Stj.mál
125 126 127 128 129 130 131 132 133 … 187 ›
Fjármálaráðherra hnýtir í VG Það er engu líkara en að vinstri grænir hafi tekið að sér fjármálin í borginni, sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra á Alþingi í dag. Þannig lauk gagnrýni hans á þá ákvörðun R-listans að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla. Innlent 13.10.2005 18:56
Kvartað á Alþingi Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, kvartaði yfir því á Alþingi í dag að hans flokksmenn fengu ekki að koma að óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Helgi Hjörvar Samfylkingu kvaddi sér einnig hljóðs og sagði þingmenn Sjálfstæðisflokks fá greiðari aðgang að ráðherrum þegar kæmi að óundirbúnum fyrirspurnum. Innlent 13.10.2005 18:56
Þrír meirihlutar á kjörtímabili Nýr meirihluti hefur verið myndaður í bæjarstjórn Blönduóss, sá þriðji á kjörtímabilinu. Sjálfstæðismenn og H-listi vinstri manna og óháðra tilkynntu í gærkvöldi að þeir hefðu myndað nýjan meirihluta en fyrri meirihluti H-lista og Á-lista bæjarmálafélagsins Hnjúka sprakk í vikunni. Innlent 13.10.2005 18:56
Ál er ekki nóg Iðnaðarráðherra segir að ekki gangi til lengdar að reisa fleiri álver. Nú verði að byggja upp hátækniiðnað. Innlent 13.10.2005 18:56
Minkafrumvarp enn í smíðum Frumvarp sem Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, hafði í smíðum varðandi fækkun á minknum í íslenskri náttúru er enn í vinnslu undir handleiðslu nýs umhverfisráðherra, Sigríðar Önnu Þórðardóttur. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að leggja málið fram á Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:56
Nýr meirihluti á Blönduósi "Viðræður okkar gengu eins í sögu og engin snurða hljóp á þráðinn," segir Ágúst Þór Bragason, nýráðinn formaður bæjarráðs Blönduóss, en myndaður hefur verið nýr meirihluti í bænum. Er þar um að ræða samstarf D-lista Sjálfsstæðismanna og H-lista vinstri manna og óháðra. Innlent 13.10.2005 18:56
Hart deilt á lóðaúthlutun Ónafngreindur auglýsandi bauð í gær hverjum þeim sem sækti um og fengi einbýlishúsalóð í lóðaúthlutun í Lambaseli átta milljónir króna fyrir lóðina. Verði einhver við boðinu þýðir það að viðkomandi hagnist um 3,4 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 18:56
Hætta við myndatökur "Okkar mat er að betur má ef duga skal og tillögurnar eru fyrstu skref í þá átt," segir Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, en bæjarstjórnin hefur lagt línurnar með hvernig sé best að efla innbrotavarnir og öryggi íbúa bæjarfélagsins en tíðni innbrota á Nesinu hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Innlent 13.10.2005 18:56
Búist við þúsundum lóðaumsókna Búist er við mörg þúsund umsóknum um þrjátíu einbýlishúsalóðir í Reykjavík sem auglýstar voru í dag. Þrátt fyrir stranga skilmála er mikill slagur um lóðirnar, til dæmis auglýsir fjölskylda eftir því að fá að kaupa lóð af einhverjum sem fær úthlutað á tæplega tvöföldu verði. Innlent 13.10.2005 18:56
Opinber embætti eign þjóðarinnar Pólitískum ráðningum hefur fjölgað undanfarin ár, mögulega vegna langrar valdasetu núverandi stjórnvalda. Þetta sagði Ómar H. Kristmundsson, lektor í opinberri stjórnsýslu á fundi Félags stjórnmálafræðinga um pólitískar stöðuveitingar á laugardag. Innlent 13.10.2005 18:56
Klappað fyrir ráðherra vegna ganga Klappað var á Siglufirði í dag þegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra lýsti því yfir að borun Héðinsfjarðarganga hæfist eftir sextán mánuði. Göngin eiga að vera tilbúin í lok árs 2009. Innlent 13.10.2005 18:56
Nýr meirihluti á Blönduósi Sjálfstæðismenn og H-listi vinstri manna og óháðra á Blönduósi hafa myndað nýjan meirihluta í bæjarstjórn en fyrri meirihluti H-lista og Á-lista, bæjarmálafélagsins Hnjúka, sprakk í vikunni. Valgarður Hilmarsson verður áfram forseti bæjarstjórnar og Jóna Fanney Friðriksdóttir áfram bæjarstjóri en nýr formaður bæjarráðs verður Ágúst Þór Bragason frá D-lista. Innlent 13.10.2005 18:56
Byrjað á göngum í júlí að ári Framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng hefjast í júlímánuði árið 2006 og verða göngin tilbúin fyrir árslok 2009. Þetta kom fram í ræðu Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra á fundi á Siglufirði sem nú stendur yfir. Fyrir þingkosningarnar vorið 2003 höfðu stjórnvöld lýst því yfir að borun Héðinsfjarðaganga hæfist haustið 2004 og var verkið boðið út vorið 2003. Innlent 13.10.2005 18:56
Byrjað á göngum eftir 18 mánuði Framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng hefjast eftir eitt og hálft ár. Þessi tíðindi færir samgönguráðherra Siglfirðingum á fundi sem hann boðar til um samgöngumál á Siglufirði í dag. Innlent 13.10.2005 18:56
Mótmæltu stríði á Ingólfstorgi Nokkur hundruð manns söfnuðust saman á Ingólfstorgi í dag til að krefjast þess að Bandaríkjastjórn dragi herlið sitt út úr Írak. Tilefnið? Jú, í dag eru liðin tvö ár frá því Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra, þar á meðal Íslendingar, ákváðu að koma Saddam Hussein frá völdum í Írak. Innlent 13.10.2005 18:56
Íraksstríði mótmælt í miðborginni Um fimm hundruð manns söfnuðust saman á Ingólfstorgi núna klukkan tvö til þess mótmæla innrásinni í Írak og krefjast þess að Bandaríkjastjórn dragi herafla sinn út úr landinu. Í dag eru tvö ár síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak og er þess minnst með mótmælum víða um heim. Innlent 13.10.2005 18:56
Mælt með ríkisborgararétti Allsherjarnefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í dag að mæla með því að skákmeistaranum Bobby Fischer yrði veittur ríkisborgararéttur. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar, hafði gengið úr skugga um að þær upplýsingar, sem bárust frá Japan um að ríkisborgararéttur til handa skákmeistaranum myndi hjálpa honum að losna úr varðhaldi, væru réttar. Innlent 13.10.2005 18:56
Davíð vill í öryggisráðið Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að stefna Íslendinga um að sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafi ekki breyst. Hann segir að talið sé að kostnaðurinn við framboðið og þátttökuna, nái Ísland kjöri, verði á bilinu sex til sjöhundruð milljónir króna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:56
Viðræður um varnarmál í apríl Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að Íslendingar muni að öllum líkindum þurfa að taka á sig auknar skyldur vegna rekstrar Keflavíkurflugvallar. Viðræður við Bandaríkjamenn um framtíð Keflavíkurflugvallar munu fara fram um miðjan apríl. Innlent 13.10.2005 18:56
Varnarviðræður um miðjan apríl Viðræður um framtíð varnarsamstarfsins við Bandaríkin hefjast að nýju um miðjan apríl. Niðurstöðurnar munu hafa áhrif á atvinnumál á Suðurnesjum og fjárhag íslenska ríkisins þar sem rætt verður um varnarviðbúnað á Keflavíkurflugvelli og aukna þátttöku Íslands í kostnaði við rekstur vallarins. Innlent 13.10.2005 18:56
Leikskólaloforð sýni örvæntingu Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kallar loforð borgarstjóra um að öllum leikskólabörnum verði boðið upp á sjö stunda gjaldfrjálsa leikskólavist örvæntningafullt útspil. Innlent 13.10.2005 18:56
Meirihluti vill sameina bæi Talsverður meirihluti almennings er hlynntur sameiningu sveitarfélaga, samkvæmt könnun sem IMG Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið. 66 prósent eru hlynnt eða mjög hlynnt sameiningu, ríflega 22 prósent eru andvíg og 11 prósent eru óákveðin. Athygli verkur að stuðningur við sameiningu er afgerandi meiri meðal fólks í þeim sveitarfélögum sem nýlega hafa verið sameinuð öðrum. Innlent 13.10.2005 18:56
Fischer verður Íslendingur Allsherjarnefnd samþykkti í gær einróma að mæla með því að Bobby Fischer yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Stefnt er á flýtimeðferð á Alþingi og vonast til að málinu verði lokið í næstu viku. Davíð Oddsson telur málið það sérstætt að það sé ekki fordæmisgefandi.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:56
Borgararéttur líklegur fyrir páska Líkur eru til að Bobby Fischer verði kominn með íslenskan ríkisborgararrétt fyrir páska. Sendiherra Íslands í Japan fékk að heyra það frá fyrstu hendi hjá yfirmanni innflytjendaeftirlits Japans að Fischer fengi að koma hingað fengi hann íslenskt ríkisfang. Innlent 13.10.2005 18:56
Rice ræddi um eiturlyf Eiturlyf en ekki hryðjuverkamenn voru umræðuefnið þegar Condoleezza Rice kom til Afganistans í dag. Erlent 13.10.2005 18:55
Margrét í borgarmálin Margrét Sverrisdóttir gefur kost á sér í annað sætið á lista Frjálslynda flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2006. Frjálslyndi flokkurinn hóf kosningabaráttu sína í dag. Innlent 13.10.2005 18:55
Rasmussen óvænt til Íraks Danir munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða ríkisstjórn Íraks í öryggismálum. Þetta sagði Anders Fogh-Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, þegar hann kom í óvænta heimsókn til Íraks í dag. Erlent 13.10.2005 18:55
Berlusconi að draga í land? Silvio Berlusconi virðist eitthvað vera að draga í land með þá ákvörðun sína að fara með herlið Ítala burt frá Írak í september. Í gær sagði Berlusconi að ekki væri búið að ákveða hvenær herinn færi og það yrði að gerast í góðri sátt við bandamenn landsins. Erlent 13.10.2005 18:55
Óvíst hvort Wolfowitz verði ráðinn Tilnefning Pauls Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í embætti bankastjóra Alþjóðabankans, hefur vakið hörð viðbrögð. Óvíst er hvort tilnefningin fæst staðfest. Erlent 13.10.2005 18:55
Fyrsta hluta brottflutnings lokið Sýrlendingar hafa lokið fyrsta hluta brottflutnings frá Líbanon. Sýrlenskar hersveitir og leyniþjónustufólk er nú komið til austurhluta Líbanons, skammt frá landamærunum að Sýrlandi, og stór hluti yfir landamærin. Erlent 13.10.2005 18:55