Grindavík
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 74 ›
Skjálfti af stærðinni 4,2 varð við Kleifarvatn Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Innlent 3.8.2022 12:03
Óútskýrður eldur í mosa en engin kvika sjáanleg Ljósblossar í Fagradalsfjalli sem Landhelgisgæslan var send að kanna nú eftir miðnætti reyndust vera vegna elds í mosa. Engin merki eru um kviku á svæðinu. Innlent 3.8.2022 01:26
Allra augu beinast að svæði sem í fyrra var talið líklegast til að gjósa Augu jarðvísindamanna, sem og fróðleiksþyrstra landsmanna um næsta eldgos á Reykjanesskaga, beinast núna að svæði austan og norðaustan Fagradalsfjalls sem liggur til norðausturs frá eldstöðvunum í Geldingadölum í fyrra og í átt að hinu svipmikla fjalli Keili. Þar benda mælingar til að kvika streymi núna inn í kvikugang sem gæti brotist upp til yfirborðs á næstu dögum með eldgosi. Innlent 2.8.2022 22:50
Túristagos ekki endilega jákvætt Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir almannavarnir og aðra viðbragðsaðila vera viðbúna ef það skildi byrja að gjósa. Allir reyni að halda sér eins upplýstum og hægt er. Túristagos hafi vissulega jákvæð áhrif á efnahaginn en það sé ekkert grín þegar það gýs svona nálægt byggð. Innlent 2.8.2022 14:15
Vakinn af værum blundi með skjálftasímtali úr Kópavogi Grindvíkingar virðast lítið hafa fundið fyrir þremur stórum skjálftum sem riðu yfir skömmu fyrir miðnætti og í nótt. Bæjarstjórinn segir að dóttir hans hafi vakið foreldra sína í gærkvöldi með símtali úr Kópavogi, smeyk um stöðuna í Grindavík eftir að hafa fundið vel fyrir einum af skjálftunum. Innlent 2.8.2022 11:15
Rekstrarhagnaður Vísis tveir milljarðar og hélst nær óbreyttur í fyrra Rekstrarhagnaður (EBITDA) sjávarútvegsfyrirtækisins Vísir í Grindavík, sem er verið að selja til Síldarvinnslunnar fyrir samtals um 31 milljarð króna, nam tæplega 13,4 milljónum evra, jafnvirði um tveggja milljarða íslenskra króna miðað við meðalgengi síðasta árs, á árinu 2021 og jókst um 0,2 milljónir evra frá fyrra ári. Innherji 2.8.2022 08:57
Stórt bjarg hrunið úr Gálgaklettum norður af Grindavík Stórt bjarg hefur hrunið úr Gálgaklettum í Sundhnúk, norðan við Grindavík og skammt austan við fjallið Þorbjörn. Bjargið hefur mögulega hrunið vegna stóra skjálftans sem reið yfir í gærkvöldi og Grindvíkingar segja að sé sá stærsti á undanförnum árum. Innlent 1.8.2022 22:54
Íbúar Grindavíkur undirbúnir fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra Almannavarnir funduðu í hádeginu vegna jarðskjálftahrinu sem hófst á Reykjanesi um helgina. Skjálftahrinan hefur valdið nokkru tjóni á munum í Grindavík og segir íbúi að fólk sé undirbúið fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra. Innlent 1.8.2022 21:04
„Það brotnaði allt sem brotnað gat“ Grindvíkingar hafa margir hverjir orðið fyrir miklu tjóni vegna skjálftahrinunnar sem stendur nú yfir. „Þetta venst aldrei,“ segir eigandi blómaverslunar sem kom að verslunin sinni líkt og sprengju hefði verið varpað á verslunina. Innlent 1.8.2022 16:41
Upplifun íbúa að skjálftinn í gær hafi verið sá kröftugasti á síðustu árum Skjálftinn sem reið yfir rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi var einn sá kröftugasti á þeim rúmum tveimur árum sem skjálftavirkni hefur verið viðvarandi á Reykjanesi, að mati margra Grindvíkinga. Innanstokksmunir féllu úr hillum og eitthvað var um smávægilegar skemmdir. Almannavarnanefnd fundar í hádeginu um skjálftana og bæjarstjóri segir vel fylgst með stöðunni. Innlent 1.8.2022 14:01
Stór skjálfti korter yfir þrjú í nótt Skjálfti að stærð 4,3 átti sér stað fjóra kílómetra suðsuðvestan af Fagradalsfjalli klukkan fjórtán mínútur yfir þrjú í nótt og fannst skjálftinn á höfuðborgarsvæðinu. Jarðskjálftahrina við Fagradalsfjall hefur staðið yfir frá hádegi á laugardag og telja sérfræðingar kvikuhlaup valda virkninni. Innlent 1.8.2022 03:32
Fjölmargir skjálftar yfir 3,0 að stærð fylgt eftir stóra skjálftanum Jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir skammt frá Grindavík klukkan 17:48 í dag. Skjálftinn er sá langstærsti í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Jörðin á Reykjanesskaga hefur haldið áfram að skjálfa allverulega síðan þá og hafa sextán skjálftar stærri en 3,0 riðið yfir. Innlent 31.7.2022 23:43
Grindvíkingar séu tilbúnir Frá miðnætti hafa meira en fjörutíu skjálftar af stærðinni þrír eða meira mælst á Reykjanesskaga. Stór hluti þeirra hefur mælst við Fagradalsfjall, þar sem gaus í mars á síðasta ári. Í aðdraganda gossins var jarðskjálftavirkni á svæðinu mikil, og Grindvíkingar ekki farið varhluta af því. Innlent 31.7.2022 22:56
Kaldavatnslaust í Grindavík eftir stóra skjálftann Aðveitulögn fyrir kalt vatn inn í Grindavík fór í sundur við Svartsengi eftir stóra skjálftann sem reið yfir rétt fyrir sex á Reykjanesskaga. Það er því kaldavatnslaust hjá íbúum bæjarins en unnið er að því að gera við lögnina. Innlent 31.7.2022 22:41
Tilkynningar um tjón í Grindavík Almannavarnir segja tilkynningar um tjón hafa borist frá Grindavík eftir að skjálfti að stærð 5,4 reið yfir um þrjá kílómetra austnorðaustur af bænum rétt fyrir sex í kvöld. Engar tilkynningar um slys af fólki hafi hins vegar borist. Innlent 31.7.2022 20:04
Stór skjálfti að stærð 5,4 við Fagradalsfjall Stærsti skjálftinn í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir klukkan 17:48. Samkvæmt mælingum á vef Veðurstofunnar var skjálftinn 5,4 að stærð. Innlent 31.7.2022 17:49
Telur að smærri útgerðir sameinist þeim stóru á næstu árum vegna íþyngjandi veiðigjalda Hagfræðingur telur að á næstu árum muni smærri útgerðir sameinast þeim stærri vegna veiðigjalda sem þær ráði ekki við. Samkvæmt nýjum tölum frá Fiskistofu á Samherji nú aðild að fjórðungi heildarveiðiheimilda landsins eftir sameiningu Vísis í Grindavík við Síldarvinnsluna Viðskipti innlent 15.7.2022 19:31
Ekki skrítið að lögin séu óbreytt þegar „útgerðarmenn eru með stjórnmálamennina í vasanum“ Samkvæmt endanlegum útreikningum Fiskistofu á Samherji aðild að fjórðungi af heildarkvóta þjóðarinnar. Varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis segir Sjálfstæðisflokkinn ekki vilja breyta lögum um kvóta enda hafi útgerðarfélögin stutt við kosningabaráttur flokksins í gegn um árin. Viðskipti innlent 15.7.2022 12:10
Breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum ekki í augsýn og segir breytingu á stjórnarskrá eina duga til Þingmaður Viðreisnar segir nauðsynlegt að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá varðandi nýtingu á auðlindum hafsins. Ekki dugi að breyta fiskveiðistjórnunarlögum sem ekki hafi náð fram að ganga þrátt fyrir vilja meirihluta þingmanna. Innlent 14.7.2022 21:01
Ekki á leið í landsmálin þrátt fyrir sterkar skoðanir á kvótakerfinu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri er allt annað en sáttur við hvernig í pottinn er búið í sjávarútvegsmálum landsins. Hann líkir kaupunum Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi við senu úr Verbúðinni í nýjum pistli en kveðst ekki vera á leiðinni í landsmálin þrátt fyrir sterkar skoðanir á kvótamálunum. Innlent 14.7.2022 09:02
„Við erum að færa stórútgerðinni sem malar gull auðlindina okkar á silfurfati“ Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segir kaup Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík enn á ný sýna að verið sé að færa útgerðinni auðlindir hafsins á silfurfati. Löngu tímabært sé að gera breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Þau búi til elítu í landinu úr tengslum við almenning. Innlent 13.7.2022 12:08
Verðlagning Vísis við samruna inn í Síldarvinnslunna Forsvarsmenn Vísis og Síldarvinnslunnar virðast hafa náð lendingu um verð sem tekur bæði tillit til rekstrarvirðis fyrirtækisins, sem er töluvert lægra en upplausnarvirði aflaheimilda Vísis, og verðmætis aflaheimilda. Ef til vill er hér komin uppskrift að verðlagningu óskráðra sjávarútvegsfyrirtækja í þeirri samrunahrinu sem þarf að eiga sér stað á næstu árum. Umræðan 13.7.2022 08:05
Samherji á nú aðild að fimmtungi heildarkvótans Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi á Samherji aðild að fimmtungi heildarveiðiheimilda í landinu sem er verulega yfir lögbundnum viðmiðum. Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi, tilfærslu veiðiheimilda og auðssöfnun fárra í greininni. Innlent 12.7.2022 19:00
„Þetta er grundvallarástæðan fyrir því að svo margir eru ósáttir við kvótakerfið“ Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi í ljósi kaupa Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík. Kaupin sýni hvernig gríðarlegur auður getur safnast á fárra manna hendur vegna kerfis sem var búið til fyrir tugum ára. Fjármálaráðherra segir að sameiningar í sjávarútvegi hafi reynst þjóðarbúinu vel. Innlent 12.7.2022 13:01
Atvinnuleysi hefur minnkað hratt en er mest á Suðurnesjum Samkvæmt Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans hefur atvinnuleysi minnkað hraðar en reiknað var með en Hagsjáin vitnar í tölur Vinnumálastofnunar. Ekki séu margar vísbendingar um að atvinnuleysi muni aukast mikið. Innlent 12.7.2022 09:06
Blendnar tilfinningar og gríðarlegir hagsmunir í húfi Forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar segist hafa blendnar tilfinningar um kaup Síldarvinnslunnar á sjávarútvegsfyrirtækinu Vísir. Alls starfa 230 íbúar Grindavíkur hjá fyrirtækinu. Innlent 11.7.2022 21:42
Hvert barn fær um 3,3 milljarða í sinn hlut fyrir Vísi Síldarvinnslan í Neskaupsstað hefur keypt allt hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi í Grindavík. Kaupverðið er tuttugu milljarðar króna og yfirtekin lán ellefu milljarðar króna. Eigendur Vísis fá sex milljarða greitt í reiðufé og eignast átta prósenta hlut í Síldarvinnslunni Innlent 11.7.2022 13:17
Síldarvinnslan kaupir útgerðarfyrirtækið Vísi fyrir meira en 30 milljarða Síldarvinnslan í Neskaupstað, eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins, hefur náð samkomulagi um að kaupa allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis í Grindavík. Kaupverð hlutafjár er 20 milljarðar króna en að teknu tilliti til vaxtaberandi skulda Vísis, sem nema um 11 milljörðum, er heildarkaupverðið um 31 milljarður króna. Innherji 10.7.2022 20:27
Afla meiri raforku úr Svartsengi þrátt fyrir óróann undir Þorbirni Ráðamenn HS Orku stefna að því að auka raforkuframleiðslu í Svartsengi um þrjátíu til fjörutíu megavött á næstu þremur árum, aðallega með endurnýjun vélbúnaðar. Þeir óttast ekki fjárfestingar svo nálægt óróafjallinu Þorbirni. Viðskipti innlent 10.7.2022 06:50
Ná þrjátíu megavöttum með betri nýtingu á varma Reykjanesvirkjunar Mestu virkjanaframkvæmdir landsins um þessar mundir standa yfir á Reykjanesi en þar er verið að stækka jarðgufuvirkjun HS Orku um þrjátíu megavött. Ekki þarf þó að borar nýjar holur á svæðinu til orkuöflunar heldur er ætlunin að nýta betur þann jarðvarma sem þegar er til staðar. Viðskipti innlent 29.6.2022 22:22