Almannavarnir
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 37 ›
Slæmt veður á gossvæðinu og biðja fólk að snúa við Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til þeirra sem hyggjast ganga að gosstöðvunum í nótt að snúa við. Afar slæmt veður er á svæðinu og er spáð versnandi veðri í nótt. Innlent 22.3.2021 01:42
Segir að fólk hafi verið að „gleyma sér í gleðinni“ áður en svæðinu var lokað Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir að vilji hafi verið til að hafa svæðið opið en fólk hafi hegðað sér fremur óvarlega á gossvæðinu í dag. Innlent 21.3.2021 17:26
Telja ekki hættu á gasmengun nema næst gosstöðvunum Eldgos heldur áfram og hraunflæði virðist vera stöðugt samkvæmt nýrri færslu Veðurstofu Íslands á Twitter. Innlent 21.3.2021 15:25
„Finnst fólk vera komið full nálægt þessu“ Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra kveðst skilja áhuga fólks á því að vilja sjá eldgosið í Geldingadal með berum augum. Honum hugnist ekki að stilla upp löggæslu til að koma í veg fyrir að fólk fari inn á svæðið en brýnir á sama tíma fyrir því að mikilvægt sé að kynna sér þá hættu sem er til staðar á svæðinu. Fjöldi fólks hefur í dag lagt leið sína að gosstöðvunum en fólk er varað við því að fara of nálægt. Innlent 20.3.2021 20:12
Nýjar hrauntungur geta brotist fram á miklum hraða sem erfitt er að forðast á hlaupum Vísindaráð almannavarna varar við dvöl nálægt gosstöðvunum í Geldingadal. Mælt er með því að fólk virði fyrir sér gosstöðvarnar frá hæðum í kringum Geldingadal en fari ekki of nálægt. Til að mynda er varað við því að glóandi hraun geti fallið úr hraunjaðrinum og „hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða sem erfitt að forðast á hlaupum.“ Innlent 20.3.2021 18:54
Stríður straumur fólks í Geldingadal: Dæmi um að fólk mæti á gallabuxum og strigaskóm Fólk hefur í dag lagt leið sína í stríðum straumum að eldgosinu í Geldingadal. Lokað er fyrir bílaumferð inn á svæðið en fólki hefur verið hleypt inn á svæðið fótgangandi. Dæmi eru um að fólk hafi lagt af stað á vettvang illa búið fyrir þær aðstæður sem blasa við á svæðinu. Innlent 20.3.2021 17:51
Mjög óvarlegt að ganga nálægt svæðinu án þess að huga að gosmengun Gosið í Geldingadal er líklega minna en það sem kom upp í Fimmvörðuhálsi árið 2010 og ekki er talið að það muni hafa áhrif á flugumferð. Mesta hættan er af gasmengun en hún virðist þó ekki vera mikil að sögn veðurfræðings. Innlent 20.3.2021 12:29
Ekki líklegt að gasmengun berist til Grindavíkur Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir að eldgosið í Geldingadal hafi létt á spennu á svæðinu og þess sé vænst að jarðskjálftum muni fækka. Enn sé þó mögulegt að þeim gæti fjölgað, þó það sé ólíklegra. Innlent 20.3.2021 10:35
Almannavarnastig lækkað niður á hættustig Almannavarnastig hefur verið lækkað niður á hættustig vegna eldgoss í Geldingadal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Neyðtarstigi var lýst í gærkvöldi þegar ljóst var að byrjað var að gjósa. Innlent 20.3.2021 10:33
Boða til upplýsingafundar vegna eldgossins Almannavarnir og Veðurstofa Íslands boða til upplýsingafundar klukkan 14 þann 20. mars vegna eldgossins í Geldingadal. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi. Innlent 20.3.2021 02:48
Ráðleggingar um viðbrögð við gasmengun Miðað við umfang gossins í Geldingadal nú virðist það ekki koma til með að ógna byggð eða mannvirkjum. Aftur á móti er möguleiki á því að gasmengun geti valdið óþægindum hjá fólki. Innlent 20.3.2021 01:39
„Það er engin bráðahætta í gangi“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum var ræstur út í húsakynni Almannavarna í Skógarhlíð á tíunda tímanum í kvöld þegar flest benti til þess að eldgos væri hafið á Reykjanesi. Sú reyndist raunin. Innlent 20.3.2021 00:20
Almannavarnir biðla til almennings: Verið heima! Almannavarnir biðla til fólks um að halda sig heima og fylgjast með fréttum í stað þess að þjóta af stað til að fylgjast með nýhöfnu gosi. Innlent 19.3.2021 22:16
Svona var 169. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulega upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 18.3.2021 10:12
Almannavarnir sendu óvart SMS-skilaboð til íbúa á höfuðborgarsvæðinu SMS-skilaboð frá almannavörnum sem voru ætluð vegfarendum í námunda við Keili og Fagradalsfjall dreifðust um of stórt svæði og voru meðal annars send í símtæki í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu. Í skilaboðunum var ítrekað að enn væri varhugavert að vera nálægt Keili og Fagradalsfjalli. Innlent 17.3.2021 17:58
Covid-tölur gærdagsins „gleðilegar“ Tölur um fjölda þeirra sem greindust með kórónuveiruna hér á landi eru „gleðilegar“ að sögn samskiptastjóra almannavarna. Almannavarnir veita ekki upplýsingar um tölur varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi um helgar. Innlent 14.3.2021 11:55
Sér fram á að á annað hundrað verði í sóttkví í lok dags Smitrakningarteymi almannavarna er nú önnum kafið við að ná utan um alla þá sem gætu hafa orðið útsettir fyrir smiti vegna þeirra tveggja sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær. Innlent 9.3.2021 15:25
Ekki miklar líkur á eldgosi í núverandi ástandi Engar vísbendingar eru um að kvika færist hratt nær yfirborði á Reykjanesskaga og telur vísindaráð almannavarna ekki miklar líkur á eldgosi á meðan það ástand varir. Jarðskjálfti upp á allt að 6,5 að stærð er talinn á meðal líklegustu sviðsmynda í jarðskjálftavirkninni á svæðinu. Innlent 5.3.2021 17:26
Ný hraunflæðispá: Fjögur svæði þar sem gos gæti komið upp Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt nýja hraunflæðispá þar sem miðað er við þróun jarðhræringanna á Reykjanesi frá því í nótt. Spáin gerir nú ráð fyrir fjórum svæðum þar sem eldgos gæti komið upp. Innlent 4.3.2021 19:42
Rýmingaráætlun fyrir Vogana á lokametrunum Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum eru við öllu búnir og í startholunum ef til eldgoss kemur að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, en rætt var við hann í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 4.3.2021 12:34
Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest. Innlent 4.3.2021 08:33
Mæla hvort kvikugas streymi til yfirborðs Jarðvísindamenn fylgjast náið með því hvort einhverjar vísbendingar sjáist um kvikuhreyfingar í tengslum við jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Einn liður í eftirlitinu eru daglegar mælingar á gasuppstreymi. Innlent 27.2.2021 13:31
Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð Líklegustu eldgosasvæði vegna skjálftahrinunnar á Reykjanesi eru talin suður af Keili og í áttina að Þorbirni. Þetta kemur fram í spá Eldfjallafræði og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð en gæti flætt yfir Reykjanesbraut. Innlent 27.2.2021 12:15
Hætta á að hraunstraumar gætu lokað Reykjanesbraut Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að sú sviðsmynd sem dregin er upp í spá hóps á vegum Háskóla Íslands, um að ef gjósa tæki á Reykjanesskaga myndi hraun flæða um miðjan skagann, sé ein þeirra sviðsmynda sem horft sé til hjá Almannavörnum. Innlent 27.2.2021 10:51
Mikilvægt að fólk sé vel upplýst ef rýma þurfi á höfuðborgarsvæðinu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir margt geta orðið tilefni til þess að grípa þyrfti til rýminga á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir mikilvægt að fólk fái traustar upplýsingar og ani ekki af stað, ef til rýminga kæmi. Innlent 25.2.2021 19:04
Stærsti skjálftinn í tilfelli Bryndísar reyndist harður árekstur Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og einn forseta Alþingis, lenti í hörðum árekstri í Ártúnsbrekkunni í gær. Bryndís slapp með skrekkinn en bíll hennar er ónýtur. Innlent 25.2.2021 10:51
Þingheimur skelkaður en Ari Trausti telur líklegt að gjósi Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, helsti jarðvísindamaður þingsins, hefur ekki legið á þeirri skoðun sinni að jarðhræringarnar á Reykjanesi séu fyrirboði eldgoss. Innlent 25.2.2021 10:33
Hættustig vegna jarðskjálftanna nú einnig í Árnessýslu Hættustig almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga er nú einnig í gildi í Árnessýslu. Fyrr í dag var hættustigi lýst yfir á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu. Innlent 24.2.2021 20:24
Aðdragandi að eldgosi allt frá korteri og upp í vikur Jarðskjálftar um og yfir sex að stærð gætu orðið á Reykjanesskaga þar sem öflug skjálftahrina hefur riðið yfir í dag. Sérfræðingar fylgjast nú náið með því hvort skjálftavirknin færi sig austar. Þá gæti aðdragandi að eldgosi verið allt frá korteri og upp í daga og vikur. Innlent 24.2.2021 19:30
Vedur.is hrundi þegar 70 þúsund manns vildu þangað inn í einu Árni Snorrason forstjóri Veðurstofunnar segir að þegar hafi farið fram gagngerar endurbætur á vefnum vedur.is, sem lagðist niður í morgun, og þeim sé ekki lokið. Innlent 24.2.2021 17:10