Ástin á götunni

Blikar missa einn sinn besta leikmann í glænýtt lið
Hildur Antonsdóttir hefur samið við hollenska félagið Fortuna Sittard. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum Fortuna sem og Breiðabliks en hollenska félagið kaupir Hildi af Blikum.

„Kom ekkert annað til greina, þetta skiptir svo miklu máli“
Arnar Grétarsson, þjálfari KA í Bestu deild karla í fótbolta, er gríðarlega ánægður með nýja aðstöðu KA á Akureyri. Þó enn sé nokkuð í land að félagið verði með aðstöðu sem jafnist á við þær bestu hér á landi er um að ræða skref í rétta átt. Arnar lagði sjálfur hönd á plóg.

KV kveður Sigurvin sem verður aðstoðarþjálfari Eiðs Smára hjá FH
Sigurvin Ólafsson mun hætta sem aðalþjálfari KV í Lengjudeild karla í fótbolta og sem aðstoðarþjálfari KR í Bestu deild karla til að taka við starfi aðstoðarþjálfara FH sem leikur í sömu deild og KR.

„Eigum heima í þessari deild“
Guðmunda Brynja, framherji KR var að vonum mjög glöð eftir góðan 1-3 sigur í Keflavík í rigningu og roki.

Botnliðið sótti stigin þrjú á Selfossi
Afturelding gerði sér lítið og sigraði Selfoss á þeirra eigin heimavelli, 0-1, í 10. umferð Bestu-deildarinnar.

Umfjöllun: Þór/KA 0-4 Breiðablik | Blikar einu stigi á eftir Íslandsmeisturunum
Breiðablik vann 0-4 sigur á Þór/KA í fyrsta leik 10. umferðar Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í dag.

Myndir: Öllavöllur vígður við hátíðlega athöfn í Reykjanesbæ í minningu Örlygs Sturlusonar
Öllavöllur var formlega vígður klukkan 18 í dag við Fjörheima í Reykjanesbæ. Völlurinn er hinn glæsilegasti með allri nýjustu tækni og ætlaður öllum sem vilja spila og æfa sig í körfubolta. Öllavöllur er byggður til að heiðra minningu Örlygs Arons Sturlusonar sem lést langt fyrir aldur fram í janúar árið 2000.

Mögnuð tölfræði markvarðarins Murphy
Samantha Murphy er heldur betur betri en engin. Markvörðurinn hefur verið hreint út sagt mögnuð í marki Keflavíkur í Bestu deild kvenna á leiktíðinni.

Breiðablik víxlar Evrópuleikjum
Breiðablik hefur samþykkt beiðni Santa Coloma frá Andorra að víxla heimaleikjum liðanna í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta. Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Stúkan um brottrekstur Óla Jóh: „Verið kornið sem fyllti mælinn“
Ólafi Jóhannessyni var sagt upp störfum sem þjálfara FH í Bestu deild karla í fótbolta eftir 2-2 jafntefli við Leikni Reykjavík í Bestu deild karla í gærkvöld. Farið var yfir brottreksturinn í Stúkunni.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Breiðablik 3-2 | Valsmenn fyrstir til að vinna Blika
Valsmenn urðu í kvöld fyrsta liðið til að taka stig af Breiðablik er liðið vann dramatískan 3-2 sigur á Hlíðarenda í 9. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta. Patrick Pedersen tryggði Valsmönnum stigin þrjú með marki í uppbótartíma.

Umfjöllun og viðtöl: FH-Leiknir R. 2-2 | Leiknismenn stálu stigi
FH og Leiknir gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í Kaplakrika í 9. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. Maciej Makuszewski reyndist hetja Leiknismanna þegar hann jafnaði metin fyrir gestina í uppbótartíma.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Stjarnan 2-2 | Jafnt í fjörugum leik suður með sjó
Keflavík og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Stjörnumenn komust yfir í tvígang en heimamenn sýndu karakter og komu til baka í bæði skiptin.

Umfjöllun og viðtöl: KA-Fram 2-2 | KA-menn björguðu stigi í fyrsta leik á nýjum heimavelli
KA tók á móti Fram á nýjum heimavelli í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Lokatölur 2-2 í leik þar sem gestirnir voru 0-2 yfir þar til rúmar tíu mínútur voru til leiksloka.

Valskonur áberandi í uppgjöri fyrri hluta tímabilsins
Besta deild kvenna í fótbolta er hálfnuð og því ákváðu Bestu mörkin að fara yfir fyrri helming mótsins og gera hann upp. Var lið fyrri helmingsins valið, besti leikmaðurinn, besta markið og besta stoðsendingin.

Heimir enn við stjórnvölin en enginn Ísak Snær: Mjög forvitnilegur leikur á Hlíðarenda í kvöld
Breiðablik heimsækir Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Gestirnir eru líkt og alþjóð veit með fullt hús stiga á toppi deildarinnar á meðan Valsmenn hafa átt erfitt uppdráttar í sumar. Markahæsti leikmaður deildarinnar, Ísak Snær Þorvaldsson, verður ekki með Blikum í kvöld en hann tekur út leikbann.

„Hann brýtur á KR-ingnum sem verður til þess að hann sparkar í andlitið á Árna“
Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA, fékk vænan skurð þegar KR jafnaði metin í uppbótartíma er liðin mættust á Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta á miðvikudag.

Sjáðu markaflóðið í Vesturbæ og mörk Víkinga í Eyjum
Alls voru níu mörk skoruð í aðeins tveimur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta á miðvikudag. KR og ÍA gerðu 3-3 jafntefli á meðan Víkingar lögðu ÍBV 3-0 í Vestmannaeyjum.

Danny Guthrie gjaldþrota
Danny Guthrie, fyrrum leikmaður Fram, Newcastle og Liverpool, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota í Bretlandi eftir að honum tókst ekki að endurgreiða lán sem hann tók árið 2019. Guthrie kaus frekar að endurgreiða veðmálaskuldir en að greiða upp lánið.

Dagskrá í dag: Besta-deildin, golf, rafíþróttir og úrslit í NBA
Fjórir leikir í Bestu-deildinni, þrjú golfmót, úrslitaleikur í NBA og rafíþróttir eru á meðal þeirra útsendinga sem fylla sport rásir Stöðvar 2 frá morgni til kvölds í dag.

Sjáðu uppgjörið úr 9. umferð Bestu-deildar
Helena Ólafsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir gerðu upp 9. umferð Bestu-deildar kvenna í gær. Þær völdu lið umferðarinnar, besta leikmanninn og besta markið í uppgjörsþættinum Bestu mörkin.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR 3-3 ÍA | Sex marka spennutryllir í Vesturbænum
KR og ÍA skyldu jöfn dramatískum leik í Vesturbæ. KR-ingar jöfnuðu metin á 94 mínútu með sjálfsmarki frá Alex Davey. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Víkingar skoruðu öll mörkin í þriggja marka leik á móti HK | FH með stórsigur gegn Grindavík
Þrír leikir fóru fram í kvöld í Lengjudeild kvenna í fótbolta. Víkingar knúðu fram eins marks sigur á HK í Víkini þar sem heimakonur skoruðu öll þrjú mörkin í 2-1 sigri. FH fór auðveldlega í gegnum Grindavík í Kaplakrikanum þar sem heimakonur unnu 6-0 sigur. Fylkir sótti svo þrjú stig á Kópavogsvelli með 0-2 sigri.

„Heimir er Eyjamaður í húð og hár og vill leggja sitt af mörkum“
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar jákvæður eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Víkingi Reykjavík.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Víkingur 0-3 | Fimmti sigur Víkings í síðustu sex leikjum
Víkingur Reykjavík vann sannfærandi útisigur á ÍBV 0-3. Gestirnir spiluðu afar vel í fyrri hálfleik sem skilaði tveimur mörkum. Eyjamenn voru töluvert betri í seinni hálfleik en nýttu ekki færin sín og Ari Sigurpálsson kláraði síðan leikinn er hann skoraði þriðja mark Víkings.

Hrósuðu Hildi í hástert: Varnarpressan fram á við orðin miklu betri
„Mér fannst Breiðablik mikið sterkara í þessum leik. Maður sér líka að það vantar kannski smá breidd í liði Þróttar,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi, Bestu markanna um leik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta.

KR með gríðarlegt tak á fornu fjendunum frá Akranesi
Besta deild karla í fótbolta hefst að nýju í kvöld eftir dágóða pásum sökum leikja íslenska A- og U-21 árs landsliðsins. Íslands- og bikarmeistarar Víkings heimsækja Vestmannaeyjar á meðan KR tekur á móti ÍA í Vesturbænum.

Breiðablik vildi áfrýja leikbanni Omar Sowe: Beiðninni hafnað
Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, óskaði eftir að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í máli Omar Sowe. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku af atviki sem átti sér stað í leik Leiknis Reykjavíkur og Breiðabliks.

Elín Metta fór meidd af velli og EM mögulega í hættu
Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, meiddist er Valur heimsótti Selfoss í Bestu deild kvenna á þriðjudag. Gestirnir frá Hlíðarenda unnu 1-0 útisigur en Elín Metta þurfti að fara meidd af velli eftir rúmlega klukkustundarleik.

„Auðvitað þarf að fagna góðum sigrum“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, varð eðlilega sáttur með 3-0 útisigur liðsins gegn Þrótti í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld.