Viðskipti erlent
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Bandaríkin sigla út úr kreppunni, hagvöxtur á ný Landsframleiðslan í Bandaríkjunum jókst um 3,5% á ársgrundvelli á þriðja ársfjórðungi samkvæmt áætlun þarlenda viðskiptaráðuneytisins. Um er að ræða breytingu frá öðrum til þriðja fjórðungs en sambærileg tala fyrir annan ársfjórðung var samdráttur um 0,7%. Viðskipti erlent 30.10.2009 07:55
Minnkandi eftirspurn eftir olíuborpöllum í Noregi Minnkandi eftirspurn er nú eftir olíuborpöllum og skipum í Noregi og heldur sú þróun áfram það sem eftir er ársins að mati hagstofu Noregs. Samhliða þessu hafa norskar skipasmíðastöðvar neyðst til að lækka verð sín á olíuborpöllum og skipum. Viðskipti erlent 29.10.2009 15:17
Auðmaðurinn Karsten Ree til bjargar Amagerbanken Danskir vefmiðlar flytja fréttir í dag um að auðmaðurinn Karsten Ree ætli að koma Amagerbanken til bjargar með hálfan milljarð danskra kr. í nýju fjárframlagi til bankans. Viðskipti erlent 29.10.2009 10:34
Atvinnuleysi eykst hraðar í Danmörku en spáð var Atvinnuleysi í Danmörku jókst úr 3,7% og í 4,1% milli ágúst og september. Er þetta meiri aukning á atvinnuleysi en spáð hafði verið. Flestir reiknuðu með að það myndi aukast í 3,9%. Viðskipti erlent 29.10.2009 09:02
Tískuhúsið Versace í verulegum fjárhagsvandræðum Hið þekkta tískuhús Versace á nú í verulegum fjárhagsvandræðum og neyðist nú til þess að segja upp fjórðungi af starfsfólki sínu á heimsvísu. Tískuhúsið hefur greint frá því að alls hafa 350 af 1.360 starfsmenn fengið uppsagnarbréf. Viðskipti erlent 28.10.2009 15:04
Norski seðlabankinn sá fyrsti sem hækkar stýrivexti Norski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína í dag og varð þar með fyrsti seðlabankinn í Evrópu til að gera slíkt frá því að fjármálakreppan skall á í fyrra. Hækkunin nam 0,25 prósentustigum og fóru vextirnir við það í 1,5%. Viðskipti erlent 28.10.2009 14:06
Rússneskur auðmaður í tugmilljarða skilnaði Rússneski auðmaðurinn Boris Berezovsky stendur nú í skilnaðarmáli við eiginkonu sína Galinu þótt að þau hafi ekki búið saman í 10 ár. Galina gæti fengið allt að 100 milljónir punda, eða ríflega 20 milljarða kr., út úr skilnaðinum við Berezovsky. Viðskipti erlent 28.10.2009 11:32
Ráðgjöf um íslensku bankana gagnrýnd á breska þinginu Breskir þingmenn hafa gagnrýnt hve eftirlitsstofnanir með fjármálafyrirtækjum í Bretlandi hafa verið tregar til að rannsaka þá ráðgjöf sem bresk bæjar-og sveitarfélög fengu í tengslum við fjárfestingar sínar hjá íslensku bönkunum áður en þeir komust í þrot í fyrra. Viðskipti erlent 28.10.2009 09:33
Sarkozy mokar 120 milljörðum í franska bændur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tilkynnti í dag efnahagsaðstoð upp á 650 milljónir evra eða um 120 milljarða kr. til handa frönskum bændum. Fyrir utan þessa aðstoð standa bændunum til boða ódýr lán upp á um 185 milljarða kr. í viðbót. Viðskipti erlent 27.10.2009 14:20
Sports Direct ætlar í mál við Kaupþing í Bretlandi Íþróttavörukeðjan Sports Direct ætlar í mál við stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Málið er höfðað vegna yfirtöku á eignarhlutum Sports Direct í verslunarkeðjunum Blacks Leisure og JD Sports Fashion. Viðskipti erlent 27.10.2009 12:19
Kaupþing yfirtekur stærstu hlutabréfaeign Sports Direct Reiknað er með að Sports Direct tapi stærstu hlutabréfaeign sinni í framhaldi af því að stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi yfirtaki hana í dag. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Retailweek. Viðskipti erlent 27.10.2009 10:15
Vaxtakostnaður almennings í Danmörku lækkar töluvert Vaxtakostnaður almennings í Danmörku hefur lækkað töluvert frá því í fyrra. Vextir sem Danir greiða lánastofnunum sínum hafa þannig minnkað um 2,1 milljarð danskra kr., eða um 50 milljarða kr., milli mánaðanna nóvember í fyrra og september í ár. Viðskipti erlent 27.10.2009 09:34
Álverðið fór yfir 2.000 dollara í London í morgun Heimsmarkaðsverð á áli fór yfir 2.000 dollara á markaðinum í London í morgun og stendur nú í 2.010 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga. Hefur verðið ekki verið hærra í ár síðan í sumar þegar það fór yfir 2.000 dollara í skamman tíma. Viðskipti erlent 27.10.2009 08:01
Apple gæti átt von á tugmilljarða reikningi frá Nokia Það gæti kostað Apple gífurlegar upphæðir ef Nokia vinnur dómsmál sem farsímarisinn hefur höfað á hendur Apple fyrir ólögleg not af tækni Nokia sem enn er varin með einkaréttarákvæðum. Málshöfðunin beinist að notkun Apple á þessari tækni í iPhone símum sínum. Viðskipti erlent 26.10.2009 11:31
Hinir ríkustu gætu þróast yfir í aðra manntegund Ríkustu íbúar jarðarinnar gætu þróast yfir í aðra manntegund í framtíðinni vegna framfara í líftækni og hönnun vélmenna. Þetta segir bandaríski framtíðarfræðingurinn Paul Soffo. Viðskipti erlent 26.10.2009 10:44
Vogunarsjóður á Guernsey tapar á Glitni Vogunarsjóðurinn Close Enhanced Commodities Fund, sem staðsettur í á Guernsey gæti tapað allt að 17,5 milljónum punda eða um 3,5 milljörðum kr. á lánatryggingum sem veittar voru Glitni fyrir bankahrunið s.l. haust. Viðskipti erlent 26.10.2009 09:58
Finnar búa við mesta velmegun heimsbúa Finnland er það land í heiminum þar sem íbúarnir búa við mesta velmegun. Ekki bara í efnahagslegum skilningi heldur einnig hvað varðar lýðræði og stjórnkerfi. Þetta kemur fram í nýjum lista frá Legatum Prosperity Index sem birtur verður í þessari viku. Viðskipti erlent 26.10.2009 09:26
Lánshæfismat Rússlands orðið svipað og Íslands Lánshæfismat Rússlands er nú á svipuðum slóðum og Íslands, það er skammt frá svokölluðum „rusl-flokki." Þetta kemur hinsvegar ekki í veg fyrir gríðarlegan áhuga á ríkisskuldabréfaútboði upp á 18 milljarða dollara sem rússnesk stjórnvöld áforma á næsta ári. Viðskipti erlent 26.10.2009 08:43
Rannsaka ásakanir um peningaþvætti Þeir sem rannsaka bankahrunið skoða nú á nýjan leik hvort ásakanir um að íslensku bankarnir hafi tengst peningaþvætti eigi við rök að styðjast. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Times. Viðskipti erlent 25.10.2009 09:54
Samdráttarskeiðinu lokið í Rússlandi Samdráttarskeiðið í Rússlandi er á enda og gera má ráð fyrir um 2% hagvexti á fjórða ársfjórðungi í ár vegna hækkunar á olíuverði. Þetta var haft eftir Alexei Kudrin, fjármálaráðherra Rússa, í dag. Viðskipti erlent 24.10.2009 18:11
Nektardansmeyjar eiga að næla í kúnna til verslunarhúss Franska verslunarhúsið Printemps í París hefur gripið til þess ráðs að ráða fimm nektardansmeyjar frá hinum þekkta kabarett The Crazy Horse í borginni til að troða upp í verslunargluggum sínum. Ætlunin er að lokka fleiri kúnna inn í Printemps sem orðið hefur illa úti í kreppunni eins og svo margar aðrar verslanir. Viðskipti erlent 23.10.2009 13:42
Statoil ógnað með refsiaðgerðum frá Barack Obama Bandarískir þingmenn hafa krafist þess að Barack Obama bandaríkjaforseti beiti refsiaðgerðum gegn norska olíufélaginu StatoilHydro. Ástæðan er mikil umsvif Statoil í Íran og er félagið ekki það eina sem þingmennirnir vilja að sé refsað. Viðskipti erlent 23.10.2009 12:01
Carlsberg orðið háðara hráolíuverði en ölsölu sinni Dönsku bruggverksmiðjurnar Carlsberg eru nú orðnar háðari hráolíuverðinu í heiminum en ölsölu sinni. Carlsberg fylgir Rússlandi upp og niður og í gegnum súrt og sætt hvað þetta varðar. Viðskipti erlent 23.10.2009 10:31
Ál, olía og aðrar hrávörur hækka nokkuð Nokkrar hækkanir hafa verið á hrávörumörkuðum heimsins í morgun. Heimsmarkaðsverð á áli er komið í 1.983 dollara á tonnið á markaðinum í London og olían fór yfir 81 dollara á tunnuna á markaðinum í New York. Viðskipti erlent 23.10.2009 09:28
Jóakim Danaprins umfangsmikill í sölu á jólatrjám Jóakim Danaprins verður umfangsmikill í sölu jólatrjáa í ár eins og fyrri ár. Frá herragarði hans, Schackenborg verða seld 16.000 jólatré af tegundinni Normannsþynur. Viðskipti erlent 23.10.2009 09:04
Umfangsmikil olíuleit að hefjast við Grænland Grænland gæti orðið næsta mekka fyrir olíu- og gasiðnaðinn ef áætlanir heimastjórnar landsins ganga eftir. Næst vor hefst umfangsmikil olíuleit við landið og hafa 13 olíufyrirtæki ákveðið að taka þátt í henni. Viðskipti erlent 23.10.2009 08:40
Icesave eigandi sem á 10 milljónir inni gleymir kröfu Eigandi Icesave-reiknings í Bretlandi sem á 50.000 pund eða rúmlega 10 milljónir kr. hefur enn ekki gert kröfu um að fá innistæðu sína borgaða. Geri hann slíkt ekki fyrir mánaðarmótin er krafan töpuð. Viðskipti erlent 23.10.2009 08:25
Samkeppnishæfni Dana á undir högg að sækja Dönsk yfirvöld hafa nú áhyggjur af minnkandi samkeppnishæfni atvinnulífs landsins. Orsakir þessa eru launahækkanir innanlands og sterkt gengi dönsku krónunnar. Árið í fyrra var slæmt en árið í ár verður enn verra að því er segir á börsen.dk. Viðskipti erlent 22.10.2009 14:09
Danskir kaupmenn óttast aðra jólamartröð Danskir kaupmenn óttast nú aðra jólamartröð, það er að jólainnkaupin í Danmörku verði jafn slök og þau voru í fyrra. Viðskipti erlent 22.10.2009 09:10
Notaði Glitnisbónusinn til að fjárfesta í gardínum Sveinung Hartvedt fyrrum forstjóri Glitnir Securites í Noregi er hættur í bankageiranum og hefur notað myndarlegar launa- og bónusgreiðslur sínar frá Glitni í fyrra til þess að fjárfesta í fyritæki sem framleiðir gardínur. Viðskipti erlent 22.10.2009 08:41