Sjálfstæðisflokkurinn

Fréttamynd

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík

Margt er líkt í stefnu flokkanna í leikskólamálum. Margir vilja tryggja systkinaforgang og heimgreiðslur og nær allir tala í sinni stefnu um að styrkja dagforeldrakerfið. Margir vilja auka svigrúm fyrirtækja og stofnana til að opna leikskóla. Nokkrir flokkar tala um hvernig á að auka mönnun og einhverjir tilgreina nákvæmlega hversu mörgum plássum á að fjölga á kjörtímabilinu.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hluti odd­vita í glæ­nýju hlut­verki

Mikil endurnýjun er á oddvitum framboða á Akureyri og í Fjallabyggð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en af ellefu oddvitum í sveitarfélaganna eru sjö nýir. Þrír oddvitar eru enn fremur glænýir í sveitarstjórnarmálum í sveitarfélögunum, oddvitar Viðreisnar og L-listans á Akureyri og oddviti Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð. Aðeins Framsókn, Vinstri græn og Miðflokkurinn eru með sömu oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. H-listinn í Fjallabyggð heldur sig einnig við sama mann í forystusæti og síðast.

Innlent
Fréttamynd

Jón Pétur Zimsen biðst af­sökunar á færslu sinni

Jóni Pétri Zimsen þingmanni Sjálfstæðisflokksins tókst að hleypa öllu í bál og brand á samfélagsmiðlum vegna orðsendingar sem hann ritaði á X – en þar ræddi hann um könnun, sem hann sagði leiða í ljós að konur á aldrinum 15 til 25 ára væru vansælar, án þess að tilgreina um hvaða könnun hann fjallaði. Hann taldi þetta þá vera til marks um að jafnréttisbaráttan væri komin í ógöngur en hefur nú beðist afsökunar.

Innlent
Fréttamynd

Kópa­vogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá

Þann 16. maí kjósum við ekki aðeins um fulltrúa til að stýra Kópavogsbæ næstu ár, heldur um stefnu, hugarfar og framtíðarsýn. Við kjósum um hvort við ætlum að sitja hjá eða taka skref fram á við. Kjörorð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eru skýr: Kópavogur í sókn. En hvað þýðir það í raun?

Skoðun
Fréttamynd

„Komið þá með allt það sem gerðist síðast“

Forsætisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun þar sem tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Þingflokksformaður Viðreisnar sakar stjórnarandstöðuna um hræðsluáróður.

Innlent
Fréttamynd

Jón Pétur segir enga feðra­veldis­rembu í „ár­þúsunda náttúru­vali“

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, segist með færslu sinni á X um geðheil­brigði ungra, ís­lenskra kvenna alls ekki vera að leggja til að kynja­hlut­verkin verði færð aftur um 100 ár með orðum sínum um að ómögu­legt sé að bæla „niður árþúsunda náttúru­val vegna skoðana framsækinna háskóla­manna af hug­vísinda­deildum.“

Innlent
Fréttamynd

„Það þarf að taka í hand­bremsuna strax“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir rekstur meirihlutans en í nýjum ársreikningi Reykjavíkurborgar kom fram að rekstur A-hluta var neikvæður um ríflega fimm milljarða.

Innlent
Fréttamynd

„Var þetta ein­hver skets?“

Guðlaugur Þór Þórðarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hélt því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði ekki heyrt stakt orð í fyrirspurn sinni; svar hennar væri eitt það furðulegasta sem heyrst hafi í þingsal.

Innlent
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Jónas upp­lifði pot Ás­dísar ekki sem á­rás

„Ég upp­lifði þetta pot ekki sem mikla árás,“ segir Jónas Már Torfa­son, odd­viti Sam­fylkingarinnar í Kópa­vogi, sem tók ekki eftir því þegar Ás­dís Kristjáns­dóttir, bæjar­stjóri og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks, ýtti tvisvar við honum þegar þau tókust á um orðið í heitum um­ræðum á Sprengi­sandi í gær.

Lífið
Fréttamynd

Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu

Hart var á tekist þegar oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Kópavogi mættu í Sprengisand í morgun. Raunar svo hart að átökin urðu líkamleg, ef svo má segja. Ásdís Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs varð svo um þegar Jónas Már gerði atlögu að orðinu að hún potaði í hann.

Lífið
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent
Fréttamynd

Engin fyrir­tæki engin þjónusta

Grunnrekstur borgarinnar er fjármagnaður af útsvari og fasteignagjöldum borgarbúa. Launatekjur fólks standa því að stórum hluta undir rekstrinum, og því ekki ofsögum sagt að atvinnurekendur séu grunnstoð velferðar í Reykjavík. Borgaryfirvöld virðast þó ekki meðvituð um það.

Skoðun
Fréttamynd

For­seti klökknaði þegar Þór­dís Kol­brún kvaddi

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki.

Innlent
Fréttamynd

Orðinn mátt­vana í út­limum þegar hjálpin barst

Þingmanni Sjálfstæðisflokksins og syni hans var bjargað úr sjónum í Kollafirði eftir að kajakar þeirra ultu í gærkvöldi. Hann var ískaldur og orðinn máttlaus í höndum þegar hjálpin barst. Hann segir starf björgunarsveitanna ómetanlegt.

Innlent
Fréttamynd

Þór­dís Kol­brún skipuð sendi­herra í London

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi.

Innlent
Fréttamynd

Út­lit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni

Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn fallinn sam­kvæmt nýrri könnun

Meirihlutinn er fallinn í borginni ef marka má nýja könnun Gallups. Vinstrið er með sterka innkomu og bæta Miðflokkurinn og Viðreisn töluvert við sig frá síðustu kosningum. Á sama tíma missa Framsókn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn mikinn hluta síns fylgis. Stór hluti svarenda gaf ekki upp afstöðu sína eða kaus að skila auðu.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkurinn flytur í hús­næði Sjóvár

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins samþykkti á fundi sínum föstudaginn 10. apríl að flytja höfuðstöðvar flokksins í Kringluna 5, 103 Reykjavík, í húsnæði tryggingarfélagsins Sjóvá.  Flokkurinn leigir húsnæðið en leitar enn að varanlegu húsnæði til að kaupa. Stefnt er að flutningum fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí.

Innlent
Fréttamynd

STRAX-D

Ég fæ sömu spurninguna aftur og aftur þegar ég tala við fólk í borginni, hvort sem það eru almennir borgarar eða forsvarsfólk félagasamtaka: „Af hverju gerist ekkert í Reykjavík?“ Mál þvælast frá fundi til fundar, frá einni nefnd tilannarrar. Það er rýnt, skipulagt og greint

Skoðun
Fréttamynd

„Það er ekki hægt að taka jafnaðar­manninn úr mér“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hélt áfram að hamast í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna kosningafundar Samfylkingarinnar í Kópavogi en Sjálfstæðismenn vilja meina að þar hafi Kristrún lofað um 15 milljörðum árlega úr ríkissjóði í kosningaloforð Samfylkingar á sveitarstjórnarstigi.

Innlent