Hádegisfréttir Bylgjunnar

Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni
Í hádegisfréttum verður rætt við formann Allsherjar- og menntamálanefndar sem segir að nefndin hafi farið í marga hringi í meðferð sinni á frumvarpi um sanngirnisbætur.

Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu
Ríkissáttasemjari hefur boðað samningsnefndir Sameykis, Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Samtaka atvinnunefndir til fundar í Karphúsinu á hádegi. Formaður Sameykis er bjartsýnn á að sátt náist í deilunni. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi
Samkvæmt nýrri Maskínukönnun líst yfir 40 prósent landsmanna illa á Katrínu Jakobsdóttur sem forsetaefni. Almannatengill segir niðurstöðurnar staðfesta að það sé engin óskastaða að vera stjórnmálamaður í framboði. Þá telur hann Höllu Hrund Logadóttur eiga langt í land með að tryggja sér forsetaembættið.

Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar
Í hádegisfréttum verður rætt við Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra um nýtt lagafrumvarp sem samþykkt var í ríkisstjórn í morgun.

Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný
Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á málefnum Grindvíkinga en í morgun opnaði bakarí bæjarins og veitingastaður.

Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli
Formaður Samtakanna '78 segir ekki slæmt að kynhneigð forsetaframbjóðenda sé til umræðu. Það sé hins vegar ekki gott að gerð sé tilraun til að gera frambjóðendur tortyggilega vegna samkynhneigðar. Rætt verður við formann Samtakanna í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt
Í hádegisfréttum verður rætt við Bjarkeyju Olsen matvælaráðherra sem hefur nú fallist á að breyta umdeildu ákvæði í nýju frumvarpi um lagareldi sem hlotið hefur mikla gagnrýni síðustu daga.

Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands
Í hádegisfréttum fjöllum við um úrskurð landskjörstjórnar frá því í morgun þess efnis að ellefu framboð til forseta hafi talist gild.

Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust
Ný stór gosprunga getur opnast á hverri stundu og fyrirvaralaust við Sundhnúksgíga að sögn fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að fara ekki fótgangandi að núverandi gosi.

Forsetaefni streymdu í Hörpu
Í hádegisfréttum fjöllum við um atburðinn í Hörpu nú fyrir hádegið þar sem forsetaefni streymdu að og skiluðu formlega inn framboði til embættis Forseta Íslands.

Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið
Formaður atvinnuveganefndar segist staldra við ýmsa þætti umdeilds frumvarps um lagareldi, þó að í því felist einnig úrbætur. Of snemmt sé að segja til um það hvort frumvarpið breytist mikið í meðförum nefndarinnar, sem tekur það fyrir á fundi á morgun.

Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun
Í hádegisfréttum fjöllum við um nýjustu verðbólgutölurnar sem bárust í morgun.

Tvö manndráp á skömmum tíma
Í hádegisfréttum fjöllum við um rannsókn lögreglu á meintu manndrápi í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Lögregla hefur að mestu lokið vettnvangsrannsókn.

Viðamiklar breytingar gerðar á örorkulífeyriskerfinu
Í hádegisfréttum verður rætt við félags- og vinnumarkaðsráðherra sem kynnir í dag viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem eiga að fela í sér bætta þjónustu, hvata til atvinnuþátttöku og betri kjör.

Bárðarbunga, manndrápsrannsókn og lundar á fyrsta farrými
Jarðskjálftinn sem mældist í Bárðarbunguöskjunni í morgun gæti verið til marks um að eldstöðin sé að taka við sér. Þetta segir náttúruvársérfræðingur sem mælir aukna virkni á svæðinu. Skjálftinn var 5,4 að stærð og sá stærsti sem mælst hefur í Bárðarbungu frá eldgosinu í Holuhrauni árið 2015.

Jarðhræringar, sprengjuhótun og kíghósti
Eldfjallafræðingur telur ekkert benda til þess að nýtt eldgos sé við það að hefjast þrátt fyrir gögn Veðurstofunnar. Almannavarnir juku viðbúnað sinn í gær vegna hættu á öðru gosi.

Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum
Ein af töskunum sjö sem þjófarnir í Hamraborg höfðu á brott með sér úr sendiferðabíl Öryggismiðstöðvarinnar fyrir tæpum fjórum vikum er ófundin. Sú var stúfull af peningum. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna
Í hádegisfréttum fjöllum við um nýja könnun Maskínu um fylgi forsetaframbjóðenda. Katrín Jakobsdóttir er með marktæka forystu. Sjö komma fjögurra prósentustiga munur er á fylgi hennar og Baldurs Þórhallssonar.

Öryrkjar gagnrýna frestun á lagabreytingu og FÍB vill grisja bílastæðafrumskóginn
Í hádegisfréttum heyrum við í varaformanni Öryrkjabandalagsins sem gagnrýnir þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta breytingum á örorkulífeyriskerfinu.

Fjármálaáætlun kynnt og vantraust lagt fram
Í hádegisfréttum segjum við frá fjármálaáætlun sem nýr fjármálaráðherra kynnti í morgun.

Fjárlaganefnd bíður enn svara um samskipti ráðuneytisins og Bankasýslunnar
Í hádegisfréttum verður rætt við nefndarmann í fjárlaganefnd sem segir að nefndinni hafi enn engin svör borist um samskipti fjármálaráðuneytisins og bankasýslunnar í aðdraganda kaupa Landsbankans á TM.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna árásar Íran á Ísrael í gærkvöldi. Fundurinn fer fram síðdegis og er haldinn að beiðni Gilard Erdan, sendiherra Ísrael við Sameinuðu þjóðirnar. Við förum yfir stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Litlu munar á fylgi forsetaframbjóðandanna Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt nýrri könnun. Prófessor í stjórnmálafræði segir þó geta skipt sköpum að kjósendahópur Katrínar líklegri til að mæta á kjörstað þar sem um eldra fólk sé að ræða. Rætt verður við hana í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Nýr matvælaráðherra telur ekki tilefni til að breyta búvörulögum
Nýr matvælaráðherra ætlar ekki að aðhafast vegna þeirrar gagnrýni sem komið hefur fram á nýsamþykkt búvörulög, málið sé afgreitt og þar við sitji.

Búvörulögin áfram þrætuepli á þingi
Í hádegisfréttum fjöllum við um búvörulögin umdeildu en þau voru til umræðu á Alþingi í morgun.

Lyklaskiptin gengu sinn vanagang
Í hádegisfréttum fylgjumst við með lyklaskiptunum í kjölfar þess að breytingar voru í gær gerðar á ríkisstjórnni.

Ný ríkisstjórn í burðarliðnum
Myndun nýrrar ríkisstjórnar verður fyrirferðarmesta málið í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag.

Forystufólk stjórnarflokkanna situr enn á rökstólum
Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á stjórnarmyndunarviðræðunum eftir að Katrín Jakobsdóttir ákvað að hætta í stjórnmálum og bjóða sig fram til embættis forseta.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gengur á fund Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands á Bessastöðum klukkan tvö í dag. Þar mun hún biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Við heyrum í Katrínu og förum yfir þá fordæmalausu stöðu sem uppi er í íslenskum stjórnmálum í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Framtíð ríkisstjórnarinnar er enn í óvissu en leiðtogar funda í dag. Formaður Flokks fólksins væntir þess að kosið verði í haust. Farið verður yfir stöðu mála í hádegisfréttum.