Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tólfta varð norðan Grindavíkur í júlí 2025.

Fréttamynd

Vilja ræða um varnar­garða en byggja meira á hraunum

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Varnar­garðar á Reykja­nesi: Verk­efnið ríkislög­reglu­stjóra of­viða

Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athugasemdir við það hvernig staðið var að undirbúningi og gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. Lögum samkvæmt var ríkislögreglustjóra falið að fara með framkvæmd aðgerða en Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða.

Innlent
Fréttamynd

Mesta kvikusöfnun til þessa

Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos.

Innlent
Fréttamynd

Vonast til að náttúran verði þeim hlið­holl

Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna.

Innlent
Fréttamynd

Veður­stofan rýnir breyttar jarð­hræringar

Vísbendingar eru um að eldvirkni við Sundhnúksgíga gæti verið að líða undir lok og unnið er að nýrri sviðsmyndagreiningu hjá Veðurstofunni. Fagstjóri aflögunarmælinga segir ekkert benda til þess að næsta gos sé yfirvofandi.

Innlent
Fréttamynd

Rífur niður hús sem hann gekk fram­hjá alla skóla­gönguna

Vinna hófst við niðurrif altjónaðra húsa í Grindavík í morgun. Verktakinn segir tilfinningarnar blendnar. Hann ætli að fara áfram á hnefanum líkt og hann hafi gert frá rýmingu bæjarins. Þá opnar matvöruverslun í bænum á næstu dögum en engin slík hefur verið í Grindavík í rúm tvö ár.

Innlent
Fréttamynd

Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í upp­byggingu Grinda­víkur

Ég á mann, fjóra stráka og tík. Við hjónin eigum Grindavík Guesthouse. Ég er í leiðsögunámi hjá EHI og hef stofnað Kvika Travel ehf. Ég ætla ekki að sitja hjá. Ég ætla að taka þátt í að byggja bæinn upp aftur. Ég skrifa þetta ekki sem sérfræðingur. Ég skrifa þetta sem mamma sem þarf að taka ákvörðun um framtíð barna sinna.

Skoðun
Fréttamynd

Kviku­hlaup og eld­gos enn lík­legasta sviðs­myndin

Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Þetta er eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá upphafi atburðanna.

Innlent
Fréttamynd

Tengsla­net veikara og and­leg líðan verri í dag en fyrir rýmingu

Fimmtán prósent þeirra sem svöruðu könnun Grindavíkurnefndarinnar um framtíðarsýn í Grindavík sjá fyrir sér að flytja þangað aftur á þessu ári. Þeir sem ekki ætla að flytja aftur á næstunni nefna í könnuninni óvissu um framvindu náttúruhamfaranna og að börn séu farin að festa rætur á nýjum stað.

Innlent
Fréttamynd

Reiknar með einu gosi í við­bót

Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Jarðskjálftahrinan við Eld­ey heldur á­fram

Jarðskjálftahrinan sem hófst við Eldey um hádegisbil í gær 7. febrúar heldur áfram. Nú hafa mælst rúmlega þrjú hundruð skjálftar í hrinunni og stendur hún enn yfir þó ákafinn hafi aðeins minnkað frá því í gær.

Innlent
Fréttamynd

Blótað í Grinda­vík á nýjan leik

Þorrablót Grindvíkinga mun fara fram í íþróttahúsinu í Grindavík í kvöld í fyrsta skipti síðan að bærinn var rýmdur þann tíunda nóvember árið 2023 eftir miklar jarðhræringar á Reykjanesskaganum.

Innlent
Fréttamynd

Engin merki um gosóróa í skjálftahrinu á Reykja­nes­hrygg

Jarðskjálftahrina stendur nú yfir á Reykjaneshrygg. Skjálftahrinan hófst um klukkan á milli fimm og sex í morgun og stendur enn yfir. Stærstu skjálftarnir sem mælst hafa voru 3,4 rétt fyrir 6.30 og 3,7 að stærð og eru upptök þeirra í 15 til 20 kílómetrum suðvestur af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg. Sá stærri er enn óyfirfarinn.

Innlent