Þýski handboltinn

Fréttamynd

Missti af dýr­mætum stigum gegn meisturunum

Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari Gummersbach missti af dýrmætum stigum í leik á móti toppliði Magdeburg í kvöld. Þetta er næstsíðasti leikur liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en Magdeburg vann leikinn með þremur mörkum 38-35.

Handbolti
Fréttamynd

Jafnir leikir hjá Ís­lendingunum

Haukur Þrastarsson og félagar í Rhein Neckar Löwen unnu Burgdorf í næstsíðasta leik þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Á sama tíma átti Ýmir Örn Gíslason leik með Göppingen á móti TVB Stuttgart.

Handbolti
Fréttamynd

Guð­jón Valur ó­sáttur því lið gæti grætt á tapi

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach hafa átt magnaða leiktíð í þýsku 1. deildinni í handbolta og eiga enn fræðilega möguleika á að komast í Meistaradeild Evrópu. Hann lýsir yfir vonbrigðum með að í baráttunni um sæti þar gæti lið Melsungen grætt á að tapa.

Handbolti
Fréttamynd

Göppingen vann Einar án Ýmis

Göppingen vann öruggan 34-28 sigur á Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ýmir Örn Gíslason var fjarverandi hjá sigurliðinu.

Handbolti
Fréttamynd

Guð­jón Valur pollró­legur yfir stöðunni

Forráðamenn Gummersbach hafa verið hvattir eindregið til þess að gera nýjan langtímasamning við Guðjón Val Sigurðsson áður en einhverjir af handboltarisum Evrópu ná að krækja í þjálfarann sem komið hefur Gummersbach úr öskustónni og í hóp bestu liða Þýskalands.

Handbolti
Fréttamynd

Gísli Þor­geir út­skýrir fjar­veru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir lands­liðinu“

Gísli Þor­geir Kristjáns­son segist bera ekkert nema virðingu fyrir ís­lenska lands­liðinu og þeirri vinnu sem fer þar fram er hann út­skýrir fjar­veru sína í yfir­standandi lands­liðs­verk­efni. Gísli og aðrir ís­lenskir lands­liðs­menn í liði Mag­deburgar vilja vera ferskir í lokatörn tíma­bilsins í þýska­landi þar sem í boði eru tveir stórir titlar.

Handbolti
Fréttamynd

Gætu grætt á því að tapa

Þýska handboltaveldið Kiel er í þeirri stöðu að geta mögulega grætt á því að tapa fyrir Füchse Berlín í deildarleik um helgina því það gæti hjálpað liðinu að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Handbolti
Fréttamynd

Ómar Ingi marka­hæstur á leið í úrslitahelgina

Ríkjandi meistarar Magdeburg eru komnir áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir 80-65 samanlagðan sigur í einvíginu gegn Pick Szeged. Magdeburg vann 45-37 í miklum markaleik í kvöld og Ómar Ingi Magnússon var markahæstur.

Handbolti
Fréttamynd

Mikil mis­tök að hafa selt Viggó

Karsten Günther, framkvæmdastjóri þýska handknattleiksfélagsins Leipzig, viðurkennir að það hafi verið mistök að selja íslenska landsliðsmanninn Viggó Kristjánsson til Erlangen á sínum tíma.

Handbolti