

Ademola Lookman kom, sá og batt enda á ótrúlega sigurgöngu Bayer Leverkusen þegar hann skoraði magnaða þrennu og tryggði Atalanta 3-0 sigur í úrslitaleik Evrópudeildar karla í fótbolta.
Bayer Leverkusen er tveimur leikjum frá ótrúlegu taplausu og þriggja titla tímabili. Fyrri hraðahindrunin er úrslitaleikur Evrópudeildarinnar við Atalanta í kvöld.
Granit Xhaka og félagar hans í Bayer Leverkusen eru klárir í slaginn fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Atalanta mætir liðinu í úrslitum.
UEFA hefur sett City Football Group tvo valkosti fyrir næsta tímabil. Ef ekki verður farið eftir fyrirmælum fyrir 3. júní verður annað hvort Manchester City eða Girona lækkað um tign og látið spila í Evrópudeildinni á næsta ári.
Það verða Atalanta og Leverkusen sem mætast í úrslitum Evrópudeildarinnar. Atalanta vann þægilegan 3-0 heimasigur á Marseille en Leverkusen gerði jafntefli á heimavelli gegn Rome, 2-2.
Xabi Alonso og lærisveinar hans í Leverkusen hafa enn ekki tapað leik á leiktíðinni og eru aðeins einum leik frá því að slá ótrúlegt met.
Bayer Leverkusen vann 2-0 útivallarsigur gegn Roma á meðan Marseille og Atalanta skildu jöfn 1-1 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.
„Fyrst af öllu vil ég hrósa Atalanta. Við vorum slakir í síðustu viku og þeir spiluðu vel. Atalanta átti skilið að fara áfram því við gerðum hlutina alltof erfiða fyrir okkur,“ sagði Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, eftir að liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Paulo Fonseca, þjálfari franska knattspyrnuliðsins Lille, sagði lið sitt ekki eiga skilið að hafa fallið úr leik gegn Aston Villa í Evrópudeildinni í kvöld. Villa fór áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni.
„Augljóslega svekktir, sýndum þeim of mikla virðingu í síðustu viku en sýndum þeim hvað við gátum í kvöld,“ sagði markaskorari West Ham United, Michail Antonio, um niðurstöðu kvöldsins en West Ham gerði 1-1 jafntefli við hið ósigrandi lið Bayer Leverkusen í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Daniele de Rossi hélt upp á nýjan samning sinn við Roma með því að leggja AC Milan að velli 2-1 í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Vann Roma einvígið samtals 3-1. Þá er Marseille komið áfram eftir sigur á Benfica í vítaspyrnukeppni.
Liverpool er úr leik í Evrópudeild karla í knattspyrnu þrátt fyrir 1-0 útisigur á Atalanta í kvöld. Ítalirnir unnu fyrri leik liðanna á Anfield 3-0 og eru komnir í undanúrslit.
Bayer Leverkusen ætlar sér greinilega að fara taplaust í gegnum leiktíðina. Liðið er komið í undanúrslit Evrópudeildar karla í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli gegn West Ham United í Lundúnum. Leverkusen vann fyrri leik liðanna 2-0.
Stuðningsmenn Manchester United grínast kannski með ófarir enskra erkifjenda sinna í Evrópukeppnum þessa dagana en gera sér ef til vill ekki grein fyrir því að það hefur bein áhrif á möguleika þeirra sjálfra að vera með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Liverpool er í mjög slæmri stöðu fyrir seinni leik sinn í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 3-0 tap á móti Atalanta í fyrri leiknum á Anfield. Seinni leikurinn er í kvöld.
„Þetta var skelfilegur leikur, guð minn góður. Við byrjuðum vel, mjög vel, en héldum því ekki áfram. Við vorum alls staðar en á sama tíma ekki neins staðar“ sagði Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir 0-3 tap gegn Atalanta.
Liverpool mátti þola slæmt tap, 0-3 á heimavelli, gegn Atalanta í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
West Ham tók á móti Bayer Leverkusen í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar og veitti gestunum hörku viðureign, en tapaði að endingu 0-2. Jonas Hoffmann og Victor Boniface tryggðu Leverkusen sigurinn.
Dregið var í átta liða úrslit og undanúrslit Evrópudeildar UEFA í fótbolta í dag. Á meðal liða í keppninni er Liverpool sem mætir Atalanta frá Ítalíu í undanúrslitunum.
Aftur lentu lærisveinar Xabi Alonso í Bayer Leverkusen 2-0 undir á móti Qarabag í Evrópudeildinni en nú náði þýska toppliðið að snúa leiknum við í uppbótartíma og tryggja sér 3-2 sigur.
Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 6-1 sigur á Slavia Prag í seinni leik liðanna á Anfield í kvöld.
West Ham, AC Milan, Marseille og Benfica eru öll komin áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir seinni leik sína í sextán liða úrslitum í kvöld.
Aðdáandi enska fótboltaliðsins Brighton sem varð fyrir stunguárás í Rómarborg í gær lét það ekki stöðva sig frá því að mæta á leik liðsins við Roma í Evrópudeildinni.
Leikur Spörtu Prag og Liverpool í Evrópudeildinni í fótbolta í gær var heldur skrautlegur. Úrúgvæinn Darwin Núñez skoraði tvö einkar falleg mörk í leiknum.
Í lokaþætti þessarar þáttaraðar af Heiðursstúkunni mættur góðir félagar sem hafa nú tekið upp á ýmsum í gegnum tíðina.
AC Milan vann Slavia Prag, 4-2, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Á sama tíma hafði Freiburg betur gegn West Ham, 1-0, í Þýskalandi.
Roma kom sér langleiðina í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta með frábærum 4-0 sigri gegn Brighton í Rómarborg í kvöld.
Liverpool er svo gott sem komið áfram í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 5-1 sigur gegn Sparta Prag í Tékklandi í kvöld. Það virðist því nánast formsatriði að spila seinni leikinn í Liverpool.
Tveir stuðningsmenn Brighton voru stungnir fyrir leik liðsins gegn Roma í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Það er svo sannarlega spennandi kvöld í vændum á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld þar sem á dagskrá eru hörkuleikir í Subway-deild karla í körfubolta og Evrópudeildinni í fótbolta, ásamt fleira efni.