HM 2021 í handbolta

Segir íslenska liðið hafa verið taugaveiklað
Handboltasérfræðingurinn og íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson, Gaupi, segir íslenska landsliðið hafa verið taugaveiklað í leiknum við Portúgal í gær, í 25-23 tapi Íslands á HM.

Smit í HM-búbblunni hjá Dönum
Kórónuveirusmit hefur nú greinst í „búbblunni“ á HM í handbolta, í röðum heimsmeistara Danmerkur sem spila sinn fyrsta leik á mótinu í dag.

Norsk handboltahetja um smit á HM: Slökkvið ljósin og sendið fólkið heim
Egyptar eru í miklum vandræðum með að halda HM-búbblunni sinni hreinni og mörgum þjóðum á mótinu finnst lítið vit vera í því sem er í gangi í smitvörnum og öðrum þeim tengdu.

Leikmenn þriggja liða og portúgalskur blaðamaður með smit við komuna á HM
Tvö lið urðu að hætta við HM í handbolta vegna kórónuveirusmita, eitt ákvað að senda varalið vegna smithættu, og í gærkvöld var greint frá því að þrjú lið hefðu ferðast til Egyptalands með smitaða leikmenn.

Umfjöllun: Portúgal - Ísland 25-23 | Enn tapar Ísland fyrsta leik á HM
Ísland varð að sætta sig við tap gegn Portúgal, 25-23, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi, í þriðja leik liðanna á níu dögum.

Einkunnir strákanna okkar á móti Portúgal: Bjarki og Ýmir bestir í kvöld
Vísir fór eins og vanalega yfir frammistöðu íslensku strákanna í leiknum í kvöld.

„Þarf að skoða vídjó og hugsa minn gang“
„Við reynum að hætta að hugsa um þennan leik og einbeitum okkur að Alsír,“ sagði Elvar Örn Jónsson eftir tapið gegn Portúgal í fyrsta leik á HM í handbolta í kvöld.

Topparnir í tölfræðinni á móti Portúgal: Köstuðu átta fleiri boltum frá sér
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með tveggja marka mun, 23-25, í fyrsta leik sínum í F-riðli á heimsmeistaramótinu 2021 í Egyptalandi.

Vorum sjálfum okkur verstir þegar upp er staðið
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, var ekki sáttur með allan þann fjölda mistaka sem íslenska landsliðið gerði er það tapaði fyrir Portúgal í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta í kvöld.

Of dýrt að gera svo mörg mistök í svona stórleik
„Við gerðum fimmtán tæknifeila og þetta er bara tveggja marka tap. Þetta er nú ekki meira en það,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson sem komst einna best frá sínu í sóknarleik Íslands í kvöld, í 25-23 tapinu gegn Portúgal á HM í handbolta.

Bjarki Már: Hundleiðinlegt og tilfinningin súr
Bjarki Már Elísson var markahæstur Íslendinga í tapinu fyrir Portúgölum, 25-23, á HM í Egyptalandi í dag. Hann var að vonum svekktur í leikslok.

Þetta hafði Twitter að segja um tapið gegn Portúgal
Ísland mætti Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta sem nú fer fram í Egyptalandi. Þetta var þriðja viðureign liðanna á stuttum tíma en nú höfðu Portúgalir betur, lokatölur 25-23 og tap staðreynd í fyrsta leik Íslands á HM.

Frakkar unnu stórleikinn örugglega | Þægilegt hjá Svíum
Frakkar höfðu betur gegn Norðmönnum í stórleik dagsins á HM í handbolta sem fram fer í Egyptalandi þessa dagana.

Marokkó kastaði frá sér sigrinum gegn Alsír - Slóvenía skoraði 51 mark
Alsír hafði betur gegn Marokkó í F-riðli okkar Íslendinga á HM í handbolta sem fram fer í Egyptalandi þessa dagana.

Peningamál koma í veg fyrir að álagið verði minnkað
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að peningar séu stærsta hindrunin í vegi þess að minnka álag á handboltamönnum eins og þeir hafa margoft beðið um.

Jafnt í æsispennandi grannaslag
Hvíta-Rússland og Rússland skildu jöfn, 32-32, í fyrsta leik H-riðils heimsmeistaramótsins í handbolta í dag.

Guðjón Valur: Elliði er miklu eldri í höfðinu en vegabréfið segir til um
Guðjón Valur Sigurðsson fer fögrum orðum um Elliða Snæ Viðarsson sem leikur undir hans stjórn hjá Gummersbach í þýsku B-deildinni.

Egyptar mættu á upphafsleikinn þrátt fyrir áhorfendabann
Svo virðist sem Egyptar hafi virt áhorfendabann á HM að vettugi þegar þeirra menn mættu Sílemönnum í upphafsleik mótsins í gær.

Fá góðan liðsstyrk fyrir slaginn við Ísland í kvöld og horfa til verðlaunasætis
Portúgalar hafa styrkst fyrir átökin við Íslendinga í kvöld á HM í Egyptalandi því þeir munu geta teflt fram hinum reynslumikla Gilberto Duarte, fyrrverandi leikmanni Barcelona.

Höfum ekki unnið fyrsta leik á HM í handbolta í heilan áratug
Ísland leikur í kvöld sinn fyrsta leik á HM í Egyptalandi en strákarnir hafa ekki byrjað heimsmeistaramót á sigri í tíu ár.

Leikir gegn Portúgal á stórmótum: Erfiður Resende, sætur sigur á heimavelli Portúgala og draumaleikur Janusar
Ísland mætir Portúgal í þriðja sinn á átta dögum þegar liðin leiða saman hesta sína í F-riðil á HM í Egyptalandi í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.

„Ætlum að svara fyrir okkur eftir það sem þeir gerðu við Lexa“
„Liðin eru búin að læra mikið hvort á annað. Þetta er bara skák, taktík ofan á taktík. Við þekkjum Portúgalana vel núna,“ segir hinn 23 ára gamli Elvar Örn Jónsson fyrir fyrsta leik Íslands á HM í handbolta.

Alexander kemur inn en Björgvin og Kári utan hóps í kvöld
Guðmundur Guðmundsson hefur tilkynnt hvaða sextán leikmenn verða á leikskýrslu gegn Portúgal í fyrsta leik Íslands á HM í Egyptalandi.

Tíu smituðust en nýliðarnir samt mættir á HM
Nýliðar Grænhöfðaeyja ætla ekki að láta kórónuveirusmit sex leikmanna, sem og smit þjálfara og fleiri starfsmanna liðsins, koma í veg fyrir að það spili á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í handbolta, í Egyptalandi.

„Alexander er ekki hávær í hópnum en hann er með ákveðið svægi yfir sér“
Alexander Petersson kemur með mikil gæði inn í íslenska landsliðið en Ásgeir Örn Hallgrímsson þekkir það mjög vel hvað hann gerir fyrir íslenska liðið.

Danir segja loforð svikin á HM í Egyptalandi
Danska handboltasambandið ásamt því þýska, norska, sænska og austurríska hefur sent kvörtun inn til IHF, Alþjóða handknattleikssambandsins, um aðstæðurnar í Egyptalandi og sóttvarnir gagnvart kórónuveirunni.

Gestgjafarnir byrja á öruggum sigri
Tuttugasta og sjöunda HM í handbolta hófst í dag í Egyptalandi er heimamenn í Egyptalandi rúlluðu yfir Síle, 35-29, er liðin mættust í opnunarleiknum. Liðin leika í G-riðli.

Frumsýna nýja landsliðstreyju gegn Portúgal á morgun
Íslenska karlalandsliðið frumsýnir nýjan keppnisbúning þegar það mætir Portúgal í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi annað kvöld.

Segir Gumma ekki skipta sér af hárgreiðslunni þegar menn nýti færin sín svona
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að Bjarki Már Elísson fái nú eflaust bara að hafa hárið sitt eins og hann kjósi þó að á árum áður hafi Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari stöku sinnum gert athugasemdir ef leikmenn voru uppteknir af útliti sínu.

Valið á Arnóri sem fyrirliða kom Ásgeiri Erni á óvart
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að val Guðmundar Guðmundssonar á fyrirliða fyrir HM í Egyptalandi hafi komið sér á óvart. Hann bjóst við að Alexander Petersson fengið fyrirliðabandið.