Lífið

Fréttamynd

Gettu betur-krakkarnir óhugnanlega klárir

„Ég verð bara að vera hreinskilin og viðurkenna að ég er frekar kvíðin fyrir sjónvarpsútsendinguna," segir Þórhildur Ólafsdóttir, annar helmingur dómaratvíeykisins í Gettu betur.

Lífið
Fréttamynd

Leikur Liz

Það virðist allt vera á uppleið hjá vandræðagemlingnum Lindsay Lohan.

Lífið
Fréttamynd

Kossar og knús í minningu Hemma

"Þetta snýst um að stíga aðeins út fyrir þægindarammann," segir Hörður Ágústsson, versunarmaður í Maclandi. Hermann Valgarðsson lést um aldur fram í nóvember í fyrra. Hann hefði orðið 32 ára í dag og til að heiðra minningu hans halda vinir hans Luv-daginn hátíðlegan, en Hemmi var einmitt þekktur fyrir einstakt lag á því að láta fólki líða vel í kringum sig.

Lífið
Fréttamynd

Tjaldstemning á Þýska barnum

„Það verður alvöru þýsk stemning þarna. Hægt verður að fá bjór í lítrakönnum og allt starfsfólk verður klætt í hefðbundinn þýskan klæðnað, dirndl og lederhosen,“ segir Baldvin Arnar Samúelsson, einn eigenda Þýska barsins.

Lífið
Fréttamynd

Brjálað gera hjá Kolfinnu

Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir var heldur betur iðin við kolann á nýafstaðinni tískuviku í London en hún gekk tískupallana fyrir sex hönnuði. Þeir hönnuðir sem föluðust eftir kröftum Kolfinnu voru Topshop Unique, House of Holland, Jonathan Saunders, Acne, Christopher Kane og Giles. Kolfinna, sem er á mála hjá Eskimo fyrirsætuskrifstofunni, er nú flogin á vit ævintýranna í Mílanó og París þar sem hún mun eflaust láta til sín taka á tískupöllunum en hún er vinsælt andlit í tískuheiminum í dag.

Lífið
Fréttamynd

Vafasamt kapphlaup

Leyniþjónustumennirnir FDR og Tuck eru bestu vinir í öllum heiminum en fara fyrir slysni að "deita“ sömu konuna. Þegar upp kemst um aðstæður ákveða þeir að búa til leikreglur og láta konuna velja þann sem henni líst betur á, en hún hefur ekki minnstu hugmynd um að þeir þekkist. Upphefst um leið mikið kapphlaup þar sem spæjararnir keppast við að vinna hug og hjarta konunnar, en í keppninni notfæra þeir sér aðstöðu sína innan leyniþjónustunnar til hins ítrasta.

Gagnrýni
Fréttamynd

Enskur texti saminn við Mundu eftir mér

"Enski textinn er til en hann er ekki endanlegur," segir Greta Salóme Stefánsdóttir höfundur og annar flytjandi framlags Íslendinga til Eurovision söngvakeppninnar í Baku í lok maí.

Lífið
Fréttamynd

Jamie Cullum í Eurovision

Breski söngvarinn og lagahöfundurinn Jamie Cullum bar sigur úr bítum í undankeppni Eurovision söngvakeppninnar í Þýskalandi um helgina.

Lífið
Fréttamynd

Lést á tískusýningu

Tískuljónið og frumkvöðullinn Zelda Kaplan lést á tískusýningu Joanna Mastroianni á tískuvikunni í New York. Kaplan, sem var 95 ára gömul, sat á fremstu röð á sýningunni er hún missti meðvitund og lést. Tískuheimurinn er í sorg vegna fráfalls Kaplan en hún var fastagestur á fremstu röð á tískuvikum um allan heim.

Lífið
Fréttamynd

Sængaði hjá heilu auglýsingaskilti

Breska leikkonan Minnie Driver segist elska að búa í Californiu. Það fari þó í taugarnar á henni að hvert sem hún fari sé hún minnt á mistök sín eða það sem hún hefur misst af. Hún segir erfitt að þurfa stöðugt að ganga framhjá stórum auglýsingaskiltum með myndum sem hún fékk ekki hlutverk í, eða með fyrrum kærustum sínum.

Lífið
Fréttamynd

Vogue og ID hampa Ernu

"Þetta var rosalega skrýtinn dagur og ég finn fyrir miklum létti núna þegar vinnutörnin er að taka enda."," segir Erna Einarsdóttir fatahönnuður sem sýndi fatalínu sína á tískuvikunni í London á föstudaginn.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Whitney Houston kvödd

Heimsbyggðin fylgdist með þegar söngkonan Whitney Houston var borin til grafar í heimabæ sínum Newark á laugardaginn í beinni sjónvarpsútsendingu.

Lífið
Fréttamynd

Tætum og tryllum

Safe House fer kröftuglega af stað en undir miðbik fer að halla eilítið undan fæti og kunnuglegar klisjurnar hrannast upp. Leikstjórinn sér þó til þess að engum leiðist, og er það almennur ærslagangur sem heldur myndinni á floti til enda. Washington hefur nærveru á við tvo og kemur það sér ágætlega þar sem Reynolds er litlaus þumbi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Aðeins það besta fyrir Corea

Eins og komið hefur fram spilar píanósnillingurinn og Grammyverðlaunahafinn Chick Corea í Eldborgarsal Hörpu 24. apríl ásamt Gary Burton en miðasala hefst í dag.

Lífið
Fréttamynd

Elektrótónlist með sprengjuleitarvélmenni Ríkislögreglustjóra

Elektró poppsveitin Sykur er ein heitasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Lagið Reykjavík hefur slegið í gegn og fetar það í fótspor Viltu Dick? sem einnig naut mikilla vinsælda. Lagið er tekið af annarri plötu hennar, Mesópótamía, sem kom út fyrir síðustu jól við góðar undirtektir.

Harmageddon
Fréttamynd

Vantar þig sykur?

Hljómsveitin Sykur gaf út plötuna Mesópótamía í fyrra. Platan er ansi hressandi og það kæmi okkur á ritstjórn Poppsins ekki á óvart ef þú, lesandi góður, þráðir að eignast hana.

Harmageddon
Fréttamynd

Skeggleysi bara tískubóla

Vel hært skegg er vinsælt um þessar mundir. Á tískusýningum fatahönnuðanna Henrik Vibskov og Vivienne Westwood mátti einnig sjá skeggjaðar fyrirsætur. Tískubólan einskorðast því ekki við götur Reykjavíkur.

Lífið
Fréttamynd

Pylsur og kæfa auka líkur á krabbameini

Unnar kjötvörur, eins og pylsur og kæfa, eru taldar auka líkurnar á krabbameini í brisi. Þetta sýnir ný rannsókn sem birtist á dögunum í British Journal of Cancer. Því meira magn sem maður borðar því meiri líkur á krabbameini segir í rannsókninni en það er ekki kjötið sjálft sem hefur áhrif heldur efnið natríum, sem er bætt út í eftirá til að auka endingu vörunnar. Líkur á krabbameininu hækka um 19% fyrir hvert 50 gram sem borðað er af unnri kjötvöru á dag samkvæmt rannsókninni en það jafngildir einni pylsu.

Lífið
Fréttamynd

Inga Lind í nýju húsi

Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir og eiginmaður hennar Árni Hauksson fjárfestir sem meðal annars er einn stærsti hluthafinn í Högum eru nú flutt í nýja húsið sitt sem þau byggðu frá grunni á sjávarlóð á Arnarnesinu í Garðabæ.

Lífið
Fréttamynd

Leiða saman helstu dívur landsins

"Það má segja að við séum að leiða saman helstu dívur landsins í skólanum," segir Arnar Gauti framkvæmdastjóri Elite á Íslandi en hann er í óða önn þessa dagana að undirbúa opnun tískuskólans Elite Fashion Academy.

Lífið
Fréttamynd

Í góðri stemningu á Sundance

"Hér er góð stemning og rosalega mikið af fólki í bænum,“ segir Eva María Daníels, framleiðandi en hún er stödd í Utah þar sem hún frumsýndi myndina Goats á Sundance-kvikmyndahátíðinni.

Lífið
Fréttamynd

Moka ekki Melhaga

Slagurinn á milli minnihlutans í borginni við meirihluta Besta flokksins hefur verið harður í vetur. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt störf Jóns Gnarr borgarstjóra harðlega. Nágrannar Gísla Marteins á Melhaganum eru hissa á því að gatan þeirra er alltaf á kafi í snjó og er ekki mokuð reglulega eins og aðrar íbúðagötur í vesturbænum. Þetta bitnar þó minnst á Gísla Marteini sjálfum enda er hann einn helsti talsmaður þess að fólk ferðist um á reiðhjólum eða í strætó.

Lífið
Fréttamynd

Stórkostlegt sjónarspil

Niðurstaða: Ein allra besta mynd síðasta árs og nýtur sín best í kvikmyndahúsi. Nú er tækifærið. Ekki gera ekki neitt.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fyrrverandi barnfóstra Halle Berry vill nálgunarbann

Fyrrverandi barnfóstra Halle Berry hefur barist við barnsföður leikkonunnar fyrir dómstólum. Nú síðast krafðist hún nálgunarbanns gegn honum en fékk ekki. Alliance Kamdem, fyrrverandi barnfóstra Hollywood-stjörnunnar Halle Berry, hefur átt í harðvítugum deilum við frönsk-kanadísku karlfyrirsætuna Gabriel Aubry, barnsföður Berry og fyrrverandi kærasta.

Lífið
Fréttamynd

Dikta á National Geographic

"Það væri óskandi ef þetta vekur athygli á sveitinni en við höfum ekki orðið varir við neitt slíkt enn þá," segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Dikta.

Lífið
Fréttamynd

Búin að tapa auðæfunum

Söngkonan heimsfræga Whitney Houston, sem leitaði sér aðstoðar vegna krakkfíknar í fyrra, er búin að tapa öllum auðæfum sínum.

Lífið