Víkurgarður

Eitt fínasta hótel borgarinnar komið í rekstur
Í Íslandi í dag var farið í heimsókn á Hótel Alþingi eins og hið nýja Parliament Hotel útleggst á íslensku. Eftir langt og strangt ferli er risið glæsilegt hótel á þessum sögufræga stað sem stílar á betur borgandi ferðamenn – og slær ekkert af í lúxus. Sjón er sögu ríkari og vísast til innslagsins hér að ofan.

Segir fullyrðingar Ragnars Þórs um blekkingar og vandræði „úr lausu lofti gripnar“
Framkvæmdastjóri Lindarvatns ehf., eiganda Landsímareitsins við Austurvöll, segir fullyrðingar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, um ógöngur í verkframkvæmdum á Landsímareitnum ekki standast skoðun.

Helgur staður?
Á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis fyrir aftan Landsímahúsið stendur Víkurgarður, einn elsti almenningsgarður í Reykjavík, sem í daglegu tali kallast Fógetagarðurinn.

Minjastofnun hyggst áfram fylgjast með framkvæmdum á Landsímareitnum
Minjastofnun hyggst fylgjast áfram grannt með framkvæmdum á Landsímareitnum þrátt fyrir að hafa dregið til baka tillögu sína um stækkun á friðlýstu svæði Víkurgarðs.

Segir þá niðurstöðu að falla frá friðlýsingu Víkurgarðs dapurlega
Helgi Þorláksson, einn af varðmönnum Víkurgarðs, segir þá niðurstöðu að falla frá friðlýsingu alls garðsins dapurlega.

Sækja tjón sitt vegna friðunar
Minjastofnun dró í gær til baka tillögu sína um að stækka friðlýst svæði í Víkurgarði. Framkvæmdaaðili á Landsímareitnum telur sig þó hafa orðið fyrir tjóni og hyggst leita réttar síns. Óvissu létt segir Dagur B.

Minjastofnun dregur tillögu að friðlýsingu til baka
Minjastofnun Íslands hefur dregið til baka friðlýsingartillögu sína um stækkun friðlýsts svæðis í Víkurgarði þar sem fyrirhugað er að byggja hótel, veitinga-og kaffihús

„Treystum því að ráðherra muni fara að lögum“
Það mun hafa í för með sér verulegt fjárhagslegt tjón sem sótt verður af fullum þunga í ríkissjóð ef ráðherra staðfestir skyndifriðun Víkurgarðs að sögn framkvæmdastjóra Lindarvatns, sem vinnur að byggingu hótels á Landsímareitnum. Ákvörðun ráðherra mun liggja fyrir síðar í dag.

Framtíð Víkurgarðs ræðst í dag
Næstu skref í málefnum Víkurgarðs ráðast í dag, en það er Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sem tekur ákvörðun um hvort skyndifriðun skuli fram haldið.

Bjartsýn á að Víkurgarður verði friðaður að fullu
Fjölmenni mætti á baráttufund um friðun Víkurgarðs sem var haldinn í Iðnó í dag. Talsmaður baráttuhóps um friðun kirkjugarðsins segir að baráttan hafi staðið í sex ár og er vongóður um að hún skili árangri.

Ákvörðun Lilju um Víkurgarð á mánudag
Næstu skref í málefnum Víkurgarðs ráðast á mánudag þegar mennta- og menningarmálaráðherra þarf að taka ákvörðun um framhald skyndifriðunar. Fornminjanefnd tekur ekki undir með Minjastofnun.

Borgarlögmaður gagnrýnir Minjastofnun harðlega fyrir skyndifriðun
Borgarlögmaður segir að engin rök réttlæti friðun og hún styðjist ekki við tilgang laga þar sem ljóst sé að á umræddu svæði séu engar minjar til að raska.

Skúli fógeti loki hótelinu
Forstjóri Minjastofnunnar varaði hótelbyggjendur á Landsímareitnum við því að að Minjastofnun geti látið færa styttuna af Skúla fógeta og sett hana fyrir inngang hótelsins verði hann um Víkurgarð.

Telja Lindarvatn hafa brotið gegn skyndifriðlýsingunni
Settu fyllingu yfir svæðið sem heyrir undir skyndifriðlýsingu.

Telur skyndifriðlýsingu byggða á misskilningi
Minjastofnun hefur gripið til þess ráðs að koma á skyndifriðlýsingu á Landsímareitnum í miðbæ Reykjavíkur vegna ósættis við fyrirhugaðan inngang hótels sem verið er að reisa þar.

Tveir Víkurgarðsmenn sagðir hafa klipið fornleifafræðing í rassinn
Það er svo mikið af staðreyndavillum sem virðast teknar sem sannleikur í þessu máli, segir Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur sem stjórnaði fornleifauppgreftri á Landsímareitnum.