Tíska og hönnun

Hápunktar tískuvikunnar í Kaupmannahöfn

Tískuvikunni í Kaupmannahöfn lauk á sunnudaginn. Sýningar hjá frændum okkar Dönum hafa fengið frábær viðbrögð í erlendum fjölmiðlum, en Style.com, einn virtasti tískumiðill heims tók þátt í vikunni í fyrsta sinn í ár. Þar gerðu tískublaðamenn úttekt á sýningunum og settu myndir af þeim stærstu inn á heimasíðu sína.

Tíska og hönnun

Giselle Bundchen er nýtt andlit Chanel

Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er nýtt andlit Chanel snyrtivörulínunnar Les Beiges. Bundchen er 32 ára gömul tveggja barna móðir sem hefur sigrað fyrirsætuheiminn, en hún er hefur verið hæst launaðsta fyrirsæta heims síðustu árin. Hinn heimsfrægi tískuljósmyndari Mario Testino myndaði Giselle fyrir Chanel.

Tíska og hönnun

Skótískan í sumar

Rekstrarverkfræðingurinn Agla Friðjónsdóttir opnaði vefsíðuna Shoe Jungle í september á síðasta ári. Vefurinn hefur að geyma frumskóg af fróðleik um allt sem við kemur skóm og skókaupum, ásamt því sem hún bloggar um daglegt líf og tísku. Agla hefur alltaf verið mikil áhugamanneskja um skó og er hálfgerður skósafnari að eigin sögn, en hún á um 200 para safn.

Tíska og hönnun

Kalli Berndsen opnar í Kringlunni

"Já Beauty barinn er fluttur í Kringluna. Ég gæti ekki verið hamingjusamari með lífið. Þessi staðsetning hentar fulkomlega fyrir minn rekstur. Allt á fullu að staðsetja og við opnum seinni partinn í þessari viku," svarar Karl Berndsen spurður um snyrti- og hárgreiðslustofuna hans sem var staðsett í Höfðatorgi. "Við erum fimm hárgreiðslumeistarar; Simbi, Steinunn, Tanja og Jón. Svo að karlar og konur ættu að geta droppað inn í klippingu til okkar á 3. hæð um leið og verið er að gera djarfa verslun í Kringlunni." Í næsta mánuði hefst ný þáttaröð af þættinum hans Í Nýju ljósi á Stöð 2.

Tíska og hönnun

Enn og aftur í magabol

Stórstjarnan Miley Cyrus hatar ekki að sýna sinn tónaða maga við hvert tækifæri. Hún mætti á sett í Hollywood um helgina og var enn og aftur í magabol.

Tíska og hönnun

Í hverju var Beyoncé Knowles?

"Allra augu eru á söngdívunni og drottningunni Beyoncé Knowles eftir Super Bowl framkomu gærkvöldsins. Það er því eiginlega ekki hægt komast hjá því að ræða það aðeins," skrifar Elísabet Gunnars tískubloggari á Trendnet.is.

Tíska og hönnun

Djörf en elegant

Leikkonan Zosia Mamet er þekktust fyrir að leika hina prúðu Shoshönnu Shapiro í sjónvarpsþáttunum Girls sem sýndir eru á Stöð 2. Hún mætti í þessum rauða flauelskjól í viðtal hjá Jimmy Fallon á dögunum og vakti mikla athygli fyrir vikið.

Tíska og hönnun

Í sama kjól við sama tilefni

Það er líklega stærsta martröð margra í Hollywood að mæta á rauða dregilinn í nákvæmlega sama dressi og einhver annar. Þó að stílistar stjarnanna reyni sitt besta til að ganga úr skugga um að slíkt eigi sér ekki stað gerist það þó stundum.

Tíska og hönnun

Þetta er rosalegur kjóll

Söngkonan Kimberley Walsh var alltaf álitin sú saklausa þegar hún var í stúlknahljómsveitinni Girls Aloud. Nú hefur hún hafið sólóferil og búin að breyta rækilega um ímynd.

Tíska og hönnun

Alltaf á hælum

Stundum er engu líkara en að stjörnurnar gangi í háum hælaskóm sama hvert tilefnið er. Hér eru nokkrar myndir af stjörnum á hælum við daglegt amstur.

Tíska og hönnun

By Malene Birger á tískuvikunni í Kaupmannahöfn

Danska tískudrottningin Malene Birger hefur átt mikilli velgegni að fagna síðustu ár. Á tískuvikunni í Kaupmannahöfn um helgina hélt hún upp á 10 ára afmæli tískuhússins By Malene Birger með tískusýningu í konunglega danska leikhúsinu. Sýningin var glæsileg í alla staði, fyrirsæturnar gengu niður sýnngarpallana við tóna Davids Bowie og var öll línan mjög í anda áttunda áratugarins þar sem hattar, leður og loð léku stórt hlutverk.

Tíska og hönnun

TREND – Magatoppar

Magatoppar eru umdeildur tískustraumur sem hefur samt sem áður náð að festa sig vel í sessi síðasta árið. Topparnir fóru fyrst að sjást síðasta sumar og hafa verið mjög sýnilegir í vetur. Þeir koma svo með okkur inn í sumarið, en þar verða þeir vinsælir undir buxnadragtir og verða jafnvel enn efnisminni en áður. Hér sjáum við hvernig nokkrir hönnuðir sáu magatoppana fyrir sér í sumar.

Tíska og hönnun

Tekur þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn

Tanja Huld Leví Guðmundsdóttir var ein þriggja útskriftarnema frá Listaháskólanum sem tók þátt í Designers Nest sem fór fram á tískuvikunni í Kaupmannahöfn um helgina. Designers Nest er skandinavísk fatahönnunarkeppni fyrir nýútskrifaða og efnilega fatahönnuði og er hugsað sem stökkpallur út í bransann. Margir fjölmiðlar og áhrifafólk í tískuheiminum sækja sýninguna ár hvert.

Tíska og hönnun

Vogue myndar í Hvíta húsinu

Starfsmenn og fylgdarlið bandaríska tískutímaritsins Vogue sáust fara inn í Hvíta Húsið í Washington með mikinn ljósmyndabúnað í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef Washingtonian. Liðsmenn Vogue voru að öllum líkindum að mynda forsetafrúna, Michelle Obama, fyrir fosíðu marsútgáfu tímaritsins. Einnig vakti það athygli að ekkert var á dagskrá forsetans sjálfs var þennan daginn svo líklegt er að hann hafi líka verið með í tökunni.

Tíska og hönnun

Vicktoria Beckham er dugnaðarforkur

Victoria Beckham prýðir forsíðu febrúarútgáfu breska Elle og hefur sjaldan litið betur út. Poppstjarnan og fatahönnuðurinn talar um hvernig það sé að vera flutt aftur til Bretlands, en eiginmaður hennar ..

Tíska og hönnun

Þetta er óvenjuleg sjón

Kryddpían og tískugoðið Victoria Beckham er yfirleitt uppstríluð þegar ljósmyndarar ná myndum af henni. Því var mjög óvenjulegt að sjá hana í gallabuxum og peysu í vikunni í London.

Tíska og hönnun

Heimurinn fær ekki nóg af Kate Moss

Heimsbyggðin virðist einfaldlega ekki fá nóg af ofurfyrirsætunni Kate Moss. Hún hefur sjaldan verið jafn áberandi og nú, en hún prýðir fjölmargar auglýsingaherferðir stærstu tískuhúsa heims fyrir sumarið. Hér eru nokkrar þeirra.

Tíska og hönnun

Kjóll sem gengur ekki upp

Það er alltaf töfrandi að fylgjast með flíkum á sýningarpöllum, og magnað að sjá hvernig ólíklegustu hlutir geta gengið upp þar. Á hinn bóginn getur stundum verið erfitt að færa þessa flíkur yfir í raunveruleikann. Þetta fékk ástralska leikkonan Isabel Lucas að reyna, en hún mætti í þessum kjól úr vor og sumarlínu Christian Dior í opnunarpartý í Sidney fyrir skömmu. Kjóllinn er vægast sagt skelfilegur, krumpaður, sniðið slæmt og hann gerir ekkert fyrir Lucas.

Tíska og hönnun

Auglýsingaherferð á Instagram

Georgia May Jagger, dóttir rokkarans Mick Jaggers, sat fyrir í auglýsingaherferð fyrir breska gallabuxnamerkið Hudson Jeans fyrir skömmu. Hún var þó ekki eina fyrirsætan því bæði bróðir hennar og kærasti voru með á myndunum sem teknar voru hér og þar í London.

Tíska og hönnun

Kynnir haustlínuna á tískuvikunni í Kaupmannahöfn

Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir fatahönnuður tekur nú þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn í þriðja sinn með vörumerki sitt, GuSt. Á vörusýningu í tengslum við tískuvikuna kynnir GuSt fatalínu sína fyrir næskomandi haust og vetur. Vörur GuSt hafa hlotið góðar viðtökur, nú þegar hefur ný verslun bæst við sölustaðina í Danmörku, auk þess sem GuSt hefur verið boðið að vera með vörur í dönsku vefversluninni Miinto. Á þessu ári eru 10 ár síðan GuSt ehf var stofnað og 16 ár síðan Guðrún Kristín hóf fyrst sölu á fatnaði undir vörumerkinu GuSt. "Af því tilefni er ýmislegt á döfinni um þessar mundir. Logoið hefur verið endurhannað, ný heimasíða er í þróun sem og ýmis konar frekari kynning á vörumerkinu, bæði hér heima og erlendis," segir Guðrún í samtali við Lífið. Á myndunum má sjá brot úr haustlínu GuSt. Edit Ómars sá um myndatöku. Fyrirsæta er Helena Ríkey frá Elite.

Tíska og hönnun

Smart í svörtu

Svo óvenjulega vill til að svartur virðist ætla að verða litur sumarsins í ár. En svart þarf ekki endilega að vera óspennandi, það er um að gera að vera frumleg og leika sér með samsetningarnar. Við skulum fá hugmyndir hjá nokkrum svartklæddum stjörnum.

Tíska og hönnun

Lagerfeld ekki hrifin

Það hafa fáar klippingar fengið jafn mikla athygli og þegar forsetafrú Bandaríkjana, Michelle Obama, lét klippa á sig topp fyrir stuttu. Toppurinn hefur verið mikið á milli tannanna á helstu tískumiðlum, en yfirhönnuður Chanel og tískugoðið Karl Lagerfeld lét nýlega hafa eftir sér í viðtali við franska sjónvarpsstöð að honum þætti toppurinn hafa verið mjög slæm hugmynd.

Tíska og hönnun

Klæðir frægustu fyrirsætur heims

Ásdís Ágústsdóttir fluttist til Parísar fyrir einu og hálfu ári og hóf fatahönnunarnám í Paris American Academy, litlum en virtum skóla. Þar er hluti af náminu að vinna baksviðs á tískuvikunum í hátískuborginni til að fá reynslu og innsýn í bransann. Ásdís hefur unnið baksviðs hjá virtum hönnuðum og klætt þar margar af frægustu fyrirsætum heims. Í tilefni þess að stóru tískuvikurnar fara að bresta á spurði Lífið spurði Ásdísi út í þessa reynslu.

Tíska og hönnun

Tískuvikan í Svíþjóð á enda

Nú er tískuvikunni í Svíþjóð lokið en tískuvikan í Kaupmannahöfn tekur við. Hér eitt af uppáhalds hjá Elísabetu tískubloggara á Trendnet.is frá Stokkhólmi – House of Dagmar - sjá hér.

Tíska og hönnun