Viðskipti
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 334 ›
Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Í gær var vakin athygli á því á Facebook-síðunni „vertu á verði - eftirlit með verðlagi,“ að 400 grömm af klassískum smjörva kostaði 1.245 krónur á N1 á Egilsstöðum. Spurt var hvort þetta væri ekki fullmikið verð, og undirtektir voru miklar. Neytendur 13.7.2024 10:24
Brutu sennilega samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur gert Símanum hf. og Noona labs að stöðva markaðssetningu sem felur í sér framkvæmd á samruna fyrirtækjanna. Í þessu máli var afstaða tekin til erindis Dineout ehf., um að SKE taki ákvörðun til bráðabirgða vegna sennilegs brots þeirra gegn banni samkeppnislaga við því að framkvæma samruna áður en SKE hefur fjallað um hann. Markaðssetning hafi verið viðhöfð, sem brjóti gegn þessu banni. Viðskipti innlent 12.7.2024 22:22
Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Harpa ætlar að bjóða höfuðborgarbúum sem komast ekki austur á firði upp á tónleikamiða á helmingsverði og ókeypis mímósur vegna leiðindaveðursins sem herjar á borgina um helgina. Hildur Ottesen Hauksdóttir kynningarstjóri Hörpunnar segist finna fyrir bugun höfuðborgarbúa og hvetur önnur fyrirtæki til að létta lund þeirra. Viðskipti innlent 12.7.2024 15:25
Ný og nútímaleg sveit í borg Ný byggð rís nú á Álftanesi við Lambamýri 1 – 6. Sérstök áhersla er lögð á samspil við umhverfið og náttúruna við hönnun húsanna enda fer sveit og borg saman á Álftanesinu á einstakan máta. Íbúðirnar eru sérstaklega bjartar og útsýni til allra átta. Samstarf 12.7.2024 08:41
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. Viðskipti innlent 11.7.2024 21:42
Berglind gengin í eigendahópinn Nýverið bættist Berglind Hákonardóttir í eigendahóp PwC. Berglind hefur starfað hjá PwC um sextán ára skeið og nú eru samtals fimmtán eigendur hjá PwC. Viðskipti innlent 11.7.2024 16:09
Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Fyrirtækið Lagsmaður, sem heldur úti vefheildsölunni fiska.is, hefur innkallað Kite-hveiti. Ástæðan er sú að hveiti inniheldur ólöglega aukaefnið benzólý peroxíð. Neytendur 11.7.2024 16:03
Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Greinandi segir horfur hjá Icelandair ekki endilega jafnslæmar og umræðan virðist benda til. Félagið hafi flutt fleiri farþega á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Framtíðarhorfur ráðist einfaldlega af fjölda ferðamanna hingað til lands. Viðskipti innlent 11.7.2024 14:56
Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Malbikstöðin hefur ráðið Bjartmar Stein Guðjónsson sem aðstoðarframkvæmdastjóra fyrirtækisins. Bjartmar er lögfræðingur að mennt og kemur yfir til Malbikstöðvarinnar frá Samtökum iðnaðarins, þar sem hann starfaði sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði. Viðskipti innlent 11.7.2024 13:35
Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný Verslun Krónunnar að Þjóðhildarstíg í Grafarholti hefur verið opnuð á ný eftir að hafa verið lokað í lok maí. Síðan þá hafa íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals þurft að leita út fyrir hverfið að matvöru. Viðskipti innlent 11.7.2024 11:47
Engin málamiðlun þegar kemur að krafti Polestar 4 James Einar Becker prófaði Polestar 4 í Madríd en hann stýrir bílaþáttunum Tork gaur Samstarf 11.7.2024 08:45
„Við erum bara að reyna að lifa af“ Eigandi fyrirtækis, sem sérhæfir sig í brúðkaupsskipulagningu fyrir ferðamenn, segir bókanir hafa dregist saman um tuttugu prósent á þessu ári. Vont veður og fréttir af eldgosi hjálpa ekki til í rekstrinum sem er strembinn fyrir. Viðskipti innlent 11.7.2024 07:01
Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó „Heimurinn aðlagaðist tækninni fyrir rúmum tuttugu árum síðan. En nú er kominn tími til að tæknin aðlagi sig að heiminum,“ segir Hlynur Snær Andrason frumkvöðull og annar tveggja stofnanda sprotafyrirtækisins Scandinavian Algorithms Inc. í Bandaríkjunum eða Scandal í styttri útgáfu. Atvinnulíf 11.7.2024 07:01
„Komin upp í þak“ í verðlagningu Markaðssetja þarf Ísland með öflugari hætti en síðustu ár, að sögn leiðtoga ferðaþjónustufyrirtækja, sem segir Ísland hafa náð ákveðnum toppi í verðlagningu. Dregið hefur úr fjölda ferðamanna hingað til lands miðað við síðasta ár. Viðskipti innlent 10.7.2024 22:15
Nýir eigendur taka við Melabúðinni Melabúðin við Hagamel í vesturbæ Reykjavíkur hefur fengið nýja eigendur. Melabúðin hefur stærstan hluta sögu sinnar verið í eigu sömu fjölskyldunnar, en verslunin var opnuð árið 1956. Bræðurnir Pétur og Snorri Guðmundssynir hverfa nú úr eigendahópnum og afhenda keflið hópi fólks sem ætlar sér að viðhalda starfsemi verslunarinnar óbreyttri. Viðskipti innlent 10.7.2024 16:34
Festi festi kaup á Lyfju Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, segir þetta mikilvæg tímamót í vegferð Festis. Kaupverð nam 7.116 milljónum króna. Viðskipti innlent 10.7.2024 16:06
Spá aukinni verðbólgu Hægfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga muni verða 5,9 prósent í júlí. Viðskipti innlent 10.7.2024 14:54
Hliðarbil ökutækja frá hjólreiðafólki 1.5 metrar Hjólreiðar njóta vaxandi vinsælda hér á landi og sífellt fleiri nota reiðhjól og rafhjól sem samgöngutæki. Þá hefur þeim einnig fjölgað sem æfa hjólreiðar reglulega og þeim sem hjóla sér til heilsubótar. Samstarf 10.7.2024 13:44
HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna HS Orka hefur lokið við að endurfjármagna skuldir félagsins og tryggja lánalínur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi. Lánsfjárhæðin nemur að jafnvirði um 290 milljónum dollara eða um fjörutíu milljörðum íslenskra króna og er veitt af íslenskum og alþjóðlegum bönkum og sjóðum. Viðskipti innlent 9.7.2024 15:20
Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8.7.2024 20:22
Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Icelandair flutti 514 þúsund farþega í júní, 1 prósent færri en í júní í fyrra. Þar af voru 31 prósent á leið til Íslands, 15 prósent frá Íslandi, 49 prósent voru tengifarþegar og 4 prósent ferðuðust innanlands. Eftirtektarverð breyting hefur orðið í skiptingu á milli markaða en tengifarþegum fjölgaði um 15 prósent í júní á meðan farþegum til landsins hefur fækkað á milli ára. Viðskipti innlent 8.7.2024 17:47
Fleiri farþegar en minni sætanýting Íslenska flugfélagið Play flutti 173.109 farþega í júní 2024, sem er 7,5 prósent meira en í júní í fyrra þegar félagið flutti 160.979 farþega. Sætanýting dróst þó örlítið saman, hún var 86 prósent í júní 2024, en 87,2 prósent á sama tíma í fyrra. Forstjórinn kveðst ánægður að sjá vöxt í farþegatölunum, en hefði viljað sjá hærri sætanýtingu. Viðskipti innlent 8.7.2024 17:24
Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Helgi Jóhannesson, skiptastjóri þrotabúsins Skagans 3X, segir að mikill áhugi sé á fyrirtækinu. Margir hafi sett sig í samband við hann og viðrað verðhugmyndir og önnur tilboð. Tilboð hafa borist í hluta eignanna, en ekki hefur borist heildartilboð í allar eignirnar og reksturinn. Viðskipti innlent 8.7.2024 14:21
Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, á um það bil 0,8 prósenta hlut í Búsæld ehf., sem á rúmlega 43 prósent hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf.. Hluthafar Kjarnafæði Norðlenska hafa samþykkt kaup Kaupfélags Skagfirðinga á allt að hundrað prósent hlutafjár í félaginu. Nýsamþykkt lög, sem fóru í gegnum atvinnuveganefnd, gera kaupin möguleg. Viðskipti innlent 8.7.2024 11:00
18 holu vatna- og skógavöllur með töfrandi fjallasýn Í sumar ætlum við að kynna okkur nokkra af þeim golfvöllum sem spennandi væri að prófa í sumarfríinu en yfir sextíu golfvelli er að finna víða um land. Golfvöllur vikunnar er Hamarsvöllur. Samstarf 8.7.2024 09:36
Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Stjórnendur Boeing hafa samþykkt að játa sök og greiða 243 milljónir dala, jafnvirði tæpra 34 milljarða króna, í sekt vegna brota fyrirtækisins á samkomulagi við yfirvöld. Viðskipti erlent 8.7.2024 09:25
Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. Viðskipti innlent 8.7.2024 08:29
KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Kaupfélag Skagfirðinga hefur fest kaup á hlut Kjarnafæðisbræðra, þeirra Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, og Búsældar ehf. í Kjarnafæði Norðlenska. Viðskipti innlent 7.7.2024 23:46
Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Kerecis hlaut nýverið 24 milljóna styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs í alþjóðlegt samstarfsverkefni sem snýr að því að bæta meðferð brunasára í Afganistan. Kerecis framleiðir roð til sáragræðinga en brunasár eru afar algeng í þeim heimshluta. Forstjóri segir mikilvægt að varan sé ekki einungis aðgengileg í vestrænum heimi. Viðskipti innlent 7.7.2024 22:01
„Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ „Það má segja að bankahrunið hafi gefið mér þá hugmynd. Ég lá yfir öllum fréttasíðum og las allt sem ég gat um hrunið. Hagfræðin gaf mér tækifæri til að skilja betur hvernig fjármálakerfið gat umturnað heilu þjóðfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, þegar hann útskýrir hvers vegna hann fór í meistaranám í fjármálahagfræði í Oxford í Bretlandi. Atvinnulíf 7.7.2024 09:00