Spænski boltinn
235 236 237 238 239 240 241 242 243 … 268 ›
Milito á leið til Barcelona Forseti Barcelona lýsti því yfir í útvarpsviðtali í morgun að miðvörðurinn Gabriel Milito sé við það að ganga í raðir félagsins frá Real Zaragoza. Milito er 26 ára gamall landsliðsmaður Argentínu og hefur verið einn besti varnarmaður spænsku deildarinnar síðustu ár. Milito var nærri genginn í raðir Real Madrid árið 2003, en stóðst þá ekki læknisskoðun og því varð ekkert úr kaupunum. Fótbolti 11.7.2007 13:12
Tomasson semur við Villarreal Danski landsliðsframherjinn Jon Dahl Tomasson hefur nú formlega gengið í raðir Villarreal á Spáni þar sem hann lauk síðustu leiktíð sem lánsmaður frá þýska liðinu Stuttgart. Tomasson skoraði 4 mörk í 11 leikjum með Villarreal á síðustu leiktíð og spilar framvegis undir stjórn landa síns Michael Laudrup. Danskir fjölmiðlar fullyrða að Laudrup sé einnig að reyna að fá til sín landsliðsmanninn Dennis Rommendahl frá Charlton. Fótbolti 10.7.2007 17:38
Saviola semur við Real Madrid Bernd Schuster, nýráðinn þjálfari Real Madrid, hefur staðfest að félagið hafi náð samningum við argentínska framherjann Javier Saviola eftir að hann var látinn fara frá Barcelona á dögunum. Schuster segist hafa samið við framherjann í síðasta mánuði og segir hann hafa mikið fram að færa hjá Real Madrid. Fótbolti 10.7.2007 15:04
Real Madrid kaupir Pepe frá Porto Real Madrid hefur gengið frá kaupum á portúgalska miðverðinum Pepe frá Porto og er hann annar miðvörðurinn sem félagið fær í sínar raðir á tveimur dögum. Sagt er að kaupverðið á hinum 24 ára gamla leikmanni sé 28 milljónir evra eða 2,3 milljarðar. Fótbolti 10.7.2007 11:56
Leikmenn fylgi boðorðum Laporta Joan Laporta, forseti Barcelona á Spáni, hefur sett saman lista með boðorðum sem leikmenn liðsins munu þurfa að fylgja í hvívetna frá og með næsta tímabili, ellegar munu þeir ekki eiga von á góðu. Fótbolti 9.7.2007 19:07
Laudrup tekinn við Getafe Spænska knattspyrnufélagið Getafe beið ekki boðanna í dag þegar tilkynnt var að Bernd Schuster yrði næsti þjálfari Real Madrid og tilkynnti um leið að félagið hefði gert tveggja ára samning við dönsku goðsögnina Michael Laudrup um að gerast þjálfari liðsins. Fótbolti 9.7.2007 11:56
Schuster ráðinn þjálfari Real Madrid Real Madrid hefur ráðið Þjóðverjann Bernd Schuster sem þjálfara félagsins. Hann þjálfaði áður Getafe og náði góðum árangri með liðið en hann er 48 ára gamall. Ítalski þjálfarinn Fabio Capello var rekinn fyrr í sumar þrátt fyrir að hafa gert liðið að spænskum meisturum í fyrsta sinn í fjögur ár. Fótbolti 9.7.2007 10:06
Giuly hættur við að fara frá Barcelona Franski miðjumaðurinn Ludovic Giuly hjá Barcelona hefur tilkynnt að hann ætli ekki fara frá félaginu og ætli að berjast þar fyrir sæti sínu á næstu leiktíð. Giuly hafði ætlað að fara aftur til síns gamla félags Mónakó í Frakklandi en hafði auk þess verið orðaður við mörg lið á Englandi. Fótbolti 7.7.2007 15:00
Beckham skilaði Real 37 milljörðum Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham skilaði knattspyrnufélaginu Real Madrid tæplega 37 milljörðum króna í tekjur á þeim fjórum árum sem hann spilaði á Spáni segir markaðsfulltrúi félagsins. Fótbolti 7.7.2007 12:10
Barcelona vill halda Eiði Smára Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, greindi frá því í gær að Barcelona vildi halda landsliðsfyrirliðanum í sínum röðum. Þrálátur orðrómur hefur verið um að Eiður sé á leið aftur til Englands en hann hefur alltaf sagst vilja vera áfram í herbúðum Barcelona. Þar sem viljinn er beggja vegna eru litlar líkur á því að Eiður Smári fari í sumar. Fótbolti 5.7.2007 21:23
Launakröfur Chivu of háar fyrir Real Madrid Ítalska félagið Roma samþykkti í dag 18 milljón evra kauptilboð Real Madrid í rúmenska varnarmanninn Cristian Chivu, en útlit er fyrir að ekkert verði af kaupunum. Launakröfur varnarmannsins voru mjög háar að sögn forseta Real Madrid og því slitnaði upp úr viðræðunum. Fótbolti 5.7.2007 16:21
Calderon: Schuster ætti að koma í næstu viku Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segir að félagið muni að öllum líkindum ganga frá samningi við þjálfarann Bernd Schuster í næstu viku. Calderon hyggur á stór viðskipti á næstu dögum. Fótbolti 5.7.2007 16:07
Eiður Smári hefur alltaf þurft að berjast fyrir sínu Arnór Guðjohnsen segir að sonur sinn Eiður Smári sé ekkert óvanur því að fá harða samkeppni um stöður í þeim liðum sem hann hefur spilað með á ferlinum og ítrekar að Barcelona hafi ekki borist kauptilboð í leikmanninn. Fótbolti 5.7.2007 13:41
Laudrup klár í að taka við af Schuster Danska knattspyrnugoðsögnin Michael Laudrup hefur tjáð fjölmiðlum í heimalandi sínu að hans bíði þjálfarastaða hjá spænska liðinu Getafe og að hann væri þegar búinn að skrifa undir ef ekki væri fyrir óvissu varðandi framtíð Bernd Schuster. Fótbolti 4.7.2007 21:02
Hilderbrand ætlar sér stóra hluti hjá Valencia Þýski landsliðsmarkvörðurinn Timo Hildebrand var kynntur til sögunnar sem nýr markvörður spænska liðsins Valencia í dag. Hann stefnir ótrauður á að velta Santiago Canizares úr sessi sem markvörður númer eitt hjá liðinu eftir að hann kom frá Stuttgart í dag. Fótbolti 4.7.2007 13:41
Calderon vill Robben eða Malouda Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur gefið það út á heimasíðu félagsins að hann sé ákveðinn í að landa annað hvort Arjen Robben frá Chelsea eða Florent Malouda frá Lyon í sumar. Chelsea hefur blásið á fullyrðingar Calderon varðandi Arjen Robben, en félögin eru bæði sögð á eftir Malouda. "Þeir spila sömu stöðu og við munum því aðeins kaupa annan þeirra," sagði Calderon brattur að vanda. Fótbolti 4.7.2007 13:33
Garcia skrifar undir hjá Atletico Spænski landsliðsmaðurinn Luis Garcia hefur skrifað undir þriggja ára samning við spænska félagið Atletico Madrid, en hann fer þangað í skiptum fyrir Fernando Torres. Kaupverðið er sagt vera um 4 milljónir punda. Garcia gekk í raðir Liverpool frá Barcelona árið 2004 og skoraði 30 mörk í 121 leik fyrir félagið. Fótbolti 3.7.2007 11:59
Arnór: Eiður vill sanna sig hjá Barca Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að sonur sinn ætli sér að berjast fyrir sæti sínu í liði fyrrverandi Evrópu- og Spánarmeistaranna í Barcelona. Mikið hefur verið talað um framtíð Eiðs Smára og virðast flestir telja að framtíð hans hjá Barcelona sé ráðin, sérstaklega eftir komu Thierry Henry frá Arsenal. Fótbolti 2.7.2007 14:55
Reyes áfram hjá Real Madrid? Real Madrid hefur gefið það í skyn að félagið ætli sé að halda Jose Antonio Reyes hjá liðinu. Búist var við að félagið ætlaði ekki að kaupa leikmanninn þar sem að hann náði ekki að vinna sé inn sæti í byrjunarliðinu, en hann er í láni hjá Madrid frá Arsenal. Fótbolti 30.6.2007 21:24
Of góður til að sitja á bekknum Fótbolti Helsti sérfræðingur Sky-sjónvarpsstöðvarinnar í enska boltanum, Andy Gray, vill að Eiður Smári yfirgefi herbúðir Barcelona og komi aftur til Englands. Hann segir ekkert vit vera í því fyrir Eið að hanga áfram á Spáni. Fótbolti 29.6.2007 16:54
Abidal fjórði Frakkinn hjá Barcelona Spænska liðið Barcelona, lið Eiðs Smára Guðjohnsen, gekk í dag frá kaupum á franska landsliðsmanninum Eric Abidal frá franska liðinu Lyon. Fótbolti 29.6.2007 14:42
Mónakó í viðræðum við Giuly Þjálfari franska liðsins Mónakó segist nú vera í viðræðum við vængmanninn Ludovic Giuly hjá Barcelona og á jafnvel von á að landa honum til síns gamla félags á morgun. Giuly hefur verið hjá Barca í þrú ár en hann lék með Mónakó árin 1997-2004. "Ludo er stórt nafn í Mónakó og ég veit að allir vilja fá hann heim aftur," sagði Ricardo þjálfari liðsins. Fótbolti 28.6.2007 16:17
Getafe: Schuster er ekki að taka við af Capello Forráðamenn Getafe á Spáni gáfu út yfirlýsingu í dag þar sem félagið neitar því að Bernd Schuster sé eftirmaður Fabio Capello hjá Real Madrid. Capello var rekinn frá Real í dag og því hefur verið haldið fram lengi að Schuster taki við af honum. Hann er hinsvegar samningsbundinn Getafe út næstu leiktíð. Fótbolti 28.6.2007 16:09
Coleman tekinn við Sociedad Chris Coleman, fyrrum knattspyrnustjóri Fulham í ensku úrvalsdeildinni var í dag ráðinn þjálfari Real Sociedad í spænsku 2. deildinni. Sociedad féll úr 1. deildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins á dögunum og vildi forsetinn að sögn reyna að fá mann með nýjar hugmyndir til að taka við liðinu. Fótbolti 28.6.2007 14:21
Capello rekinn Real Madrid rak í dag þjálfarann Fabio Capello frá störfum sem þjálfara þrátt fyrir að hann stýrði liðinu til Spánarmeistaratitilsins í fyrsta skipti í fjögur ár á dögunum. "Þetta var erfið ákvörðun en stjórnin var sammála um að Capello væri ekki rétti maðurinn til að leiða félagið inn í framtíðina," sagði Predrag Mijatovic yfirmaður knattspyrnumála. Fótbolti 28.6.2007 11:57
Framtíð Capello ræðst í dag Útvarpsstöð Marca á Spáni greindi frá því í gærkvöld að Fabio Capello yrði ekki þjálfari Real Madrid áfram, en sagt er að framtíð hans ráðist á stjórnarfundi félagsins í dag. Marca segir fundinn aðeins formsatriði til að reka Capello sem á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið. Capello landaði meistaratitli í hús á dögunum, en spurningamerki hafa verið sett við leikaðferðir hans sem þykja ekki hæfa sóknarhefð félagsins. Fótbolti 28.6.2007 11:14
Van Bronckhorst farinn heim Hollenski leikmaðurinn Giovanni van Bronckhorst var í dag leystur undan samningi sínum við Barcelona og hefur samþykkt að ganga í raðir síns gamla félags Feyenoordí Hollandi. Bronckhorst framlengdi samning sinn við Barcelona í desember en í honum var ákvæði sem leyfði honum að snúa aftur til Feyenoord ef félagið vildi fá hann. Fótbolti 27.6.2007 13:36
Forlan fer líklega frá Villarreal Talið er víst að framherjinn Diego Forlan muni fara frá Villarreal í sumar eftir að umboðsmaður hans átti fund með stjórn félagsins til að ræða tilboð sem borist hafa í hann undanfarið. Forlan er nú að spila með Úrúgvæ í Copa America en framtíð hans ræðst eftir keppnina. Sunderland og Arsenal eru talin hafa áhuga á honum, auk liða á Spáni. Fótbolti 27.6.2007 11:29
Coleman að taka við Sociedad? Chris Coleman, fyrrum knattspyrnustjóri Fulham í ensku úrvalsdeildinni, er nú sagður vera í viðræðum við forráðamenn Real Sociedad á Spáni um að gerast þjálfari liðsins. Spænska félagið á að hafa sett sig í samband við Coleman eftir að hafa ráðfært sig við fyrrum þjálfara sinn John Toshack. Coleman staðfesti að hann væri í viðræðum við Baskaliðið í samtali við The Sun. Fótbolti 27.6.2007 10:57
Henry: Meiðslin í fyrra geta hjálpað mér Thierry Henry gat lítið spilað með Arsenal á síðustu leiktíð vegna meiðsla en hann fullvissar stuðningsmenn Barcelona um að hann sé enginn meiðslakálfur. Hann segir þvert á móti að fjarvera hans á síðustu leiktíð geti hjálpað honum á næsta tímabili. Fótbolti 26.6.2007 16:35