
Kynferðisofbeldi

Á tíundu hverri mínútu er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir
Kvennamorð eru hrottalegasta og grófasta birtingarmynd ofbeldis gegn konum og stúlkum og bein afleiðing kynjamismununar, kynbundins ofbeldis og úreltra hugmynda um kynhlutverk.

McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur
Bardagakappinn Conor McGregor hefur dæmdur sekur í einkamáli sem var höfðað gegn honum vegna kynferðisbrots sem Írinn framdi árið 2018. Hann þarf að greina fórnarlambinu rúmlega 36 milljónir íslenskra króna í skaðabætur.

Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar
Karlmaður hefur verið dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðislega áreitni gagnvart konu á salerni skemmtistaðar á Suðurlandi árið 2022.

Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka
Siðanefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins er klofin eftir flokkslínum varðandi það hvort birta eigi skýrslu um rannsókn nefndarinnar á meintum brotum Matt Gaetz.

Kallaði kynferðisbrot gegn stjúpdóttur djók og leik
Karlmaður hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Suðurlands vegna kynferðisbrota gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var tólf til fjórtán ára gömul.

Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice)
Á vefmiðlinum Vísir birtist áhugaverð grein að morgni 12. nóvember s.l. undir yfirskriftinni „Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið af fenginni reynslu“.

Margeir stefnir ríkinu
Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur stefnt íslenska ríkinu. Hann var sendur í leyfi í fyrra eftir að sálfræðistofa komst að þeirri niðurstöðu að Margeir hefði beitt samstarfskonu sína kynferðislegri og kynbundinni áreitni.

Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors
Bráðaliði sem sinnti konunni sem sakar Conor McGregor um að hafa nauðgað sér mundi ekki eftir að hafa séð aðra eins áverka á þolanda.

Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál
Justin Welby hefur greint frá því að hann hyggist segja af sér sem erkibiskup af Kantaraborg en hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að grípa ekki til aðgerða þegar honum var gert viðvart um stófelld kynferðis- og ofbeldisbrot John Smyth.

Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot
Wissam Ben Yedder, sem lék nítján leiki fyrir franska fótboltalandsliðið á sínum tíma, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot.

Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu
Um það bil 75 prósent þolenda kynferðisofbeldis á Englandi og í Wales segja meðferð lögreglu á máli þeirra hafa valdið þeim andlegum skaða. Aðeins einn af hverjum tíu þolendum segist myndu tilkynna mál sitt að fenginni reynslu.

Grunaður um að nauðga og brjóta ítrekað á barnungri stúlku
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Honum er gefið að sök að hafa brotið á stúlku í fjölda skipta haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna.

McGregor sakaður um nauðgun
Bardagakappinn Conor McGregor er sakaður um að hafa nauðgað konu í Dublin á Írlandi árið 2018.

Nauðgaði sofandi konu í jólateiti
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir að nauðga ungri konu um nótt um miðjan desember í fyrra.

Má spila þrátt fyrir áfrýjun
Áfrýjun Ríkissaksóknara á sýknu Alberts Guðmundssonar kemur ekki í veg fyrir að hann leiki fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu. Nýleg breyting á viðbragðsáætlun KSÍ tekur af allan vafa um það. Hann er þó meiddur á læri og því ljóst að hann muni ekki taka þátt í næsta landsleikjaglugga.

Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið
Ríkissaksóknari segist telja verulegar líkur á að sýknu Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns í nauðgunarmáli verði snúið í sakfellingu í Landsrétti.

Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni
Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari sem hlaut dóm í sumar fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni ítrekað, fær áheyrn Hæstaréttar vegna málsins. Hann var sýknaður í héraði en sakfelldur í Landsrétti og á því rétt á áfrýjun.

Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur
Landsréttur hefur staðfest sjö ára fangelsisdóm Theódórs Páls Theódórssonar, þrítugs matreiðslumanns, fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis.

Flúði land vegna ofbeldis Jóns stóra
„Hann var hress og skemmtilegur og öllum fannst hann svo æðislegur. Hann var mjög góður í að tala. Hann hefði getað selt ömmu sína, hefði hann reynt það,“ segir Sara Miller, fyrrverandi kærasta Jón Hilmars Hallgrímssonar, eða Jóns stóra, sem um tíma var einn þekktasti maður landsins. Þjóðþekktur glæpamaður, bæði umtalaður og umdeildur.

Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn nákomnu stúlkubarni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot, þar á meðal nauðganir, gegn stúlkubarni. Hann er sagður hafa ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar á alvarlegan hátt með háttsemi sinni.

Kynferðisofbeldi gegn börnum með notkun gervigreindar
Mennta- og barnamálaráðuneytið og Háskóli Íslands boða fjölmiðla á málþing um kynferðisofbeldi gegn börnum með notkun gervigreindar sem haldið er á morgun, föstudaginn 25. október kl. 13:30–15:15 í Veröld, húsi Vigdísar, að Brynjólfsgötu 1 í Reykjavík.

Árásarmaðurinn á Dubliner fær ekki áheyrn í Hæstarétti
Tíu ára fangelsisdómur Fannars Daníels Guðmundssonar vegna skotárásar, frelsissviptingar og nauðgunar stendur. Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Fannars.

Sagður hafa haldið konu á salerni skemmtistaðar og brotið á henni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni sem er sögð hafa átt sér stað aðfaranótt sunnudagsins 14. ágúst 2022 á salerni skemmtistaðar.

Leggur til að Menendez bræðrunum verði sleppt á reynslulausn
Saksóknari í Los Angeles, George Gascón, hefur mælt með því að Menendez bræðurnir, Eric og Lyle, verði dæmdir á ný. Eins og er afplána bræðurnir lífstíðarfangelsi án möguleika á skilorði fyrir að hafa myrt foreldra sína árið 1989. Saksóknari mælir með því að þeim verði sleppt úr fangelsi á reynslulausn.

Ákærður fyrir að nauðga barni og afhenda því áfengi daginn eftir
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni vegna tveggja atvika sem eru sögð hafa átt sér stað í lok júlímánaðar 2023.

„Hvernig gastu boðið þessum mönnum inn í svefnherbergið mitt?“
Gisèle Pelicot mætti fyrir dóm í Avignon í morgun og hóf mál sitt á því að ávarpa eiginmann sinn fyrrverandi, sem hefur játað að hafa nauðgað eiginkonu sinni og boðið öðrum mönnum að brjóta á henni í um áratug.

Weinstein greindur með krabbamein
Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánart tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði.

Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram
Á Instagram verða nektarmyndir nú sjálfkrafa gerðar óskýrar í einkaskilaboðum. Unglingar undir 18 ára aldri munu ekki geta breytt stillingu á reikningu úr einkaham [e. private) nema með samþykki forráðamanna. Þetta eru meðal nýrra aðgerða sem Meta, eigandi Instagram, hefur tilkynnt um sem eiga að vernda ungmenna gegn kynlífskúgun (e. sextortion) og hótunum um dreifingu kynferðislegra mynda.

„Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“
Aþena Sól Magnúsdóttir var einungis sautján ára gömul og djúpt sokkin í fíkniefnaneyslu þegar hún tók upp samband við dæmdan ofbeldismann sem á þeim tíma var á skilorði vegna fyrri brota. Sambandið einkenndist af hrottalegu ofbeldi og átti eftir að hafa hrikalegar afleiðingar.

Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman
Landsréttur hefur þyngt dóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt hann í þriggja og hálfs árs fangelsi vegna málsins, en vildi meina að háttsemi hans hefði ekki verið nauðgun. Landsréttur segir að um nauðgun sé að ræða og dæmir hann í fimm ára fangelsi.