Viðskipti innlent

Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir

Icelandair Group hf. hefur gengið frá kaupum á 49 prósenta eignarhlut í Fly Play Europe Holdco ehf., af FPE hs., sjóði í rekstri Ísafold Capital Partners hf., en dótturfélag þess, Fly Play Europe Limited á Möltu er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Kaupin eru í samræmi við viljayfirlýsingu sem Icelandair tilkynnti um fyrr á árinu.

Viðskipti innlent

Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur

Skiptum er lokið á tveimur félögum í eigu veitingamannanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar án þess að króna fengist upp í kröfur. Kröfur námu alls um 375 milljónum króna. Félögin ráku staðina TGI Fridays og Adesso í Smáralind og Grillhúsið. Annað félagið var enn skráð á fyrri eiganda þess þegar það varð gjaldþrota, enda höfðu Helgi og Jóhannes ekki greitt fyrir það.

Viðskipti innlent

„Þetta er sagt af mikilli virðingu“

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.

Viðskipti innlent

„Það eru engin fórnar­lömb hér“

Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.

Viðskipti innlent

Bein út­sending: Rök­styðja stýrivaxtahækkun

Þau Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, kynna ákvörðun peningastefnunefndar og nýútgefin Peningamál á blaðamannafundi klukkan 09:30. Fundinn má sjá hér á Vísi.

Viðskipti innlent

Hækka stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Viðskipti innlent

Þessir voru tekju­hæstu læknarnir og tann­læknarnir í fyrra

Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsanna B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna.

Viðskipti innlent

Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir

Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun. Markaðurinn fylgist að venju grannt með en að þessu sinni hafa aðilar vinnumarkaðarins og fylkingarnar í ESB-málinu einnig sérstaka ástæðu til að leggja við hlustir.

Viðskipti innlent

Árni skattakóngur annað árið í röð

Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var launahæstur Íslendinga árið 2025, með rúmar 46 milljónir króna á mánuði. Hann var einnig tekjuhæstur í fyrra en var þá með ívið lægri laun, eða rúmar 40 milljónir á mánuði.

Viðskipti innlent

María Klara til At­hygli

María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjöf. Reynsla hennar af mannauðsmálum, vinnurétti, lögmennsku og stjórnun er sögð styrkja fjölbreytt ráðgjafarteymi Athygli.

Viðskipti innlent

Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts

Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð.

Viðskipti innlent

Þor­valdur ráðinn fram­kvæmda­stjóri

Þorvaldur Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ofar, sem er hluti af Nova klúbbnum. Þorvaldur kemur til Ofar frá Lyfju, þar sem hann hefur verið tækni- og þróunarstjóri frá árinu 2022 og borið meðal annars ábyrgð á upplýsingatækni og þróun stafrænnar þjónustu.

Viðskipti innlent

Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir

Framkvæmdastjóri Krónunnar segir margt við nýja umbúðareglugerð Evrópusambandsins ekki henta íslenskum markaði. Verslunin hafi lengi reynt að nýta svokallaðar áfyllingarlausnir en neytendur ekki tekið vel í þær. Hún vonar að lausn finnist fyrir Íslendinga ef EFTA-ríkin innleiða reglugerðina. 

Viðskipti innlent