Viðskipti

Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni
Eva Ýr Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Sóltúni heilbrigðisþjónustu og Einar Örn Ævarsson sem framkvæmdastjóri Sólstaða ehf.

Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur farið fram á það að hagnaðardrifinn hluti Sorpu verði færður í hlutafélag. Þannig muni ólögmæt ríkisaðstoð í formi undanþágu tekjuskattskyldu falla niður.

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr því að vera 9% og niður í 8,5%.

Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun
Íslandsbanki ætlar að lækka óverðtryggða vexti á útlánum sínum um allt að 0,5 prósentustig í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti sína. Tilkynning Íslandsbanka var send út innan við stundarfjórðungi eftir að ákvörðun Seðlabankans var kynnt.

Stýrivextir halda áfram að lækka
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð en með síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru vextirnir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem stýrivextir lækkuðu.

Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“
„Íslenska töluð með hreim er samt íslenska,“ segir Athena Neve Leex, stjórnarkona í UAK, félagi Ungra athafnakvenna, í samtali um mikilvægi fjölmenningar og inngildingar en í byrjun þessa mánaðar stóð félagið fyrir viðburði þessu máli tengt.

Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri
Útboð Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) á myndgreiningarþjónustu hefur verið stöðvað. Verulegar líkur hafa verið leiddar að brotum gegn lögum um opinber innkaup með útboðinu.

Samtökin '78 selja slotið
Samtökin '78 hafa sett bækistöðvar sínar að Suðurgötu 3 á sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina.

Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör
Algjör skortur á vinsælli grískri sósu á Bretlandseyjum er orðið að umfjöllunarefni stærstu fjölmiðla þar í landi. Skortinn er talinn mega rekja til verkfalls starfsfólks í einni af verksmiðjum Bakkavarar í bænum Spalding.

Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar?
Gluggarnir frá BYKO hafa verið leiðandi á markaði í 33 ár og hefur BYKO komið að mörgum stórum og flóknum verkefnum um allt land. Gluggarnir eru framleiddir til að þola íslenskt veðurfar auk þess að vera á mjög hagstæðu verði. Fyrir vikið standast þeir helstu kröfur HMS og byggingarreglugerðir ásamt kröfum viðskiptavinar um góða þjónustu og trausta vöru. Framleiðsla þeirra hófst hér á landi en hefur frá árinu 2002 að mestu leyti farið fram í gluggaverksmiðju BYKO í Lettlandi.

Allir spá lægri vöxtum
Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi.

Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna
Þeir sem selt hafa hús sín í Grindavík til Þórkötlu geta frá og með deginum í dag gert samning um afnot af húsinu, gegn greiðslu. Um er að ræða svokallaðan hollvinasamning sem byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík og snýr að umhirðu, viðhaldi og eftirliti með húsunum.

Flóðin á Spáni hafa áhrif á jólahefð Íslendinga
Vegna hamfaraflóðanna í Valensía á Spáni í október kemur miklu minna af klementínum til landsins fyrir jólin. Fyrsti klementínugámurinn frá spænska framleiðandanum Robin kemur til landsins á mánudaginn en landsmenn eiga aðeins von á fjórðungi þess magns sem vanalega kemur.

Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum
Úrval á bókum í verslunum Samkaupa (Nettó, Kjörbúðum og völdum Krambúðum utan höfuðborgarsvæðisins) verður meira en nokkru sinni fyrr í aðdraganda jóla.

Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum
Stólpi Gámar hefur ráðið Rúnar Höskuldsson sem nýjan framkvæmdastjóra sölusviðs fyrirtækisins.

Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar
Starfshópur um stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á landi mun halda kynningu á niðurstöðum sínum í dag klukkan 10:40.

Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram?
Samorka stendur fyrir kosningafundi í Kaldalóni í Hörpu í dag undir yfirskriftinni Grænt Ísland til framtíðar: Hver er leiðin áfram? Fundurinn hefst klukkan 9 og verður í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Fékk 542 þúsund króna rukkun fyrir hreindýrakjötið
Óheppinn viðskiptavinur Nettós var rukkaður um 542 þúsund krónur fyrir 380 grömm af hreindýrakjöti á sjálfsafgreiðslukassa. Að sögn forsvarsmanna Nettó má rekja þetta til þess að rétt strikamerki hafi dottið af vörunni og erlent strikamerki skannað þess í stað.

Sektuð vegna fullyrðinga um aukinn hárvöxt og minni hrukkur
Félagið X20 Lausnir ehf. hefur verið gert að greiða hundrað þúsund króna stjórnvaldssekt vegna fullyrðinga sem birtust á vefsíðunni lifsbylgja.is. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að umræddar fullyrðingar teldust undir öllum kringumstæðum óréttmætar, en þær vörðuðu vörur undir merkinu Lifewave.

EasyJet lengir flugtímabil frá London til Akureyrar
Breska flugfélagið easyJet tilkynnti í dag að það muni bæta við flugferðum frá London Gatwick til Akureyrar í apríl 2025, og í október 2025. Áður stóð til að fljúga út mars á næsta ári, og hefja flugin að nýju í nóvember. Flugfélagið verður því mánuði lengur með flug í boði þennan vetur og að auki næsta haust.

Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant
Fimmtíu manns hefur verið sagt upp hjá Controlant og hefur Trausti Þórmundsson verið ráðinn forstjóri félagsins. Félagið verður því með tvo forstjóri en Trausti mun stýra félaginu ásamt Gísla Herjólfssyni, forstjóra og meðstofnanda.

Uppsagnir hjá Controlant
Tugum starfsmanna hefur verið sagt upp hjá Controlant í morgun.

Guðmundi falið að bera ábyrgð á hugverkum Carbfix
Guðmundur Reynaldsson verið ráðinn til Carbfix þar sem hann mun bera ábyrgð á hugverkum fyrirtækisins.

Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“
„Það gerast alls konar hlutir sem eru mannlegir og sjálfvirknivæðingin ræður ekkert við,“ segir Þórhildur Edda Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sweeply.

Vonar að íslenskir verktakar hafi enn áhuga á Grænlandi
Íslenskur stjórnandi verklegra orkuframkvæmda á Grænlandi vonast til að Íslendingar hafi áhuga á taka þátt í þeim miklu virkjunarframkvæmdum sem framundan eru í landinu. Íslensk verktakafyrirtæki hafa til þessa reist fjórar af fimm vatnsaflsvirkjunum Grænlendinga.

„Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segist eins og versti unglingur á morgnana enda snúsi hún klukkuna þar til allir aðrir á heimilinu eru komnir fram úr.

Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:

Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot
Brimborg kynnir glænýjan Peugeot E-5008 sjö sæta rafbíl með framúrskarandi drægni, miklum hleðsluhraða, nýrri kynslóð af Panoramic i-Cockpit innra rými, ríkulegum búnaði og víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum ásamt 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar
Miðeind, fyrirtæki sem starfar á sviði máltækni og gervigreindar fyrir íslensku, kynnti í dag nýja rafræna samheitaorðabók sem er öllum opin og aðgengileg á vefnum Samheiti.is.

Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum
Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta skerðingum á raforku til stórnotenda á norður- og austurhluta landsins til áramóta hið minnsta. Ástæðan er sögð batnandi staða miðlunarlóna eftir hlýindin og úrkomuna undanfarið, sem leitt hafi til þess að niðurdráttur hafi stöðvast tímabundið í öllum lónum.