að áætlunarflug hefjist á næsta ári en Singapore Airlines verður fyrsta fyrirtækið sem tekur vélina í sína þjónustu.
Erlent Fréttir Tækni Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Telur fleiri falla á nýju bílprófi Innlent Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Erlent Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Maður margra storma íhugar stöðu sína Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Fleiri fréttir Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Sjá meira
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent