Innlent
Öngþveiti á Heathrow vegna þoku Innlent 21.12.2006 10:20 Seðlabanki hækkar vexti um 0,25 prósentur Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta í 14,25%. Aðrir vextir bankans hækka einnig um 0,25%. Þetta var tilkynnt kl. 9 í dag. Gengi krónunnar hefur lækkað í morgun um 0,28%, verð hlutabréfa einnig og hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 0,35%. Innlent 21.12.2006 09:05 Metrennsli í Norðurá Í Borgarfirði hafa ár flætt yfir bakka sína og gamla brúin yfir Hvítá, milli Ferjukots og Hvítarvalla, er lokuð og íbúar í Ferjukoti því innlyksa. Innlent 20.12.2006 19:12 Bæir innlyksa vegna flóða í Hvítá Hvítá í Árnessýslu er í miklum ham og var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem áin flæddi yfir hana. Eins eru átta íbúðarhús innlyksa í Auðsholti þar sem Hvítáin beljar allt um kring. Innlent 20.12.2006 19:11 Actavis kaupir lyfjaverksmiðju á Indlandi Actavis hefur keypt verksmiðju indverska lyfjafyrirtækisins Grandix Pharmaceuticals, sem sérhæfir sig í framleiðslu og þróun samheitalyfja. auk þess sem Actavis hefur opnað nýja þróunareiningu á Indlandi sem mun sérhæfa sig í þróun virkra lyfjaefna. Kaupverð er ekki gefið upp. Viðskipti innlent 20.12.2006 13:38 Moody's staðfestir lánshæfismat bankanna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service staðfestir lánshæfiseinkunnir viðskiptabankanna þriggja í nýrri skýrslu þar sem fjallað er um bankakerfið á Íslandi. Matsfyrirtækið segir lánshæfishorfur bankanna stöðugar en hvað varðar einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika þá eru horfur neikvæðar fyrir Glitni og Landsbankann. Viðskipti innlent 20.12.2006 12:05 Taka þarf upp evru lagist ekki hagstjórnin Hysji stjórnvöld ekki upp um sig buxurnar í stjórn efnhagsmála er upptaka evru eina leiðin til að hér náist stöðugleiki í efnahagsmálum, sagði Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, þegar hann kynnti nýja skýrslu um hagstjórnarumhverfið á Íslandi í morgun. Skýrslan er áfellisdómur yfir hagstjórn bæði ríkis og sveitarfélaga auk þess sem Seðlabankinn er sagður hafa gert mistök í stjórn peningamála. Viðskipti innlent 20.12.2006 11:02 Tímaspursmál hvaða banki yrði fyrstur Ekki virðast í bráð uppi ráðagerðir hjá stóru viðskiptabönkunum að færa bókhald sitt yfir í evrur líkt og Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur upplýst um að hann ætli að gera um áramót. Málið hefur þó verið rætt og er til stöðugrar endurskoðunar bæði í Landsbankanum og Glitni. Kaupþing kýs hins vegar að tjá sig ekki um málið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26 Nú sér fyrir endann á hækkunarferli stýrivaxta Hvort sem Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti lítillega á aukavaxtaákvörðunardegi sínum á morgun eða heldur þeim óbreyttum ber sérfræðingum saman um að eftir áramót verði ferli stýrivaxtahækkana bankans sem hófst í maí 2004 örugglega lokið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26 TM Software styrkir Ljósið Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur ákveðið að styrkja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Stuðningurinn felst í að veita Ljósinu afnot af sjúkraskrárkerfinu Sögu, sem Ljósið fær aðgang að í gegnum iCura-kerfisveitu. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25 Vodafone með stærstu búð hér Í Skútuvogi í Reykjavík hefur verið opnuð stærsta Vodafone-verslun í heimi, um 400 fermetrar að stærð. Í tilkynningu Vodafone á Íslandi kemur fram að vöruúrvalið í búðinni sé einstakt og hún sé ein af fyrstu Vodafone-verslununum í heimi sem byggja á byltingarkenndri hönnun sem færa á viðskiptavinum nýja sýn á vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25 VÍS styrkir Einstök börn Í stað þess að senda jólakort tóku stjórnendur VÍS þá ákvörðun að styrkja Einstök börn um andvirði þeirra fjárhæðar sem varið hefur verið til slíks. Verður styrknum varið í stuðning við börn og barnafjölskyldur sem vegna sérstakra aðstæðna þurfa á stuðningi að halda. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26 « ‹ 126 127 128 129 130 131 132 133 134 … 334 ›
Gengið frá viðskiptum Straums og FL Group Gengið hefur verið frá viðskiptum á 22,6% heildarhlutafjár í Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf., á milli bankans og fjárfesta annars vegar og FL Group hf. hins vegar. Heildarkaupverð nemur 42,1 milljarði króna og greiðast um 28,3 milljarðar króna í reiðufé, um 10,2 milljarðar króna með hlutum í finnska flugfélaginu Finnair og um 3,5 milljarðar króna með hlutum í skráðum íslenskum félögum. Viðskipti innlent 22.12.2006 16:20
Lánshæfismat Landsvirkjunar lækkar Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Landsvirkjunar. Ástæðan er lækkun lánshæfis ríkissjóðs. Viðskipti innlent 22.12.2006 15:58
Krónan fellur eftir lækkað lánshæfismat ríkissjóðs Krónan hefur fallið um tæp þrjú prósent eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands. Matsfyrirtækið segir lækkanirnar endurspegla minnkandi aðhald í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga á næsta ári og líkur hafi aukist á harðri lendingu í efnahagslífinu. Moody´s matsfyrirtækið staðfestir hinsvegar gildandi mat. Fjárlög fyrir næsta ár sögð þensluhvetjandi og á skjön við peningamálastefnu Seðlabankans. Viðskipti innlent 22.12.2006 14:29
Icelandic Group selur VGI Icelandic Group hefur gert samning um sölu á öllum hlutabréfum í VGI ehf, sem framleiðir umbúðir og rekstrarvörur til matvælafyrirtækja. Söluverð nemur 270 milljónum króna. Samningurinn tekur gildi á Nýársdag og taka nýir stjórnendur við rekstri félagsins frá þeim tíma. Viðskipti innlent 22.12.2006 14:18
Kaupþing spáir lægri verðbólgu Greiningardeild Kaupþings segir flest benda til að verðbólga hafi náð hámarki. Vegna vísbendinga um að draga muni úr eftirspurn í hagkerfinu á næstu mánuðum muni draga úr verðbólguþrýstingi. Muni verðbólgumarkmiðið Seðlabankans verða náð á þriðja fjórðungi næsta árs. Greininardeildin spáir því sömuleiðis, að fasteignaverð muni lækka um 4 prósent á næsta ári. Viðskipti innlent 22.12.2006 13:12
Össur kaupir franskt stoðtækjafyrirtæki Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur keypt franska fyrirtækið Gibaud Group fyrir um 132 milljónir Bandaríkjadala eða rúma 9,2 milljarða íslenskra króna. Gibaud Group er forystufyrirtæki í Frakklandi á sviði þróunar og framleiðslu á stuðningstækjum með sérstakri áherslu á spelkur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferðir (phlebology). Viðskipti innlent 22.12.2006 09:50
Þakplötur á ferð og flugi um land allt Björgunarsveitir víða um land hafa verið ansi uppteknar í kvöld en veðurofsinn hefur verið mikill. Þakplötur hafa víða tekist á loft sem og fótboltamörk í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Akranesi er enn með vakt við höfnina en smábátar hafa losnað upp en þá tókst þó að festa aftur. Innlent 21.12.2006 23:32
Ingunn AK komin að landi á ný Landfestar togarans Ingunn AK gáfu sig í óveðrinu í kvöld og rak hann um höfnina um tíma. Rakst hann meðal annars í löndunarkrana hjá fiskimjölsverksmiðjunni og skemmdi hann en dansaði framhjá togaranum Bjarna Ólafssyni AK. Innlent 21.12.2006 22:04
Vatnsmagn í Ölfusá minnkar Lögreglan á Selfossi sagði í kvöld að flóðið í Ölfusá væri að minnka samkvæmt mælum í ánni og er búist við því að það taki vatnsmagnið um sólarhring að fara niður fyrir varúðarmörk. Einnig hefur gengið mjög vel að dæla upp úr húsum sem flæddi inn í svæðinu. Innlent 21.12.2006 21:44
Öxnadalsheiði lokuð vegna veðurs Lögreglan á Akureyri var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu um að vegurinn á Öxnadalsheiði hefði lokast. Starfsmenn vegagerðarinnar eru að störfum við að aðstoða bíla sem fastir eru en einn flutningabíla er fastur þversum á veginum. Innlent 21.12.2006 21:04
Bílslys í Hafnarfirði Árekstur varð á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar, eða Engidalnum, um klukkan hálf átta í kvöld. Skemmdust báðir bílar það mikið að þurfti að draga þá af vettvangi. Ökumaður annars bílsins þurfti að fara á slysadeild til skoðunar en enginn meiddist alvarlega í slysinu. Innlent 21.12.2006 20:50
Sjálfstæðisflokkur samþykkir framboðslista í Reykjavíkurkjördæmum Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og norður voru samþykktir á fundi í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, verður í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, verður í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í alþingiskosningunum í maí á næsta ári. Innlent 21.12.2006 18:32
Skriðuhætta ekki enn liðin hjá Talið er að skriðuhætta sé ekki enn liðin hjá í innanverðum Eyjafirði og þá sérstaklega við bæinn Grænuhlíð. Í ljósi þess er lagt til að fólk hafist ekki við á þeim bæjum sem í mestri hættu eru taldir, það er á svæðinu frá Æsustöðum að Arnarfelli, að báðum bæjum meðtöldum. Innlent 21.12.2006 18:21
Ekkert ferðaveður á Holtavörðuheiði Vegagerðin hefur sent frá sér viðvörun og segir að ekkert ferðaveður sé á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði vegna mikillar hálku og stórhríðar. Innlent 21.12.2006 18:13
Neytendur fá kartöflu í skóinn frá Seðlabankanum Íslenskir neytendur hafa aldrei verið bjartýsnni en nú ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var í dag. Gildi vísitölunnar hækkaði um 17,3 prósent á milli mánaða og 8,5 prósent á milli ára og hefur aldrei verið hærri. Greiningardeild Kaupþings segir bjartsýnina skjóta skökku við á sama tíma og peningalegt aðhald Seðlabankans sé í hæstu hæðum. Sé bjartsýnin vísbending um þróun einkaneyslu veitir neytendum ekki af kartöflu í skóinn frá Seðlabankanum, að sögn deildarinnar. Viðskipti innlent 21.12.2006 16:27
Actavis selur lyfjaverksmiðju í Noregi Actavis hefur selt lyfjaverksmiðju sína í Lier í Noregi til norska tryggingafélagsins Storebrand fyrir 10 milljónir evra eða 900 milljónir íslenskra króna. Actavis hefur jafnframt gert fimm ára framleiðslusamning við sænska framleiðslufyrirtækið Inpac, sem leigir verksmiðuna af Storebrand. Viðskipti innlent 21.12.2006 11:51
Tillaga um stofnun móðurfélags innan Símastæðunnar Stjórn Símans hf. hefur samþykkt að leggja fram tillögu um stofnun sérstaks móðurfélags innan Símasamstæðunnar Skipti hf. á hluthafafundi í mars á næsta ári. Gert er ráð fyrir að móðurfélagið verði skráð á markað fyrir árslok 2007. Viðskipti innlent 21.12.2006 11:08
Glitnir segir hækkun vaxta í takt við verðbólguspá Gengi krónunnar hefur lækkað um 0,28 prósent í kjölfar 25 punkta hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands í morgun. Greiningardeild Glitnis segir hækkunina í takti við það sem Seðlabankinn boðaði í verðbólguspá sinni í byrjun nóvember. Viðskipti innlent 21.12.2006 10:55
Seðlabanki hækkar vexti um 0,25 prósentur Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta í 14,25%. Aðrir vextir bankans hækka einnig um 0,25%. Þetta var tilkynnt kl. 9 í dag. Gengi krónunnar hefur lækkað í morgun um 0,28%, verð hlutabréfa einnig og hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 0,35%. Innlent 21.12.2006 09:05
Metrennsli í Norðurá Í Borgarfirði hafa ár flætt yfir bakka sína og gamla brúin yfir Hvítá, milli Ferjukots og Hvítarvalla, er lokuð og íbúar í Ferjukoti því innlyksa. Innlent 20.12.2006 19:12
Bæir innlyksa vegna flóða í Hvítá Hvítá í Árnessýslu er í miklum ham og var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem áin flæddi yfir hana. Eins eru átta íbúðarhús innlyksa í Auðsholti þar sem Hvítáin beljar allt um kring. Innlent 20.12.2006 19:11
Actavis kaupir lyfjaverksmiðju á Indlandi Actavis hefur keypt verksmiðju indverska lyfjafyrirtækisins Grandix Pharmaceuticals, sem sérhæfir sig í framleiðslu og þróun samheitalyfja. auk þess sem Actavis hefur opnað nýja þróunareiningu á Indlandi sem mun sérhæfa sig í þróun virkra lyfjaefna. Kaupverð er ekki gefið upp. Viðskipti innlent 20.12.2006 13:38
Moody's staðfestir lánshæfismat bankanna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service staðfestir lánshæfiseinkunnir viðskiptabankanna þriggja í nýrri skýrslu þar sem fjallað er um bankakerfið á Íslandi. Matsfyrirtækið segir lánshæfishorfur bankanna stöðugar en hvað varðar einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika þá eru horfur neikvæðar fyrir Glitni og Landsbankann. Viðskipti innlent 20.12.2006 12:05
Taka þarf upp evru lagist ekki hagstjórnin Hysji stjórnvöld ekki upp um sig buxurnar í stjórn efnhagsmála er upptaka evru eina leiðin til að hér náist stöðugleiki í efnahagsmálum, sagði Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, þegar hann kynnti nýja skýrslu um hagstjórnarumhverfið á Íslandi í morgun. Skýrslan er áfellisdómur yfir hagstjórn bæði ríkis og sveitarfélaga auk þess sem Seðlabankinn er sagður hafa gert mistök í stjórn peningamála. Viðskipti innlent 20.12.2006 11:02
Tímaspursmál hvaða banki yrði fyrstur Ekki virðast í bráð uppi ráðagerðir hjá stóru viðskiptabönkunum að færa bókhald sitt yfir í evrur líkt og Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur upplýst um að hann ætli að gera um áramót. Málið hefur þó verið rætt og er til stöðugrar endurskoðunar bæði í Landsbankanum og Glitni. Kaupþing kýs hins vegar að tjá sig ekki um málið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26
Nú sér fyrir endann á hækkunarferli stýrivaxta Hvort sem Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti lítillega á aukavaxtaákvörðunardegi sínum á morgun eða heldur þeim óbreyttum ber sérfræðingum saman um að eftir áramót verði ferli stýrivaxtahækkana bankans sem hófst í maí 2004 örugglega lokið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26
TM Software styrkir Ljósið Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur ákveðið að styrkja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Stuðningurinn felst í að veita Ljósinu afnot af sjúkraskrárkerfinu Sögu, sem Ljósið fær aðgang að í gegnum iCura-kerfisveitu. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25
Vodafone með stærstu búð hér Í Skútuvogi í Reykjavík hefur verið opnuð stærsta Vodafone-verslun í heimi, um 400 fermetrar að stærð. Í tilkynningu Vodafone á Íslandi kemur fram að vöruúrvalið í búðinni sé einstakt og hún sé ein af fyrstu Vodafone-verslununum í heimi sem byggja á byltingarkenndri hönnun sem færa á viðskiptavinum nýja sýn á vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25
VÍS styrkir Einstök börn Í stað þess að senda jólakort tóku stjórnendur VÍS þá ákvörðun að styrkja Einstök börn um andvirði þeirra fjárhæðar sem varið hefur verið til slíks. Verður styrknum varið í stuðning við börn og barnafjölskyldur sem vegna sérstakra aðstæðna þurfa á stuðningi að halda. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26