Íslenski körfuboltinn

Signý: Erfitt að segja hvað fór úrskeðis
Signý Hermannsdóttir, leikmaður KR, var vitanlega svekkt eftir tapið fyrir Keflavík í úrslitum Powerade-bikarkeppninnar í körfubolta í dag, 72-62.

Birna valin best - í sigurvímu
Birna Valgarðsdóttir var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins í Powerade-bikarkeppni kvenna þar sem Keflavík vann KR, 72-62.

Keflavík bikarmeistari í tólfta sinn
Keflavík varð í dag bikarmeistari kvenna í körfubolta eftir sigur á KR í úrslitaleik Powerade-bikarkeppninnar, 72-62.

Ólafur: Helgi er búinn að breyta liðinu í algjört varnarlið
KR og Grindavík spila til úrslita í Poweradebikar karla í Laugardalshöllinni í dag og hefst úrslitaleikur liðanna klukkan 16.00. Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson er eins og margir í liðinu að fara spila annað árið í röð bikarúrsliitaleik en Grindavík tapaði fyrir Snæfelli í úrslitaleiknum í fyrra.

Fannar: Eini titillinn sem ég á eftir að vinna með KR
KR og Grindavík spila til úrslita í Poweradebikar karla í Laugardalshöllinni í dag og hefst úrslitaleikur liðanna klukkan 16.00. Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, segir að KR-liðið ætli sér að enda 20 ára bið og koma loksins með bikarinn aftur í Vesturbæinn.

Birna: Ég ætla rétt að vona að við höfum lært af þessum töpum
Keflavík og KR spila til úrslita í Poweradebikar kvenna í Laugardalshöllinni í dag og hefst úrslitaleikur liðanna klukkan 13.30. Keflvíkingurinn Birna Valgarðsdóttir er að fara að spila sinn níunda bikarúrslitaleik í Höllinni í dag.

Hildur: Gaman að spila á móti Keflavík
Keflavík og KR spila til úrslita í Poweradebikar kvenna í Laugardalshöllinni í dag og hefst úrslitaleikur liðanna klukkan 13.30. Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, hefur spilað fimm bikaúrslitaleiki og unnið bikarinn þrisvar sinnum.

Enginn hefur farið úr Höllinni með tvö silfur
Fjórir menn hafa náð því að vinna tvo bikarúrslitaleiki á sama degi í sögu bikarkeppni körfuboltans.

Allir spá karlaliði KR sigri í dag
Fréttablaðið fékk fulltrúa frá liðum í Iceland Express deildum karla og kvenna til þess að spá fyrir um hverjir yrðu bikarmeistarar í Laugardalshöllinni í dag. Allir fimm sem spáðu í karlaleikinn spá KR sigri en þrír af fimm spá KR sigri í kvennaleiknum.

Pálína getur orðið fyrst til að vinna alla titla með tveimur félögum
Pálina Gunnlaugsdóttir, leikmaður kvennaliðs Keflavíkur, getur í dag orðið fyrst allra til þess að vinna alla fimm titlana sem eru í boði í íslenskum körfubolta með tveimur félögum.

Smith farinn frá Njarðvík
Bandaríkjamaðurinn Christopher Smith hefur leikið sinn síðasta leik með Njarðvík í Iceland Express-deild karla þar sem félagið hefur sagt upp samningi leikmannsins.

Þór Þorlákshöfn upp í úrvalsdeild karla í körfubolta
Þór úr Þorlákshöfn tryggði sér í kvöld sæti í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir 20 stiga sigur á Valsmönnum, 99-79, í Þorlákshöfn. Þórsliðið er búið að vinna alla fjórtán leiki sína á tímabilinu og ekkert lið getur lengur náð þeim að stigum.

Keflavíkurkonur í bikaúrslitaleikinn eftir spennuleik
Keflavíkurkonur komust í bikarúrsltialeikinn þriðja árið í röð og í 19. sinn frá upphafi eftir þriggja stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík, 72-69, í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld.

Njarðvík nálægt því að vinna meistarana
Njarðvíkingar fóru illa að ráði sínu þegar þeir mættu Íslands- og bikarmeisturum Snæfells í Stykkishólmi í Iceland Express-deild karla kvöld. Lokatölur voru 92-91.

Reykjanesið vann Stjörnuleik kvenna
Keflvíkingurinn Jaquline Adamshick var valin maður leiksins en hún skoraði 17 stig, sendi 11 stoðsendingar og tók 11 fráköst. Glæsileg þreföld tvenna þar á ferðinni.

KR fær Tindastól í heimsókn í bikarnum
Dregið var í undanúrslit í Powerade-bikarkeppni karla og kvenna í dag en útlit er fyrir spennandi viðureignir um sæti í sjálfum úrslitaleiknum.

Fátt óvænt í bikarnum
Hamar, Keflavík, Njarðvík og KR komust um helgina í undanúrslit í Powerade-bikarkeppni kvenna.

Haukar slógu Njarðvíkinga úr leik í bikarnum
Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla í kvöld en þá tryggðu Haukar og Tindastóll sér sæti í undanúrslitum keppninnar.

KR komið í undanúrslit
KR vann í dag Fjölni í 8-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla, 82-74, og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum keppninnar.

Mynd um leið Snæfells að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum
Snæfellingar hafa gefið út heimildamyndina "Leið Okkar Allra" sem eru um körfuboltaliðið þeirra og leið liðsins að fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins síðasta vor. Þetta var í fyrsta sinn sem Íslandsmeistaratitilinn í karlakörfunni fór norður fyrir Esjuna.

Bendedikt þjálfar 20 ára landsliðið sem fer í Evrópukeppnina
Benedikt Guðmundsson. þjálfari 1. deildarliðs Þórs úr Þorlákshöfn, hefur verið ráðinn þjálfari U-20 ára landsliðs karla. Stjórn KKÍ hefur síðan ákveðið að senda U-20 ára landsliðið karla í Evrópukeppnina 2011. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ.

Hamar og KR áfram í Poweradebikar kvenna
Hamar og KR komust í kvöld í átta liða úrslit Powerade-bikars kvenna. Hamarskonur héldu sigurgöngu sinni áfram með 17 stiga sigri á 1. deildarliði Vals, 67-50 en KR varð fyrsta liðið til þess að vinna 1. deildarlið Stjörnunnar í vetur þegar KR-konur unnu 30 stiga sigur í Garðabænum, 76-46.

Haukar fyrstir til að vinna Þorlákshafnar-Þórsara í vetur
Haukar slógu í kvöld lærisveina Benedikts Guðmundssonar í Þór Þorlákshöfn út úr 16 liða úrslitum Powerade-bikars karla með tíu stiga sigri, 84-74 í æsispennandi leik á Ásvöllum. Þetta var fyrsta tap Þórsliðsins á tímabilinu en liðið er búið að vinna sjö fyrstu leiki sína í 1. deild karla.

Umfjöllun: Fjölnir kláraði bensínlaust lið ÍR í 4. leikhluta
Fjölni vann góðan sigur , 112-90, gegn ÍR í 16-liða úrslitum í Powerade-bikarnum í kvöld en leikið var í Seljaskóla. Gestirnir voru sterkari nánast allan leikinn og léku á köflum frábæran körfubolta með Ægi Steinarsson í broddi fylkinga en hann skoraði 21 stig og gaf 11 stoðsendingar.

Skallagrímur rétt marði b-lið Njarðvíkur í bikarnum
Gömlu kempurnar í b-liði Njarðvíkur létu 1. deildarlið Skallagríms hafa fyrir sigrinum í 16 liða úrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta í kvöld. Skallagrímsmenn unnu að lokum tveggja stiga sigur, 90-88 og eru því komnir áfram í átta liða úrslit.

Botnlið ÍR vann óvæntan sigur á Hamar í Seljaskóla
Botnlið ÍR-inga kom á óvart í kvöld með fimm stiga sigri á Hamar, 89-84, í 9. umferð Iceland Express deildar karla í Seljaskólanum í kvöld. ÍR var náði 20 stiga forskot fimm mínútum fyrir leikslok en Hamar var nálægt því að vinna muninn upp á síðustu fjórum mínútum leiksins.

Snæfell hafði betur í grannaslagnum
Það var boðið upp á grannaslag í 32-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla þegar að 2. deildarlið Víkings frá Ólafsvík tók á móti Íslands- og bikarmeisturum Snæfells.

Sævaldur: Erum að byggja upp nýtt lið
„Breiðablik teflir fram mjög breyttu liði frá síðustu leiktíð og við gáfum yngri leikmönnunum tækifæri á að spreyta sig í dag. Við erum að byggja upp nýtt lið,“ segir Sævaldur Bjarnason, þjálfari Breiðabliks, sem beið lægri hlut fyrir Tindastól, 49-78 í 32-liða úrslitum Powerade-bikarins.

Tindastóll áfram í bikarnum
Tindastóll vann í kvöld sigur á 1. deildarliði Breiðabliks í 32-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla, 78-49. Þetta var fyrsti sigur Tindastóls á tímabilinu.

Keflavík lagði KR
Keflavík vann góðan sigur á KR í Iceland Express-deild karla en Grindavík er enn ósigrað á toppi deildarinnar.