Innlent

Fréttamynd

Skipulagsbreytingar í Seðlabankanum

Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar í Seðlabanka Íslands og tóku þær gildi 1. september. Peningamálasvið sem annaðist innlend viðskipti bankans og alþjóðasvið sem annaðist þau erlendu voru sameinuð undir nýtt svið, alþjóða- og markaðssvið sem Sturla Pálsson mun stýra.

Innlent
Fréttamynd

Reynir að synda yfir Ermarsund á morgun

Sjósundkappinn Benedikt Lafleur reynir á morgun að synda yfir Ermarsund en hann hefur undanfarið dvalið í Englandi við æfingar fyrir sundið. Líklegt er að hann leggi af stað frá ströndum Englands um hálfníuleytið í fyrramálið.

Innlent
Fréttamynd

Stöðug söluaukning á ostum og viðbiti

Stöðug söluaukning hefur verið í ostu og viðbiti á landinu það sem af er árinu eftir því sem fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Nemur söluaukningin sex komma einu prósenti í viðbiti en tæpum fimm prósentum í ostum.

Innlent
Fréttamynd

Allt að 100 prósenta starfsmannavelta í verslunum

Svipuð eftirspurn er eftir starfsfólki í verslanir og síðasta haust eftir því sem fram kemur í fréttabréfi Samtaka verslunar- og þjónustu. Þar segir einnig að algengt sé að starfsmannavelta í dagvöruverslunum sé um hundrað prósent, sem jafngildir því að allir starfsmenn verslunar láti af störfum á hverju ári og nýir séu ráðnir í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Tafir á nokkrum stöðum vegna framkvæmda

Milli kl. 9 og 12 í dag mun Orkubú Vestfjarða taka rafmagnið af göngunum um Breiðadals- og Botnsheiði vegna raflínutenginga. Því verða á þessum tíma aðeins neyðarljós við útskot og ökumenn þurfa að gæta ítrustu varúðar við akstur í göngunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Innlent
Fréttamynd

Kiko Japansprinsessa eignast son

Kiko Japansprinsessa eignaðist son í gærkvöldi japönsku þjóðinni til mikillar gleði og keisarafjölskyldunni til talsvers léttis. Sveinbarnið er fyrsti strákurinn sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í 40 ár og slær því á allar áhyggjur um erfingjaskort að keisarakrúnunni en lögum samkvæmt mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina.

Erlent
Fréttamynd

Auka álag á sorphirðumenn og bæjarstarfsmenn

Danskir sorphirðumenn eru að kikna undan magni fríblaða sem hefur bæst ofan á það sorp sem fyrir var, síðan farið var að bera fríblöðin Dato og 24/7 út á heimili. Einnig segja bæjarstarfsmenn sem sjá um að halda götum og almenningsgörðum hreinum að starf þeirra hafi aukist til muna með tilkomu fríblaðanna, og þetta ástand versni til muna þegar eitthvað hreyfi vind. Deildarstjóri vega- og garðaþjónustu Árhúsa segist ekki hlakka til þegar þriðja fríblaðið bætist svo í hópinn í októberbyrjun.

Erlent
Fréttamynd

Gagnrýna ákvörðun meirihlutans í leikskólamálum

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Frjálslyndra mótmæla ákvörðun meirihlutans að kljúfa leikskólamál frá öðrum menntamálum í borginni og lögðu fram bókun þess efnis á borgarráðsfundi í gær. Í fréttatilkynningu frá Vinstri-grænum segir að borgarráði hafi borist yfir 700 undirskriftir starfsfólks leikskólanna, þar sem ákvörðuninni er mótmælt. Því skorar minnihlutinn á meirihlutann að málefnið verði rætt ofan í kjölinn og ákvarðanir verði teknar í sátt við hagsmunaaðila líkt og frekast er unnt.

Innlent
Fréttamynd

Dýrari símtöl í símaskrána

Gjaldskrá fyrir upplýsinganúmerin 118 og 1818 og talsamband við útlönd hækkar 1. september. Ástæðan er gjaldskrárbreytingar hjá fyrirtækinu Já sem rekur þessa þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Nálgunarbann ekki nógu skilvirkt tæki

Fagfólk er tekur á heimilisofbeldi er sammála um að breyta verði löggjöfinni um nálgunarbann. Ekki nógu gott hjálpartæki fyrir lögreglu, segir Andrés Ragnarsson. Ágúst Ólafur vill sérstakt lagaákvæði um heimilisofbeldi.

Innlent
Fréttamynd

Allt að 18% verðmunur á milli verslanna

Allt að 18% verðmunur reyndist vera á milli hæsta og lægsta verði vörukörfu þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Pólitísk samstaða ríkir um málið

Tillögu Samfylkingarinnar, um að gengið verði til viðræðna við byggingarfélög námsmanna um uppbyggingu allt að átta hundruð stúdentaíbúða á næstu árum, var einróma vísað til meðferðar í skipulagsráði á fundi borgarráðs í gær.

Innlent
Fréttamynd

Mörg fyrirtæki sögð sárvanta starfsfólk

Íslendingur stundar vinnumiðlun milli Íslands og Póllands. Íslendingurinn heitir Hallur Jónasson og er í vinnu hjá pólskri vinnumiðlun. Hann útvegar starfsfólk fyrir íslenska atvinnurekendur.

Innlent
Fréttamynd

Skildi hnífinn eftir standandi í sárinu

Sextán ára piltur réðst á kunningja sinn með hníf í fyrrinótt, stakk í bakið og skildi hnífinn eftir í sárinu. Fórnarlambið kom sér sjálfur á slysadeild við illan leik. Ekki lífshættulegur áverki, að sögn vakthafandi læknis.

Innlent
Fréttamynd

Brussel-skrifstofa kostar 30 milljónir

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur opnað skrifstofu í Brussel og er hlutverk hennar að gæta hagsmuna íslenskra sveitarfélaga gagnvart Evrópusambandinu og EES-samstarfinu. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun leggja tíu milljónir króna til verkefnisins árlega en þetta er tilraunaverkefni til þriggja ára og er áætlaður heildarkostnaður 30 milljónir króna. Starfsmaður skrifstofunnar er Anna Margrét Guðjónsdóttir.

Innlent
Fréttamynd

Stakk af á 13 veitingastöðum

Tæplega fertugur karlmaður var ákærður í héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að panta og neyta veitinga á veitingahúsum í Reykjavík án þess að greiða fyrir þær. Um var að ræða þrettán skipti á tveggja mánaða tímabili þar sem maðurinn stakk af frá reikningnum.

Innlent
Fréttamynd

Vopn enn heima hjá hermönnum

Varnarmálaráðherra Sviss hefur neitað beiðni um að hætt verði að geyma skotvopn hermanna á heimilum þeirra. Að meðaltali er eitt sjálfsmorð framið daglega með skotvopni í Sviss, yfirleitt með vopnum frá hernum.

Innlent
Fréttamynd

Báðust afsökunar

Jón Björgvinsson, myndatökumaður í Líbanon, segir fjarri lagi að myndatökumenn erlendra fréttastofa eða hann sjálfur falsi myndir af átakasvæðum í Líbanon en fréttastofur hafa verið gagnrýndar fyrir að falsa fréttaflutning og myndir úr stríðinu.

Innlent
Fréttamynd

Afurðastöðvar valda hækkun á kjötverði

Verð á öllu kjöti hefur hækkað frá sláturleyfishöfum til kjötvinnslustöðva. Forsvarsmenn fyrirtækja í kjötvinnslu segja hækkunina óeðlilega háa. Neytendur borga og samtök bænda segja hækkanirnar ekki skila sér til framleiðenda.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar gengu á "þaki heimsins"

Hallgrímur Magnússon og Leifur Örn Svavarsson náðu á mánudaginn alla leið upp á Lenínstind. Þetta er 7.134 m tindur í Trans-Alay fjallgarðinum á landamærum Tadsíkistan og Kirgisistan, í óásjálegu fjallasvæði sem gengur jafnan undir nafninu "Þak heimsins". Þeir höfðu verið lengi á leiðinni því gangan hófst 25. ágúst. Síðasti spretturinn, frá þriðju búðum og upp á topp, tók níu tíma í nístingskulda (mínus 20 gráður auk vindkælingar) og dauðsáu ferðalangarnir eftir forláta dúnbuxum sem þeir skildu eftir neðar í fjallinu.

Innlent
Fréttamynd

Vissu ekki af breytingunni

"Við vissum ekki að þessi breyting hefði verið gerð fyrr en síðasta föstudag," segir Hjörleifur Kvaran, lögmaður Orkuveitu Reykjavíkur, en fyrirtækið hefur á þessu ári sent póst til allra nýrra raforkunotenda þar sem tekið er fram að Orkuveitunni beri að innheimta fimmtíu prósenta álag á raforku þar til samningur við raforkusala hafi verið gerður.

Innlent
Fréttamynd

Upplýsingaskyldan þyrfti að vera skýrari

Óskýrt er hvernig bregðast á við broti ráðherra á upplýsingaskyldu gagnvart Alþingi. Forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst telur að skýra þurfi reglurnar. Víða erlendis eru rannsóknarnefndir skipaðar en það þykir ekki virka vel hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Veita auka launahækkun

Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa ákveðið að hækka launin hjá þeim lægstlaunuðu um tvö og hálft til þrjú prósent. Hækkunin nær til þrjátíu manna sem starfa í ræstingu og við sorphirðu.

Innlent
Fréttamynd

Segir andóf ekki liðið

Ragnar Aðalsteinsson og Stefán Eiríksson tókust á um hversu langt lögreglan gæti gengið gagnvart mótmælendum. Lögreglan hér líður ekki mótmæli, sagði Ragnar. Fer eftir reglum, sagði Stefán.

Innlent
Fréttamynd

Kanínur sjást í laugargarðinum

Kanínur hafa sést öðru hverju í sundlaugargarðinum við Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði síðustu vikur. Daníel Pétursson sundlaugarstjóri segir að kanínurnar eigi ekki heima í lauginni heldur komi frá húsi í nágrenninu.

Innlent
Fréttamynd

Bannað að reykja á börum

Ný lög um reykingar á stærri börum og veitingahúsum tóku gildi á Spáni um síðustu mánaðamót. Lögin kveða á um að veitingastaðir sem eru yfir 100 fermetrar að flatarmáli verða að bjóða upp á reyklaus svæði ellegar vera algjörlega reyklausir. Að öðrum kosti geta eigendur staðanna búist við sektargreiðslum.

Innlent
Fréttamynd

Byggja 200 íbúðir fyrir eldri borgara

Reykjavíkurborg stefnir á að undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu á 200 þjónustu- og öryggisíbúðum fyrir eldri borgara á næstunni. Þessar íbúðir verða að öllum líkindum tengdar þjónustukjörnum við Spöngina í Grafarvogi annars vegar og við Sléttuveg hins vegar. 100 íbúðir verða byggðar á hvorum stað. Þetta kom fram í ræðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra á fundi borgarstjórnar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Góðir liðsmenn í heimsliðinu

Við höfum verið að leggja áherslu á að framlag hvers og eins skiptir máli til að gera veröldina betri. Við erum öll hluti af heimsliðinu. Krakkarnir þekkja það flest að vera hluti af einhverju liði. Í Vináttuhlaupinu eru þau hluti af mannlega liðinu þar sem þau geta lagt sig fram við að nýtast liðsheildinni vel, segir Torfi Leósson, skipuleggjandi Vináttuhlaupsins á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Tækifæri í verndun Reykjanesskaga

Roger Crofts, formaður sérfræðinefndar Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna IUCN um friðun og verndarsvæði í Evrópu, kynnti sér hugmyndir Landverndar um eldfjallagarð og fólkvang á Reykjanesskaga á dögunum. Roger Crofts hefur áður komið að verndunarmálum á Íslandi meðal annars í aðdraganda að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Hann telur mikil tækifæri felast í friðun Reykjanesskagans.

Innlent