
Hælisleitendur

Köld nótt að baki hjá mótmælendum sem gistu á Austurvelli
Elínborg Harpa Önundardóttir aktívisti hjá No Borders Iceland segir að nóttin hafi verið köld en mótmælendur vinna nú að því að sækja um leyfi fyrir uppsetningu á tjöldum á Austurvelli.

Ætla að gista á Austurvelli: „Gæti orðið kalt, sérstaklega þegar við hættum að dansa“
Elínborg Harpa Önundardóttir, aktívisti hjá No Borders Iceland, segir í samtali við Vísi að stemningin á Austurvelli hafi verið önnur í dag en hún var í gær þegar tveir mótmælendur voru handteknir og til stimpinga kom á milli mótmælenda og lögregluþjóna.

Mótmæli hafin á nýjan leik við Austurvöll
Mótmælin eru framhald af öðrum sem fóru fram á Austurvelli og við lögreglustöðina á Hverfisgötu í gærkvöldi.

Hælisleitendur boðaðir á fund með forsætisráðuneytinu
Hælisleitendurnir, sem mótmælt hafa undir merkjum Facebook-síðunnar Refugees in Iceland, hafa undanfarið krafist funda með dómsmálaráðherra og forsætisráðherra.

Lögreglan sver af sér rasisma og harðræði
Varðstjóri segir mótmælendur hafa óhlýðnast og ráðist á lögreglumenn.

Formaður Samfylkingarinnar undrast framgöngu lögreglu á Austurvelli
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er undrandi á viðbrögðum lögreglu gagnvart hópi mótmælenda á Austurvelli í dag.

Mótmæla fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu: „Við líðum ekki óréttlæti frekar en neinir aðrir“
Lögregla handtók tvo í mótmælum á Austurvelli fyrr í dag.

Piparúða beitt á mótmælendur á Austurvelli og tveir handteknir
Harka hefur færst í mótmælin við Austurvöll.

Til stimpinga kom á Austurvelli vegna tilraunar til að tjalda
Nokkrir tugir manna söfnuðust saman á Austurvelli klukkan þrjú í dag til að mótmæla aðstæðum hælisleitenda hér á landi. Boðað var til mótmælanna á Facebook-síðunni Refugees in Iceland.

Segir lögreglu hafa haft ánægju af því að pína sig
Aðalmeðferð í máli gegn tveimur konum sem reyndu að koma í veg fyrir brottvísun hælisleitanda með því að reyna að stöðva brottför flugvélar Icelandair þann 26. maí 2016 fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Lýsir því sem áfalli þegar kæran barst
Jórunn Edda Helgadóttir segir það veita henni mikinn styrk að sjá hve margir vinir og félagar hafi verið mættir í dómssal í morgun til að sýna henni stuðning.

Mál tveggja kvenna sem reyndu að stöðva brottvísun tekið fyrir í dag
Aðalmeðferð í máli gegn tveimur konum sem reyndu að koma í veg fyrir að brottvísun hælisleitanda með því að reyna að stöðva brottför flugvélar Icelandair þann 26. maí 2016 hefst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Skrifstofu Útlendingastofnunar lokað vegna mótmæla
Mótmælin fóru friðsamlega fram eftir að hælisleitendur höfðu undirstrikað kröfur sínar um bættar aðstæður.

Lögregla vaktaði mótmæli hælisleitenda við Útlendingastofnun
Boðað var til mótmælanna á Facebook-síðunni Refugees in Iceland.

Fluttur á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun á Ásbrú
Hælisleitandi sem dvalist hefur á Ásbrú á Reykjanesi var fluttur á sjúkrahús í gær eftir sjálfsvígstilraun.

Alþingi hætti að veita ríkisborgararétt
Dómsmálaráðherra leggur til að veiting ríkisborgararéttar verði einungis á hendi Útlendingastofnunar og að heimild Alþingis til að veita mönnum ríkisborgararétt með lögum verði afnumin.

„Þau eru að brjóta á barninu okkar“
Stúlkan er fædd á Íslandi en foreldrar hennar sem eru albanskir segja dóttur sinni vera mismunað og ætla að áfrýja dómi héraðsdóms til Landsréttar.

Þjóðskrá sýknuð og fjölskyldunni að óbreyttu vísað úr landi
Þjóðskrá Íslands var sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af öllum kröfum albanskra foreldra 22 mánaða stúlku sem fæddist hér á landi. Þjóðskrá skráði lögheimili stúlkunnar sem ótilgreint í Evrópu en ekki var fallist á kröfu foreldranna um ólögmæti skráningarinnar. Fjölskyldunni verður að óbreyttu vísað úr landi.

Kröfu foreldra Ernu Reka vísað frá dómi
Vildu að úrskurður Útlendingastofnunar yrði felldur úr gildi.

Skólastjóri Vogaskóla óttast álag yrðu öll börn hælisleitenda send þangað
Jónína Ólöf Emilsdóttir segir að betra yrði að koma börnum hælisleitenda á grunnskólaaldri fyrir á tveimur til þremur skólum í borginni.

Starfshópur leggur til að senda öll börn hælisleitenda í Vogaskóla
Skýrsla starfshóps um móttöku og aðlögun barna innflytjenda, flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd leggur til að stofnuð verði stoðdeild í Vogaseli við Vogaskóla í Reykjavík.

Sérsveitarmenn björguðu manninum af brúnni
Maðurinn hefur verið metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu þar sem hann er bæði andlega og líkamlega veikur en vegna þess að veikindi hans eru ekki lífshættuleg falli þau utan þeirrar heilbrigðisþjónustu sem hælisleitendur eigi rétt á.

Hælisleitandi á tólfta degi hungurverkfalls: „Ég ætla ekki að borða þar til þau láta sig mál mitt varða“
Rauði krossinn hefur miklar áhyggjur af manninum sem er sárþjáður af gyllinæð. Þá hafa geðheilbrigðismál í hæliskerfinu aldrei verið þyngri.

Færri hælisumsóknir í fyrra en undanfarin ár
Af þeim 800 sem sóttu um alþjóðlega vernd veitti Útlendingastofnun 160 manns hana.

Andleg líðan hælisleitenda í Reykjanesbæ slæm
Hælisleitendur sem búa á Ásbrú í Reykjanesbæ kvarta undan mikilli einangrun en samgöngumöguleikar þeirra eru afar takmarkaðir. Andleg líðan íbúa sé mjög slæm. Einn hafi reynt að svipta sig lífi á dögunum.

Vilja frekar deyja en að snúa aftur á götuna á Grikklandi
Prestur innflytjenda segir það gerast í auknum mæli að flóttamenn, sem hafi fengið dvalarleyfi í Grikklandi, leiti til Íslands þar sem aðstæður þar séu óviðunandi.

Fá fræðslu um samskipti kynjanna
Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem þjónustaðir eru af Reykjavíkurborg hefur fjölgað um 318 á fimm árum. Borgin býður upp á námskeið fyrir unga karlmenn úr þessum hópi þar sem þeir fá meðal annars fræðslu um samskipti kynjanna.

Fær ekki að yfirgefa landið sjálfviljugur
Flóttamaður hér á landi getur ekki nýtt lagalegan rétt sinn til að yfirgefa landið sjálfviljugur þar sem stjórnvöld eru með vegabréf hans í vörslu sinni. Þess í stað verður hann fluttur úr landi nauðugur á morgun til lands þar sem hann segist vera ofsóttur.

Fresta flutningi fjölskyldu úr landi vegna tafa
Brottflutningur kúrdísku dýralæknanna Mardin Azeez og Didar Farid Kareem, sem Fréttablaðið fjallaði um í byrjun október, hefur verið frestað og fær umsókn þeirra um hæli hér á landi efnislega meðferð hjá Útlendingastofnun.

Ákærðar fyrir mótmæli um borð í vél Icelandair
Tvær konur sem reyndu að koma í veg fyrir að brottvísun hælisleitanda með því að reyna að stöðva brottför flugvélar Icelandair þann 26. maí 2016 hafa verið ákærðar af héraðssaksóknara vegna málsins.