
Umhverfismál

Loftslagsbreytingar valdi verri öndunarfærasjúkdómum og sýkingum
Loftslagsbreytingar eru þegar farnar að hafa umtalsverð áhrif á lífsskilyrði á Íslandi og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eru þær stærsta heilsufarsógn mannkyns. Verkefnastjóri hjá landlækni segir tímaspursmál hvenær sjúkdómsberar á borð við moskítóflugur komi til landsins.

Loftslagsbreytingar byrjaðar að hafa umtalsverð áhrif á lífsskilyrði á Íslandi
Loftslagsbreytingar eru þegar farnar að hafa umtalsverð áhrif á náttúru Íslands og breyta lífsskilyrðum fólks hér á landi. Með þeim loftslagsbreytingum, sem þegar eru hafnar, fylgja vaxandi áskoranir fyrir efnahag, samfélag og náttúru landsins. Loftslagsvandinn mun hafa áhrif á verðlag, fjármálastöðugleika og öryggi fjármálakerfisins.

Hvað eru endurnot, endurvinnsla og endurnýting?
Við sem vinnum alla daga við að meðhöndla rusl vitum að flækjustig þessa málaflokks er mun meira en maður hefði haldið við fyrstu sýn. Þetta er jú bara rusl, hversu flókið getur þetta verið?

Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi
Fjórða matsskýrsla vísindanefndar um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi verður kynnt í dag. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að loftslagsbreytingar eru byrjaðar að breyta náttúrufari og lífsskilyrðum fólks á Íslandi.

Yfirgangur Landsvirkjunar gegn íbúum við Þjórsá og gagnvart lífríki og umhverfi árinnar
Ég er einn þeirra íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem kominn er með nóg af yfirgangi og virðingarleysi ákveðinna afla, gagnvart náttúrunni, lýðræðinu og faglegum vinnubrögðum. Þar ber hæst Landsvirkjun sem haldið hefur íbúum í gíslingu með yfirvofandi virkjunum í neðri hluta Þjórsár, árum saman.

Hringrásarhagkerfið: Þurfum að huga betur að heilsu hafsins
„Ég held að við Íslendingar séum gjörn á að horfa á hafið að einhverju leyti sem gefnum hlut. Að hafið sé óþrjótandi auðlind,“ segir Þórður Reynisson lögfræðingur og Head of the Ocean Economy program hjá Nordic Innovation.

Orkuúlfur snýr úr sauðagæru
HS Orka verður seint talið fyrirtæki sem lætur sér annt um náttúruna, a.m.k. ekki hin síðari ár. Fyrirtækið fór vel af stað á síðustu öld með snyrtilegri jarðhitavirkjun og hitaveitu, en smitaðist síðan af græðgissótt þar sem stóriðju var lofað orku sem fyrirtækið átti í erfiðleikum með að skaffa.

Útiveran í æsku tendraði baráttueldinn
„Útiveran sem maður ólst upp með hér heima er svo stór hluti af manni. Það er lúxus sem maður vill vernda,“ segir tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir. Blaðamaður settist niður með henni og fékk að heyra frá samstarfinu við spænsku stórstjörnuna Rosaliu, náttúruverndinni og baráttunni gegn sjókvíaeldi, tónleikaferðalögunum, listrænni þróun og fleira.

Saurgerlar í neysluvatni Borgarfjarðar eystri undanfarnar tvær vikur
Kólígerlar mældust í sýni sem tekið var úr vatnsveitunni á Borgarfirði eystri fyrir rúmlega tveimur vikum. Enn mælist mengun í vatninu en framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands bindur vonir við að gerlarnir verði farnir eftir helgi.

Saka Samgöngustofu um matarsóun og vanvirðingu við hænur
Formaður Samtaka grænkera á Íslandi segir nýja markaðsherferð Samgöngustofu vanhugsaða. Hún stuðli að matarsóun og sé vanvirðing við hænur. Stofnunin sendi völdum samfélagsmiðlastjörnum eggjabakka og hvatti þær til þess að brjóta eggin.

Verðmæti týnd ofan í skúffum – átak í söfnun notaðra raftækja
Einungis 30 - 40% raftækja skila sér í endurvinnslustöðvar hér á landi af þeim 7000 tonnum af raftækjaúrgangi sem fellur til á hverju ári. Á morgun er alþjóðlegur söfnunardagur raftækja og hafa Íslenska gámafélagið og Dropp tekið höndum saman við að safna notuðum raftækjum.

Nýja brúin yfir Þorskafjörð opnuð síðar í mánuðinum
Vegagerðin stefnir að því að nýja brúin yfir Þorskafjörð verði opnuð umferð miðvikudaginn 25. október næstkomandi, eftir tæpar tvær vikur. Það er átta mánuðum á undan áætlun en útboðsskilmálar gerðu ráð fyrir verklokum þann 30. júní á næsta ári.

Sigmaður Landhelgisgæslunnar sótti forsetann
Landhelgisgæslan sótti í dag fjögur hundruð kílóa dekk sem rekið hafði á land í friðlandinu við Bessastaði á Álftanesi.

Segir algjörlega ábyrgðarlaust að tala gegn aukinni orkuvinnslu
Forstjóri Landsvirkjunar sakar þá sem tala gegn aukinni orkuvinnslu um algjört ábyrgðarleysi. Staðan í orkumálum sé grafalvarleg og landsmenn þurfi að gera sér grein fyrir því hvað orkuskortur þýði.

Gætum neyðst til að kaupa loftslagskvóta fyrir milljarða
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að ef Íslendingar standi ekki við alþjóðlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum fyrir árið 2030 gætu þeir neyðst til að kaupa loftslagsheimildir fyrir einn til tíu milljarða króna á ári. Þetta kom fram í ávarpi ráðherrans á haustfundi Landsvirkjunar í morgun.

Viljum við gráa framtíð?
Í dag heldur Landsvirkjun sinn árlega haustfund undir slagorðinu „Leyfum okkur græna framtíð“. En hver er þessi græna framtíð sem Landsvirkjun vill leyfa sér?

Lífið á hálendinu
Hálendið ber með sér að vera ævafornt. Eins og höfuðskepna sem vofir yfir okkur á láglendinu. Hálendi Íslands er það svæði sem verður harðast fyrir barðinu á náttúruöflunum. Hvort sem á dynja frosthörkur, stormar, eldgos eða öskufall þurfa lífverurnar á hálendinu að láta það sem á dynur yfir sig ganga.

„Íslendingar virðast oft eiga heimsmet í skammsýni“
„Okkur þykir einstaklega vænt um að vera partur af hátíð sem þessari þar sem okkur er svo innilega annt um umhverfi okkar og þá náttúruperlu sem hálendi okkar Íslendinga er,“ segir hljómsveitin Celebs, sem kemur fram á Hálendishátíðinni á miðvikudagskvöld í Iðnó.

Friðlýsir Skrúð og staðfestir verndarsvæði í byggð á Ísafirði
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í á föstudag friðlýsingu vegna Skrúðs í Dýrafirði. Þá staðfesti ráðherrann að Neðstikaupstaður og Skutulsfjarðareyri á Ísafirði verði sérstakt verndarsvæði innan sveitarfélagsins.

Furða sig á því að stjórnendur Landspítala sleppi við gjaldtöku í þágu umhverfismála
Fleiri en fjögur hundruð starfsmenn Landspítala segjast ósáttir við fyrirhugaða gjaldtöku á bílastæði starfsmanna og furða nokkrir sig á því hvers vegna ekki eigi að rukka stjórnendur á skrifstofu spítalans um sömu gjöld.

Hættir eftir þriggja áratuga starf sem umsjónaraðili Málmeyjar
„Mér þykir mjög vænt um þessa eyju. Ég er hins vegar orðinn það slæmur til heilsunnar að það er kominn tími til að nýr maður taki við þessu hlutverki.“

Útfararþjónusta fyrir raftæki
Margir kannast við það að eiga lager af raftækjum sem hafa dagað uppi í skúffum og skápum á heimilinu. Allt frá fótanuddtækjum til brauðvéla og sous vide tækja, að ógleymdum tölvum og símum. Þessi tæki eru góðar heimildir um tískubylgjur síðustu ára því eitt sinn voru þau vinsæl og eftirsótt en núna taka þau aðallega pláss á heimilinu.

Með hálendið í hjartanu
Í hvert skiptið sem ég er á leið upp á hálendið til þess að sinna landvarðarstarfi sem ég hef tekið að mér á sumrin, er eftirvæntingin áþreifanleg. Ég er ekki fyrr sest við matarborðið hjá ömmu og afa en þau byrja að segja mér sögur.

Líður að verri loftgæðum?
Íslenskur vetur væntanlegur með öllum sem honum fylgir, vetrarstillum og verri veðrum. Sannarlega er sjaldan skortur á roki og rigningu, sanngjarnt væri að allt óheppilegt fyki í buffer himinhvolfanna. Því trúa mörg og því haldið á lofti að hér séu loftgæði góð.

„Gulrætur og svipur“ í nýjum ramma fyrir lagareldi
Fyrsta heildstæða stefnan um sjókvíaeldi og annars konar eldi var birt í dag. Ráðherra segir greinina hafa vaxið umfram regluvert og það löngu tímabært að setja greinina í góðan ramma.

Saurmengun í neysluvatninu á Borgarfirði eystri
Neysluvatn á Borgarfirði eystri reyndist mengað af kóligerlum við reglubundið eftirlit í byrjun vikunnar.

Ákváðu að kæra eftir að bent var á fleiri myndskeið
Umhverfisstofnun mun skila kæru til Lögreglunnar á Suðurlandi vegna utanvegaaksturs Þjóðverjans Petes Ruppert í fyrramálið.

Holan hugsanlega ólögleg en ekki endilega aksturinn
Glæfralegur akstur þýsks ferðamanns á fjórtán tonna jeppa er kominn inn á borð Umhverfisstofnunar. Forstjóri hennar segir að atvikið skeri sig úr en ekki sé öruggt að aksturinn hafi verið ólögmætur.

Trukkar flækist ítrekað um hálendið eftirlitslaust
Formaður vina Þjórsárvera segir ljóst að hræðilegt slys hafi orðið á slóðanum sem þýskur hertrukkur festist á fyrr í mánuðinum. Hún segist ítrekað hafa kallað eftir úrbótum en talað fyrir lokuðum eyrum.

Vegurinn illa farinn eftir fjórtán tonna hertrukk
Land í Þjórsárverum er illa farið eftir að þýskur ferðamaður ók fjórtán tonna hertrukk þar yfir og festist. Myndbönd sem ferðamaðurinn birti á netinu hafa vakið athygli.