Innlent
260 261 262 263 264 265 266 267 268 … 334 ›
Eitt snjóflóðið féll fram hjá varnargarði og út á veg Snjóflóð féllu í nótt á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Flóðin hafa ekki valdið neinu tjóni svo vitað sé. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við fleiri flóðum þar til dregur úr veðri. Innlent 24.12.2023 11:07
Sjá til þess að allir fái jólamat Hátt í þrjú hundruð manns munu borða hátíðarhádegismat á Kaffistofu Samhjálpar í dag. Forstöðumaður segir þá sem mæta vera afar þakklátir en þeim fer fjölgandi sem þurfa á aðstoðinni að halda. Innlent 24.12.2023 10:56
Snjóflóðahætta á Norðurlandi og Vestfjörðum Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og vegfarendur eru beðnir um að fara með gát. Snjóflóð hafa fallið bæði í Siglufirði og Ísafirði. Innlent 24.12.2023 10:23
„Eina leiðin til að bjarga henni var að fara út í“ „Þetta var nú ekkert svakalegt, ég blotnaði bara vel og var lengi að ná upp hita,“ segir Bergþóra Eiðsdóttir sem kom hundi sínum til bjargar sem slysaðist út í Sogið í Þorláksmessugöngu. Innlent 24.12.2023 10:06
Fréttamyndbönd ársins 2023: Skitið á bíl, sprengingar og jarðskjálftar Árið 2023 var svo sannarlega viðburðarríkt og við hæfi að líta yfir nokkur af þeim myndböndum sem birst hafa í fjölmiðlum á árinu. Margt gekk á, náttúruhamfarir, sprengingar en líka allskonar skemmtilegar uppákomur. Innlent 24.12.2023 09:01
Óvissustig í gildi og margir vegir lokaðir Veðurstofa Íslands lýsti í gær yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðanverðum Vestfjörðum. Óvissustigið tók gildi á miðnætti. Innlent 24.12.2023 08:47
Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Aðfangadagur jóla er runninn upp. Nú fer hver að verða síðastur að kaupa síðustu hráefnin í sósuna og síðustu jólagjöfina. Þá er gott að vita hvar er opið og hversu lengi. Innlent 24.12.2023 08:25
Sveitarfélagið hafi brugðist fötluðum syni hans „Við erum ekki að biðja um stóra hluti, bara að sveitarfélagið gefi sér sjálft tíma til að fara í þær framkvæmdir sem það ætlar sér að fara í áður en við þurfum að flytja barnið okkar milli skóla,“ segir Hjörvar Árni Leósson, íbúi í Skagafirði og faðir fimm ára drengs með flogaveiki, hreyfi- og þroskaskerðingu. Innlent 24.12.2023 08:01
Fjöldi mála hjá lögreglu í nótt Nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var annasöm að því er segir í fréttaskeyti lögreglunnar. Fjöldi mála komu á borð lögreglu milli klukkan fimm í gær og fimm í morgun, eða 44, fyrir utan almennt eftirlit. Innlent 24.12.2023 07:33
Tvær ferðamannarútur fuku út af veginum Tvær litlar ferðamannarútur, með tuttugu farþega innanborðs, fuku af Útnesvegi utarlega á Snæfellsnesi í kvöld. Björgunarsveitir höfðu nóg að gera í kuldanum í dag. Innlent 23.12.2023 23:42
Handtekinn grunaður um hnífstungu í sumarhúsi Viðbragðsaðilar voru kallaðir til að sumarhúsi á Hólmsheiði fyrr í kvöld vegna hnífsstungu. Einn var fluttur særður á sjúkrahús en einn handtekinn. Innlent 23.12.2023 22:28
Þrír sjúkrabílar sendir á Hólmsheiði Þrír sjúkrabílar voru kallaðir til vegna atviks á Hólmsheiði í kvöld. Innlent 23.12.2023 21:23
Einn fárra sem heldur upp á jólin í Grindavík Grindvíkingur sem ætlar að halda jól í bænum segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að fara heim um jólin. Síðustu dagar hafi verið algjör rússíbanareið. Fjölskyldan verður ein fárra sem dvelur í Grindavík um hátíðarnar eftir að bærinn var opnaður að fullu í gær. Innlent 23.12.2023 20:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingur sem ætlar að halda jól í bænum segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að fara heim um jólin. Síðustu dagar hafi verið algjör rússíbanareið. Fjölskyldan verður ein fárra sem dvelur í Grindavík um hátíðarnar eftir að bærinn var opnaður að fullu í gær. Innlent 23.12.2023 18:24
Hellisheiði lokað eftir tvö slys Veginum um Hellisheiði var lokað í dag vegna tveggja slysa. Slysin eru bæði sögð hafa orðið vegna slæms skyggnis og hálku. Engan sakaði alvarlega í slysunum og er vegurinn enn lokaður. Innlent 23.12.2023 16:52
FÁSES skorar á Rúv að senda ekki lag í Eurovision FÁSES skorar á forsvarsmenn Rúv og leggja til að Ísland sendi ekki keppendur í Eurovision á næsta ári, verði Ísrael með í keppninni. Þetta var ákveðið með atkvæðagreiðslu á félagafundi sem haldinn var á dögunum vegna umræðu um sniðgöngu Eurovision. Innlent 23.12.2023 15:55
Erfitt að eyða jólunum fjarri fjölskyldunni en ekkert annað í boði Háseti og kafari á varðskipinu Freyju segir stemninguna meðal átján áhafnarmeðlima mjög góða, þrátt fyrir að nú sé ljóst að þeir muni eyða jólunum um borð í skipinu við Ísafjarðarhöfn. Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun fyrir morgundaginn auk þess sem miklar líkur eru taldar á snjóflóðum á svæðinu. Innlent 23.12.2023 13:43
Tæmdu hillur King Kong á níutíu sekúndum Brotist var inn í verslunina King Kong á Höfðabakka í nótt, þar sem þjófar tæmdu hillur vape verslunarinnar ofan í töskur og hlupu síðan á brott. Eigandi verslunarinnar segir tjónið töluvert. Innlent 23.12.2023 13:05
Ætlar ekki að gista í Grindavík Landris við Svartsengi mun líklegast ná sömu hæð og fyrir gos eftir tvær til þrjár vikur. Bæjarstjóri Grindavíkur segir það vonbrigði að það gæti byrjað að gjósa á ný nærri bænum. Hann telur að fáir muni gista í Grindavík yfir hátíðarnar. Innlent 23.12.2023 12:29
Hádegisfréttir Bylgjunnar Landris við Svartsengi mun líklegast ná sömu hæð og fyrir gos eftir tvær til þrjár vikur. Bæjarstjóri Grindavíkur segir það vonbrigði að það gæti byrjað að gjósa á ný nærri bænum. Hann telur að fáir muni gista í Grindavík yfir hátíðarnar. Við fjöllum um stöðuna á Reykjanesskaga í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Innlent 23.12.2023 11:52
Appelsínugul viðvörun á Vestfjörðum Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun á Vestfjörðum sem tekur gildi klukkan fimm í fyrramálið. Víðtækar samgöngutruflanir eru taldar líklegar. Innlent 23.12.2023 11:30
Á skötuvaktinni í þrjátíu ár: „Maður þekkir bara nánast alla sem koma“ Ilmandi skata er ómissandi þáttur í jólahefð fjölmargra landsmanna á Þorláksmessu. Dagurinn er einn sá stærsti á veitingahúsinu Múlakaffi, en eigandi segir vinsældir skötunnar aukast með ári hverju. Sjálfur var hann mættur á vaktina klukkan þrjú í nótt til að undirbúa daginn og á von á fjölmörgum gestum á öllum aldri. Innlent 23.12.2023 11:05
Í sömu hæð aftur eftir tvær til þrjár vikur Landris heldur áfram við Svartsengi eftir að eldgosinu við Sundhnjúka lauk á dögunum. Það seig aftur á meðan á eldgosinu stóð en verður líklega aftur komið í sömu hæð eftir tvær til þrjár vikur. Innlent 23.12.2023 09:15
Gular viðvaranir á öllu vestanverðu landinu á aðfangadag Gul viðvörun tekur gildi klukkan níu á Suðurlandi. Snjókoma og hugsanlegur skafrenningur geta leitt til erfiðra aksturskilyrða, sér í lagi undir Eyjafjöllum og á veginum við Reynisfjall. Á morgun, aðfangadag verða gular viðvaranir í gildi á öllu vestanverðu landinu. Innlent 23.12.2023 09:02
Kýldi lögregluþjón í andlitið Maður sem handtekinn var í nótt, grunaður um ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda, veittist að lögregluþjóni og sló með krepptum hnefa í andlitið þegar verið var að keyra hann heim að sýnatöku lokinni. Maðurinn var því handtekinn á ný og vistaður í fangaklefa. Talsvert var um hótanir og ofbeldi gagnvart lögreglumönnum við störf í gærkvöldi og í nótt. Innlent 23.12.2023 07:52
Varðskipið Freyja til Vestfjarða vegna mikillar snjóflóðahættu Mikil hætta er talin á snjóflóði á norðanverðum Vestfjörðum á aðfangadag. Lögreglan á Vestfjörðum óskaði eftir aðstoð varðskipsins Freyju sem hélt af stað vestur á firði um miðnætti. Innlent 23.12.2023 07:15
Lagði snemma áherslu á að herbergið væri hans einkaheimur Þórdís Þórðardóttir tók ákvörðun fyrir fimm árum um að halda á lofti minningu um son sinn sem féll fyrir eigin hendi langt fyrir aldur fram. Hún hvetur til vakningar í samfélaginu varðandi fordóma og hatursorðræðu í garð hinsegin fólks sem geti haft alvarlegar afleiðingar. Innlent 23.12.2023 07:00
Ætla að gefa Hvammsvirkjun grænt ljós Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um að heimila breytingar á vatnshloti í Þjórsá 1, vegna framkvæmda við 95 megavatta Hvammsvirkjun. Telur stofnunin að sjónarmið um raforkuöryggi vegi þyngra en umhverfissjónarmið vatnshlotsins. Innlent 22.12.2023 23:05
„Það rýmdi enginn Reykjahlíð á sínum tíma“ Prófessor í eldfjallafræði segir það góða ákvörðun að leyfa Grindvíkingum að gista í bænum, nú þegar gosvirkni virðist hafa færst annað. Hann segir líkur á gosi fara vaxandi með auknu landrisi og telur tvær vikur í að það nái sömu hæð og það náði fyrir síðasta gos. Innlent 22.12.2023 22:08
Telja kopar í tonnatali vera þýfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um „nokkur tonn af kopar“ í Árbæ í dag. Talið er að líklega sé um þýfi að ræða. Innlent 22.12.2023 21:07