Innlent
246 247 248 249 250 251 252 253 254 … 334 ›
Magnús gerir upp við Björgólf Thor Magnús Kristinsson, sem stóð í hörðum átökum við Björgólf Thor Björgólfsson í stjórn Straums-Burðaráss sendir Björgólfi tóninn í blaðagrein í dag. Segir Magnús að rót átakanna sé andstaða hans gegn því að Björgólfur notaði Straum-Burðarás til að leggja tugi milljarða í eigin fjárfestingarverkefni. Innlent 17.9.2006 09:51
Sjö teknir fyrir ölvunarakstur Rólegra var hjá Lögreglunni í Reykjavík í nótt miðað við þá síðustu. Svo virðist sem gestir borgarinnar hafi hagað sér betur en sama er þó ekki hægt að segja um ökumenn en alls voru sjö kærðir fyrir meinta ölvun við akstur í höfuðborginni. Innlent 17.9.2006 09:32
Banaslys á Suðurlandsvegi Banaslys varð um klukkan níu í gærkvöldi á Suðurlandsvegi til móts við afleggjarann að Bollastöðum. Þar varð karlmaður á hesti fyrir bifreið sem ekið var austur veginn og er talið að hann hafi látist samstundis. Innlent 17.9.2006 09:07
Sjötíu ár frá því Pourqoui-Pas fórst Sjötíu ár eru í dag liðin frá einu átakanlegasta sjóslysi Íslandssögunnar aðeins einn maður af fjörtíu manna áhöfn komst lífs af þegar rannsóknarskipið Pourqoui-Pas fórst. Innlent 16.9.2006 19:00
Íslendingar aðlagist veðurfarsbreytingum Íslendingar þurfa að aðlagast miklum breytingum á veðurfari og lífríki fari svo að hlýnun á Norðurhveli verði hraðari en áður var talið. Fjórtán prósent af íshellu norðurskauts bráðnaði á liðnu ári sem er þrítugföld bráðnun miðað við fyrri ár. Hlýnun á Íslandi kann að verða skammgóður vermir því óttast er að eftir skammt hlýindaskeið skelli hér á fimbulkuldi. Innlent 16.9.2006 18:33
Krefst aðgangs að hlerunargögnum Kjartan Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður og ritstjóri, hótar málsókn gegn Þjóðskjalasafni og menntamálaráðherra verði honum neitað um að sjá gögn um hleranir stjórnvalda á tímum kalda stríðsins. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra vísar í þingskipaða sérfræðinefnd sem falið var að meta þessi gögn en Kjartan telur þetta ófullnægjandi svar. Innlent 16.9.2006 18:28
Jóhann Ársælsson hættir á þingi í vor Jóhann Ársælsson, fyrsti þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Innlent 16.9.2006 17:06
Varðskipið Ægir sótti vélavana togara Varðskipið Ægir er nú á leið til Reykjavíkur með grænlenska togarann Kingigtok í togi. Togarinn varð vélavana um fjögurhundruð sjómílur suðvestur af Reykjanesi í nótt. Innlent 16.9.2006 16:08
Sex fluttir á slysadeild eftir árekstur Sex voru fluttir á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum á Breiðholtsbraut við Skógarsel. Meiðsl þeirra eru þó talin minniháttar. Innlent 16.9.2006 15:49
Reykvíkingar hvattir til að hjóla og hvíla bílinn Í dag eru Reykvíkinginar hvattir til þess að hjóla saman og hvíla bílinn. Dagurinn er liður í Samgönguvikunni en Reykjavíkurborg tekur nú fjórða árið í röð þátt í Evrópsku Samgönguvikunni. Innlent 16.9.2006 14:38
Hraðleið strætó hefst á ný í Árbænum Ákveðið var á fundi hverfaráðs Árbæjar í dag að koma til móts við kröfur hverfisins og hraðleið strætó í Árbæjarhverfi verði aftur hafin á álagstímum. Innlent 16.9.2006 14:22
Bilun hafði áhrif víða um land Bilun á ljósleiðarakerfi Símans hafði haft áhrif víða um land á fjarskipti og ljósvakaútsendingar. Bilunin varð til þess að öryggiskerfi sjómanna við Norðurland var óvirkt frá því síðdegis í gær. Innlent 16.9.2006 13:17
Réttir án kinda Tungnaréttir í Biskupstungum hófust kl. 11 í morgun, þrátt fyrir að þar verði ekki ein einasta kind. Sveitin er fjárlaus eftir að allt fé var skorið niður vegna riðuveiki. Heimamenn vilja þó ekki sleppa réttunum, frekar en aðrir Sunnlendingar. Innlent 16.9.2006 10:48
Reyndu að berja þá með spýtum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til eftir að tveir menn um tvítugt flúðu úr samkvæmi á Kjalarnesi í nótt eftir að hópur ungmenna reyndi að berja þá með spýtum. Innlent 16.9.2006 10:42
Fjöldaslagsmál í Hraunbænum Lögreglan í Reykjavík var kölluð út að heimahúsi í Hraunbæ í Árbænum þar sem fjöldaslagsmál brutust út eftir að hópur unglinga reyndi að ryðjast inn í samkvæmi sem þar fór fram. Innlent 16.9.2006 10:39
Bilun í ljósleiðarakerfi Símans Bilun á ljósleiðarakerfi Símans hefur haft áhrif víða um land á fjarskipti og ljósvakaútsendingar en búist er við því að viðgerð ljúki fyrir hádegi. Bilunin varð í kerfinu síðdegis í gær. Innlent 16.9.2006 10:25
Tveir vopnaðir menn handteknir í efra Breiðholti Sérsveit lögreglunnar var kölluð til á þriðja tímanum í nótt eftir að tilkynning barst um að tveir menn vopnaðir haglabyssu gengu um í efra Breiðholti. Vitni sögðu manninn hafa hleypt skoti af í götuna og síðan gengið í átt að Elliðaárdalnum. Þar hafði lögreglan uppi á þeim. Innlent 16.9.2006 10:22
Aukið umferðareftirlit lögreglunnar á Akureyri Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur rétt norðan við Akureyri á níunda tímanum í kvöld. Lögreglan á Akureyri hefur undanfarið haft skipulagt eftirlit með ástandi ökumanna, bílbeltanotkun og aksturslagi. Ökumaðurinn er þó sá eini sem lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af það sem af er kvöldi. Innlent 15.9.2006 21:51
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á mann á sjötugsaldri við gatnamót Nóatúns og Brautarholts á sjötta tímanum í dag. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans en meiðsl hans reyndust minniháttar. Innlent 15.9.2006 22:00
Grafarþögn um gang viðræðnanna Varnarliðið hætti í dag rekstri björgunarþyrlna - þær verða teknar í sundur um helgina og fluttar af landi brott. Grafarþögn ríkir af gangi viðræðnanna við Bandaríkjamenn og þykir forsætisráðuneytinu duga að upplýsa þjóðina um það eitt, að viðræðunum ljúki bráðlega. Innlent 15.9.2006 22:08
Verðmæti Exista jókst um fimmtán milljarða Verðmæti hlutafélaga sem skráð eru í Kauphöllinni jókst um tíu prósent í dag þegar Exista var tekið á skrá. Heildarvirði félagsins var um 230 milljarðar við upphaf dags en hafði aukist um fimmtán milljarða fyrir dagslok. Innlent 15.9.2006 22:06
Eldur kviknaði í bakarofni Slökkvilið höfuðborgarsvæðising var kallað út um klukkan hálf níu í kvöld vegna elds í bakarofni í heimahúsi í Fossvogi. Húsráðanda hafði tekist að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið. Ekki urðu slys á fólki en húsráðandi var fluttur á slysadeildina í Fossvogi með snert af reykeitrun. Innlent 15.9.2006 21:46
Segist ekki hafa farið fjóra milljarða fram úr áætlunum Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur kostuðu fimm komma átta milljarða, samkvæmt upplýsingum stjórnarinnar nú. Áætlanir gerðu ráð fyrir að kostnaðurinn yrði átjánhundruð milljónir eða það sama og fékkst við sölu fyrirtækjanna sem fóru undir hatt Orkuveitunnar. Fyrrverandi stjórnarformaður vísar því á bug að hann hafi farið fjóra milljarða fram úr áætlunum. Innlent 15.9.2006 21:58
Segir auglýsingu Samfylkingarinnar hræðsluviðbrögð Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir krampakennd hræðsluviðbrögð einkenna auglýsingu Samfylkingarinnar um algera stöðvun allra orku- og stóriðjuframkvæmda í fimm ár. Þessi hræðsluviðbrögð séu ótrúverðug og fráleitt sé að hrökkva frá öllum erfiðum málum með endalausum frestum. Innlent 15.9.2006 21:48
Margrét hugsanlega á leið úr stjórnmálum Talið er að Margrét Frímannsdóttir ,formaður þingflokks Samfylkingarinnar, hætti í pólitík. Hún hefur gefið út þá yfirlýsingu að hún tilkynni um pólitíska framtíð sína á kjördæmisráðsfundi Suðurkjördæmis á sunnudag. Innlent 15.9.2006 21:00
Mikil bráðnun jökla Hvítabirnir eru að drukkna og nýjar eyjar að koma í ljós undan ísnum á Norður-Heimskautinu, eftir mikla bráðnun jökla í sumar. Erlent 15.9.2006 20:51
Óttast að njósnirnar verði flokknum af falli Frambjóðendur hægra bandalagsins í þingkosningunum í Svíþjóð geta ekki leynt gremju sinni yfir því að Göran Persson formaður Jafnaðarflokksins skyldi leyfa sér að nefna njósnahneyksli Þjóðarflokksins í sjónvarpsumræðum í gærkvöld. Engin leið er að spá fyrir um úrslitin á sunnudag, en Persson óttast að njósnirnar geti fært andstæðingum hans sigurinn. Erlent 15.9.2006 20:54
Norvik kaupir stærstu sögunarmyllu Lettlands Norvik hf., félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu sem gjarnan er kennd við BYKO, keypti í dag stærstu sögunarmyllu Lettlands, VIKA Wood. Félagið framleiðir um 270 þúsund rúmmetra af söguðu timbri á ári og selur að mestum hluta til Japans og á heimamarkað. Innlent 15.9.2006 17:03
Slökkvistarfi lokið í Varmárskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins lauk störfum í Varmárskóla í Mosfellsbæ nú á fimmta tímanum en þangað var það hvatt um klukkan tvö í dag vegna elds í húsinu. Fyrstu fréttir bentu til þess að eldurinn hefði kviknað í rafmagnstöflu en það hefur ekki fengist staðfest. Innlent 15.9.2006 17:00
Mesta verðbólgan á Íslandi Samræmd vísitala neysluverðs hér á landi hækkaði um 0,4 prósent í ágúst frá fyrri mánuði. Til samanburðar hækkaði verðlag í EES-ríkjunum að meðaltali um 0,2 prósent. Sé litið til síðastliðinna 12 mánaða hækkaði vísitalan um 7,1 prósent hér á landi en um 2,3 prósent innan EES og á evrusvæðinu. Viðskipti innlent 15.9.2006 16:51
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent