Valur

Umfjöllun, myndir og viðtöl: Valur - Keflavík 79-77 | Valskonur stöðvuðu Keflavíkurmulningsvélina
Valskonur sýndu ótrúlegan karakter og færðu Keflavíkurkonum sinn annan ósigur í vetur í dramatískum leik. Téa Adams skoraði sigurkörfuna þegar 0,7 sekúndur voru eftir.

Hjalti Þór: „Varnarlega áttu þær voða fá svör“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali fyrir leik Vals og Keflavíkur í Subway-deild kvenna að það yrði skandall ef Keflavíkurliðið myndi tapa fleiri leikjum í vetur. Hann gerði sér svo lítið fyrir og bauð upp á þennan skandal ásamt sínum konum en Valur fór með sigur af hólmi, 79-77, í æsispennandi leik.

Hildur Björg setur körfuboltaskóna á hilluna
Landsliðskonan Hildur Björg Kjartansdóttir hefur ákveðið að ljúka körfuboltaferli sínum en þetta tilkynnti hún á samfélagsmiðlum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 84-79 | Stjörnumenn náðu fram hefndum eftir tapið í fyrra
Stjarnan er komin í undanúrslit VÍS-bikars karla í körfubolta. Stjörnumenn lögðu Val í 8-liða úrslitum en liðin mættust í úrslitum á síðustu leiktíð þar sem Valur hafði betur. Því má segja að Stjarnan hafi náð fram hefndum í dag.

Valsmenn staðfesta komu Jónatans Inga
Knattspyrnudeild Vals hefur komist að samkomulagi við Jónatan Inga Jónsson um að hann muni leika með liðinu í Bestu-deild karla.

Valur og Fram með stórsigra
Íslandsmeistarar Vals og Fram unnu stórsigra í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Þá vann ÍBV góðan heimasigur í Vestmannaeyjum.

Umfjöllun: Valur - Grindavík 49-61 | Grindavík í undanúrslitin
Grindavík er komið í undanúrslit í VÍS bikarnum eftir sigur á Val í átta liða úrslitunum í kvöld.

Jónatan Ingi að ganga til liðs við Val
Kantmaðurinn Jónatan Ingi Jónsson er að ganga í raðir Vals fyrir komandi tímabil í Bestu-deild karla í knattspyrnu.

Joshua Jefferson: „Við erum með fullt af gaukum hérna sem vilja vinna“
Valsmenn áttu mjög góðan dag gegn lánlausum Keflvíkingum í kvöld þegar liðin mættust í 14. umferð Subway deildar karla í körfubolta að Hlíðarenda. Leikar enduðu 105-82 og stóran þátt í því hve vel gekk hjá Val átti Joshua Jefferson. Kappinn skoraði 31 stig og setti upp sýningu í þriðja leikhluta.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Keflavík 105-82 | Valur vann toppslaginn
Valsmenn kjöldrógu Keflvíkinga þannig að leikurinn sem átti að vera stórleikur umferðarinnar varð hvorki fugl né fiskur. Lokatölur 105-82 á Hlíðarenda og Valsmenn styrkja stöðu sína á toppi Subway deildar karla í körfuknattleik.

KR-ingar skoruðu fimm mörk hjá Val og byrja vel undir stjórn Ryder
KR vann 5-2 sigur á Val í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í Egilshöllinni í dag en leikurinn fór fram á mjög óvenjulegum tíma eða klukkan 11.00 á virkum degi.

Ræddu heljarmennið Kristófer Acox: „Ætlar bara að vera eins og LeBron James“
Kristófer Acox fór mikinn þegar Valur lagði nýliða Hamars í Hveragerði í Subway-deild karla á dögunum. Valur vann öruggan 22 stiga sigur þar sem Kristófer skoraði 26 stig og tók 10 fráköst.

Þrenna hjá Pedersen og Fylkir valtaði yfir Fjölni
Valur og Fylkir unnu stóra sigra í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í dag. Patrick Pedersen var á skotskónum hjá Val gegn Þrótti.

Birkir Már tekur síðasta dansinn á Hlíðarenda
Birkir Már Sævarsson mun leika með Val í Bestu deildinni næsta sumar. Birkir Már verður fertugur í nóvember en samningurinn er til eins árs.

Valur sækir varnarmanninn Jakob Franz
Jakob Franz Pálsson hefur gengið frá fjögurra ára samning við Val í Bestu deild karla. Hann kemur til félagsins frá Venezia á Ítalíu en eyddi síðasta tímabili á láni hjá KR.

Valur og ÍBV með örugga sigra
Valur og ÍBV unnu einkar örugga sigra í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Hamar - Valur 89-111 | Fimmti sigur Vals í röð
Valur vann 22 stiga útisigur gegn Hamri 89-111. Þetta var fimmti sigur Vals í röð sem er á toppnum í Subway deildinni.

„Ætluðum að kvitta fyrir hlutina sóknarlega í stað þess að spila vörn“
Valur vann 22 stiga útisigur gegn Hamri 89-111. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ánægður með sóknarleikinn en fannst ýmislegt vanta upp á í varnarleiknum.

„Hún var eins og sprengja inn á vellinum“
Elísabet Thelma Róbertsdóttir átti frábæra innkomu í Íslandsmeistaralið Vals í Subway deild kvenna í körfubolta í gær þegar liðið kom til baka með frábærum lokaleikhluta og vann langþráðan sigur.

Hanna frá Val í FH
FH-ingar hafa styrkt sig fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna en Hanna Kallmaier hefur gert tveggja ára samning við Fimleikafélagið.

Hjalti: Gott að finna gleði og ánægju aftur
Valur komst aftur á sigurbraut eftir fimm stiga útisigur gegn Fjölni 75-80. Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir : Fjölnir - Valur 75-80 | Íslandsmeistararnir aftur á sigurbraut
Íslandsmeistarar Vals komust aftur á sigurbraut eftir fimm stiga útisigur gegn Fjölni 75-80. Valur hafði tapað fjórum leikjum í röð og sigurinn var afar kærkominn.

Benedikt Óskarsson sagður á leið til Kolstad
Benedikt Gunnar Óskarsson, leikmaður Vals og besti sóknarmaður Olís deildar karla á síðasta tímabili, er sagður á leið til norska meistaraliðsins Kolstad. Greint er frá því að hann muni klára tímabilið með Val og færa sig um set næsta sumar.

Saga Einars hvatning: Meðan aðrir voru með lóð var hann með prik
Einar Þorsteinn Ólafsson spilaði aldrei fyrir yngri landslið Íslands og var um tíma nálægt því að skipta alfarið yfir í körfubolta, en nú er hann á leið á sitt fyrsta stórmót; EM í handbolta í Þýskalandi.

Leik lokið: Valur - Þór Þ. 90-82 | Valur hafði betur gegn Þór í toppslag deildarinnar
Valur lagði Þór Þorlákshöfn að velli, 90-82, þegar liðin leiddu saman hesta sína í toppslag Subway-deildar karla i körfubolta í Origo-höllinni að Hlíðarenda í kvöld.

Stjarnan vann á Hlíðarenda og öruggt hjá Njarðvík
Stjarnan heldur áfram að gera það gott í Subway-deild kvenna. Liðið vann í kvöld góðan útisigur á Íslandsmeisturum Vals. Þá vann Njarðvík stórsigur á Þór frá Akureyri.

Helena í Valstreyju þegar hún snýr aftur
Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára í fótbolta kvenna, Valsarar, hafa tryggt sér krafta Helenu Óskar Hálfdánardóttur næstu tvö árin. Hún kemur til félagsins frá helstu keppinautunum í Breiðabliki.

Stefán klár í samkeppni við einn þann besta á landinu
Valsmenn hafa klófest markvörðinn Stefán Þór Ágústsson en þessi 22 ára gamli markvörður kemur til félagsins frá Selfossi.

Birta í markinu hjá nýliðunum
Birta Guðlaugsdóttir hefur skrifað undir samning til tveggja ára við knattspyrnudeild Víkings í Reykjavík. Þessi 22 ára markvörður verður því með nýliðunum í Bestu deildinni á komandi leiktíð.

„Ég veit ekki hvort ég hefði annars sagt frá þessu“
Ein úr Íslandsmeistaraliði Valsmanna faldi ástæðuna fyrir því að hún missti af mikilvægum leik í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.