Spænski boltinn
245 246 247 248 249 250 251 252 253 … 268 ›
Deportivo lagði Real Madrid Deportivo vann í kvöld frækinn 2-0 sigur á Real Madrid í spænsku deildinni í leik sem sýndur var beint á Sýn. Capdevila kom Deportivo á bragðið eftir tíu mínútur með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu og Hildago Cristian tryggði sigurinn með marki á 56. mínútu. Fótbolti 7.1.2007 19:52
Dauft hjá Barcelona Barcelona þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli á útivelli gegn spræku smáliði Getafe í spænsku deildinni í dag. Hinn skemmtilegti Daniel Guiza kom Getafe yfir eftir 54 mínútur eftir glórulaus varnarmistök Rafael Marquez, en það var svo Xavi sem bjargaði Barcelona fyrir horn með glæsilegu marki úr aukaspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen var í liði Barcelona í dag en náði sér aldrei á strik frekar en félagar hans. Fótbolti 7.1.2007 17:53
Markalaust í hálfleik hjá Barcelona og Getafe Staðan í leik Getafe og Barcelona í spænsku deildinni er enn jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og er Eiður Smári Guðjohnsen í fremstu víglínu Evrópumeistaranna sem fyrr. Sýn Extra er með beina útsendingu frá leik Cardiff og Tottenham í enska bikarnum og þar er sömuleiðis markalaust eftir 45 mínútur. Fótbolti 7.1.2007 16:52
Eto´o ætlar að snúa aftur fljótlega Kamerúnski framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona hefur sett stefnuna á að snúa til baka úr meiðslum eftir tvær vikur, en það er langt á undan áætlunum lækna liðsins. Eto´o meiddist á hné í leik Barcelona og Werder Bremen í september. Fótbolti 5.1.2007 19:23
Kanoute vill verða markakóngur Malímaðurinn Freddy Kanoute hjá Sevilla segist hafa sett stefnuna á að verða markakóngur í spænska boltanum, en hann hefur skorað 14 mörk til þessa í deildinni og er markahæstur. Næstur kemur Ronaldinho hjá Barcelona með 12 mörk. Fótbolti 5.1.2007 15:12
Riquelme settur út úr liði Villarreal Argentínski miðjumaðurinn Juan Roman Riquelme er ekki í leikmannahópi Villarreal sem mætir Valencia um helgina og hefur þetta ýtt undir orðróm um að leikmaðurinn eigi í deilum við þjálfara sinn Manuel Pelligrini. Þjálfarinn segir það ekki rétt og segir Riquelme einfaldlega ekki henta leikaðferðum sínum fyrir þennan einstaka leik. Fótbolti 5.1.2007 15:06
Eto´o er ekki til sölu Txiki Beguristain, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, segir að ekki komi til greina að sóknarmaðurinn Samuel Eto´o verði seldur frá félaginu. Eto´o er að jafna sig af hnémeiðslum og hefur verið orðaður við AC Milan. Fótbolti 3.1.2007 19:18
Villarreal hefur áhuga á Saviola Forráðamenn spænska liðsins Villarreal hafa mikinn áhuga á að fá argentínska landsliðsmanninn Javier Saviola í sínar raðir og eru ekki eina liðið sem sýnt hefur leikmanninum áhuga undanfarið. Saviola hefur ekki átt fast sæti í liði Barcelona þrátt fyrir að allir séu sammála um hæfileika hans. Fótbolti 3.1.2007 18:44
Beckham að samningaborði í næstu viku Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að David Beckham muni í næstu viku ganga að samningaborðinu hjá Real Madrid þar sem nýr tveggja ára samningur verði ræddur. Gamli samningur hans rennur út í júní og mikið hefur verið rætt um óljósa framtíð fyrrum landsliðsmannsins. Fótbolti 3.1.2007 15:27
15 félög á eftir Beckham? Enska slúðurblaðið News of the World heldur því fram að 15 félög hafi sett sig í samband við umboðsmann David Beckham, með það fyrir augum að fá fyrrum enska landsliðsfyrirliðann til sín nú í janúar. Samningur Beckham við Real Madrid rennur út í sumar og honum er nú frjálst að ræða við önnur lið. Fótbolti 1.1.2007 16:29
Þjálfari Valencia vill ekki missa Ayala Quique Sanhcez Flores, stjóri Valencia, hefur beðið stjórnarmenn félagsins að endurnýja samninginn við varnarmanninn Roberto Ayala. Flores segir Argentínumanninn vera lykilleikmenn í sínu liðið, þrátt fyrir að hann hafi ekki átt sæti í byrjunarliðinu að undanförnu. Fótbolti 30.12.2006 18:41
Belletti ekki á leið til Milan Forráðamenn Barcelona hafa gefið út tilkynningu þar sem þeim sögusögnum sem segja bakvörðinn Juliano Belletti á leið til AC Milan í Janúasr er vísað til föðurhúsanna. Bróðir og umboðsmaður leikmannsins hafa sömu sögu að segja, svo að ljóst er að AC Milan þurfa að leita sér að liðsstyrk annarsstaðar. Fótbolti 30.12.2006 18:39
Tomasson vill komast burt frá Stuttgart Levante í spænsku úrvalsdeildinni er á höttunum á eftir danska landsliðsmanninum Jon Dahl Tomasson, sem er ekki lengur byrjunarliðsmaður hjá liði sínu Stuttgart og hugar sér því til hreyfings. Fótbolti 29.12.2006 18:17
Forráðamenn Real bíða ekki lengur David Beckham hefur frest fram á gamlárskvöld til að svara nýju samningstilboði frá Real Madrid, ellegar verði hann seldur frá félaginu í janúar. Þessu er haldið fram í spænskum fjölmiðlum í morgun. Fótbolti 27.12.2006 15:51
Samuel Eto´o: Ekkert mun stöðva mig Nú styttist óðum í endurkomu Samuel Eto'o hjá Barcelona og eins og áður er ekkert skort á sjálfstrausti hjá framherjanum. Hann segir í nýlegu viðtali að hann að ekkert muni stoppa sig eftir að hann hefur leik að nýju og að markakóngstitilinn á Spáni sé ekki ómögulegt markmið fyrir sig. Fótbolti 27.12.2006 10:03
Capello vill losna við Cassano Vandræðagemlingurinn Antonio Cassano er að öllum líkindum á leið frá Real Madrid í janúar, að því er spænskir fjölmiðlar halda fram í gær. Hinn 24 ára gamli framherji er í algjörri ónáð hjá forráðamönnum félagsins sem vilja ólmir losna við hann. Fótbolti 26.12.2006 20:19
Barcelona tapaði stigum Sevilla hefur enn þriggja stiga forskot á meistara Barcelona á toppnum í spænsku deildinni eftir að Börsungar náðu aðeins 1-1 jafntefli við baráttuglatt lið Atletico Madrid á Nou Camp. Ronaldinho kom Barca yfir með marki úr aukaspyrnu en Sergio Aguero jafnaði metin fyrir Atletico. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var skipt af velli eftir 67 mínútur. Fótbolti 22.12.2006 00:11
Irueta hættur hjá Real Betis Javier Irueta, þjálfari Real Betis í spænska boltanum, sagði í dag starfi sínu lausu aðeins nokkrum vikum eftir að hann fékk stuðningsyfirlýsingu frá stjórn félagsins eftir slæmt gengi. Irueta stýrði áður liði Deportivo la Corunia, en hafði verið atvinnulaus í eitt ár þegar hann tók við Betis í sumar. Engar fréttir hafa borist af hugsanlegum eftirmanni Irueta. Fótbolti 21.12.2006 18:47
Ronaldinho að fá spænskt vegabréf Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona á von á að fá spænskt vegabréf á næsta ári og mun í kjölfarið búa til pláss fyrir leikmann utan Evrópu í hópi Evrópumeistaranna. Líklegt þykir að það verði mexíkóski táningurinn Giovanni dos Santos, sem nú leikur með B-liði félagsins. Fótbolti 21.12.2006 15:44
Barcelona - Atletico Madrid í beinni á Sýn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Evrópumeistara Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Atletico Madrid í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:50. Þetta er síðasti leikurinn í spænsku deildinni fyrir jólafrí og það verður Hörður Magnússon sem lýsir leik kvöldsins eins og honum einum er lagið. Fótbolti 21.12.2006 15:58
Rijkaard tekur upp hanskann fyrir félaga sinn Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur nú tekið upp hanskann fyrir landa sinn og fyrrum liðsfélaga Marco Van Basten, landsliðsþjálfara Hollendinga, eftir að Louis van Gaal fór hörðum orðum um Van Basten í fjölmiðlum á dögunum og sagði hann lélegan þjálfara. Rijkaard lét þann gamla heyra það í gær. Fótbolti 21.12.2006 15:07
Deilur Nistelrooy og Kuyt halda áfram Hollensku framherjarnir Dirk Kuyt hjá Liverpool og Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid eru litlir vinir og hafa þeir deilt í fjölmiðlum um nokkurt skeið. Nistelrooy sendi landa sínum pillu í gær. Fótbolti 21.12.2006 12:48
Real Madrid kaupir Gago Spænska stórveldið Real Madrid hefur fengið 13,7 milljón punda tilboð sitt í miðjumanninn Fernando Gago samþykkt frá argentínska félaginu Boca Juniors. Þetta tilkynntu forráðamenn Juniors í dag og mun leikmaðurinn fara til Madrid til að skrifa undir samning í næstu viku. Gago er tvítugur og er talinn mikið efni líkt og framherjinn Gonzalo Higuain sem gekk í raðir Real í síðustu viku. Fótbolti 21.12.2006 12:38
Real Madrid niðurlægt á heimavelli Stórlið Real Madrid var niðurlægt á heimavelli sínum Santiago Bernabeu í gær þegar smálið Recreativo kom í heimsókn og vann stórsigur 3-0. Leikmenn Real spiluðu hörmulega í leiknum og enginn slakari en nýkjörinn knattspyrnumaður ársins, Fabio Cannavaro. Sevilla er á toppnum eftir auðveldan 4-0 sigur á Deportivo. Fótbolti 21.12.2006 11:51
Ronaldinho náði einni æfingu Brasilíumaðurinn Ronaldinho hefur verið á ferð og flugi undanfarna daga og náði aðeins einni æfingu fyrir leik Barcelona gegn Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 21 og er í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 20.12.2006 18:18
Cassano og Diarra settir út úr hópnum Miðjumaðurinn Mahamadou Diarra og sóknarmaðurinn Antonio Cassano voru báðir settir út úr leikmannahópi Real Madrid fyrir leikinn gegn Recreativo sem sýndur verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld. Sjónvarpsupptökur náðust af leikmönnunum um helgina þar sem þeir gagnrýndu þjálfara sinn Fabio Capello. Fótbolti 20.12.2006 17:18
Vil alls ekki missa af leiknum gegn Liverpool Argentínska undrabarnið Lionel Messi hefur ekki spilað með Evrópumeisturum Barcelona síðan í nóvember, þegar hann ristarbrotnaði í 3-1 sigurleik gegn Real Zaragoza. Messi var fyrr í vikunni valinn besti ungi leikmaður heims en hann er nú að vinna í því að jafna sig eftir aðgerð. Fótbolti 19.12.2006 20:55
Valencia - Mallorca í beinni á Sýn Extra í kvöld Leikur Valencia og Mallorca í spænska boltanum verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 19:55 í kvöld, en leikurinn verður svo sýndur á Sýn að loknum leik Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum. Annað kvöld verður svo leikur Real Madrid og Recreativo í beinni á Sýn Extra á sama tíma og leikur Newcastle og Chelsea í deildarbikarnum á Englandi sýndur beint á Sýn. Fótbolti 19.12.2006 16:28
Sveinn farinn að æfa með Barcelona Fréttir frá Spáni í dag herma að Eiður Smári Guðjohnsen hafi nú komið átta ára gömlum syni sínum Sveini að hjá yngri flokkum Barcelona þar sem hann mun æfa undir handleiðslu góðra manna. Það er því útlit fyrir að knattspyrnuhefðin sterka í fjölskyldunni haldi áfram og hver veit nema Sveinn feti í fótspor föður síns og afa og verði atvinnumaður í knattspyrnu í framtíðinni. Fótbolti 19.12.2006 14:13
Real vann nauman sigur Real Madrid vann gríðarlega mikilvægan sigur á Espanyol í spænska boltanum í kvöld þar sem Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmark liðsins. Real náði að hanga á sigrinum þó það missti Fabio Cannavaro af velli með rautt spjald eftir 54 mínútur. Sevilla er í efsta sæti deildarinnar með 34 stig, Barcelona hefur 33 og á leik til góða og Real Madrid hefur 32 stig. Fótbolti 17.12.2006 20:15