Noregur
44 45 46 47 48 49 50 … 50 ›
Stoltenberg sagði fórnarlömbin hetjur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, sagði að fórnarlömb fjöldamorðingjans Anders Breivik væru hetjur, þegar hann ávarpaði minningarsamkomu sem haldin var í Osló í dag á vegum ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins. Hreyfingin var skotmark árásarinnar á Útey. Erlent 29.7.2011 15:36
Fyrstu jarðarfarirnar fóru fram í dag Hundruðir fylgdu í dag til grafar hinni norsku Bano Rashid sem var aðeins átján ára þegar fjöldamorðinginn Anders Breivik myrti hana í Útey á dögunum. Þetta var fyrsta fórnarlamb hans sem er jarðsett. Erlent 29.7.2011 15:17
Lögmaður Breivik: Þetta er ekki spurning um sýknu eða sakfellingu Geir Lippestad, verjandi Anders Behring Breivik, segir í viðtali við norska miðilinn Verdens Gang að það hefði ekki verið auðvelt að taka ákvörðunina um að verja hryðjuverkamanninn, sem varð valdur að dauða 76 manns þann 22. júlí síðastliðinn. Erlent 29.7.2011 11:20
Glæpamenn setja fé til höfuðs Breivik Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun ekki kemba hærurnar lengi í norsku fangelsi. Hann er svo gott sem dauður. Þetta eru skilaboðin sem glæpaheimur Noregs hefur komið áleiðis til Verdens Gang stærsta dagblaðs landsins. Erlent 29.7.2011 09:23
Norska lögreglan ræðir við yfir 700 vitni Rannsókn lögreglu á hryðjuverkunum á Útey og í Osló síðastliðinn föstudag nær til sjö hundruð vitna af eyjunni og óþekkts fjölda fólks frá sprengingunni í miðborg Oslóar, auk samansafns einstaklinga sem einhver tengsl eiga við manninn sem framdi ódæðisverkin. Erlent 28.7.2011 21:19
Verður látinn svara fyrir lát hvers einasta manns sem féll Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik verður látinn svara fyrir lát hvers einasta manns sem féll á föstudag í síðustu viku, en norski ríkissaksóknarinn Tor-Aksel Busch sagði í samtali við norska ríkissjónvarpið að ljóst væri að ákæran gegn Breivik verði ekki tilbúin fyrir áramót. Erlent 28.7.2011 18:43
Fullbúin ákæra í fyrsta lagi tilbúin um áramót Fullbúin ákæra gegn norska hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik verður í fyrsta lagi tilbúin um áramót. Þetta segir norski ríkissaksóknarinn Tor-Aksel Busch í samtali við norska ríkissjónvarpið. Erlent 28.7.2011 16:31
Norðmenn skipa sérstaka rannsóknarnefnd Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að koma á fót sérstakri sjálfstæðri rannsóknarnefnd sem á að fara í saumana á því sem gerðist s.l. föstudag þegar a.m.k. 76 létu lífið í hryðjuverkaárás Anders Behring Breivik. Erlent 28.7.2011 07:42
Viðbragðskerfi norsku lögreglunnar endurskoðað Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að viðbragðskerfi norsku lögreglunnar verði endurskoðað. Lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir að handtaka árásarmanninn Breivik klukkutíma eftir að henni barst tilkynning um árásina. Boðað var til samverustundar í norræna húsinu til að minnast þeirra sem létust í voðaverkunum í síðustu viku. Erlent 27.7.2011 18:42
Pólverji ákærður fyrir að selja Breivik hættuleg efni Pólskur maður hefur verið ákærður í heimalandi sínu fyrir að selja fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik efni í sprengju. Norska Dagbladet segir að hann sé ákærður fyrir brot gegn almannaheil. Erlent 27.7.2011 13:29
Múslima grunaði múslima Múslimar eru margir slegnir yfir því að það fyrsta sem þeim datt í hug þegar þeir fréttu af morðárásunum í Noregi var að þar væru múslimar að verki. Múslimarnir voru ekki einir um það því fréttir hafa borist af því að áður en lá fyrir að árásarmaðurinn væri ljóshærður Norðmaður urðu múslimar fyrir aðkasti á götum úti í Noregi. Erlent 27.7.2011 12:27
Viðbrögð Norðmanna vekja aðdáun Óteljandi fjölmiðlar hafa vitnað í orð Hákonar krónprins sem sagði: "Við höfum kosið að mæta illmensku með kærleika. Við höfum kosið að mæta hatri með samstöðu . Við höfum kosið að sýna fyrir hvað við stöndum". Stjórnmálamenn hafa sömuleiðis lagt megináherslu á að þessi atburður muni í engu hafa áhrif á þau gildi sem Norðmenn hafa mest í heiðri. Erlent 27.7.2011 11:18
Breivik óttast kvenfrelsi Sjónvarpsþættirnir Sex and the City og áhrif þeirra á vestrænt samfélag eru norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik afar hugleikin, ef marka má stefnuyfirlýsinguna hans svokölluðu Erlent 27.7.2011 10:43
Hættuástandi aflýst í Osló, lestarferðir að hefjast Hættuástandi hefur verið aflýst við aðaljárnbrautastöðina í Osló og reiknað er með að lestarkerfi borgarinnar komist í eðlilegt horf á næsta hálftímanum eða svo. Erlent 27.7.2011 08:23
Breivik undirbjó aðra hryðjuverkaárás Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafði skipulagt aðra hryðjuverkaárás og ætlaði sér að framkvæma hana ef hann slyppi úr fangelsi eftir árásina á Útey og sprenginguna í miðborg Óslóar sem kostaði a.m.k. 76 lífið. Erlent 27.7.2011 07:22
Lestakerfi Osló stöðvað, sprengjusveit á staðnum Búið er að stöðva alla umferð um stóran hluta af lestakerfi Oslóar og flytja farþega úr lestunum á brott. Búið er að rýma aðaljárnbrautarstöðina. Einnig er búið að flytja fólk úr nærliggjandi húsum. Erlent 27.7.2011 07:19
Var tvisvar næstum flúinn Með stefnuyfirlýsingu sinni birti Anders Behring Breivik dagbók um athæfi sitt vikurnar fyrir hryðjuverkin. Þar lýsir Breivik vinnu sinni og frístundum meðan á smíði sprengjunnar stóð. Erlent 26.7.2011 21:56
Aðgerðasinnar ólíkir Breivik Sören Pind, ráðherra innflytjendamála í Danmörku, baðst í gær afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Facebook-síðu sinni. Þar sagði hann öfgahyggju vera að aukast og nefndi hópa danskra aðgerðasinna í sömu andrá og fjöldamorð Anders Behring Breivik í Noregi, sem hann sagði "djöfullegustu ásjónu“ öfgahyggjunnar. Erlent 26.7.2011 21:56
Sprengingar á búgarði Breiviks Norska lögreglan framkallaði í kvöld sprengingu á búgarði Anders Behring Breivik eftir að sprengiefni fundust á staðnum sem óæskilegt þótti að setja í geymslu. Erlent 26.7.2011 21:09
Heppinn að vera á klósettinu þegar skothríðin hófst Ungur norskur maður sem var staddur í Útey síðastliðinn föstudag segir það hafa bjargað lífi sínu að hafa verið staddur á salerninu þegar skotárásin hófst. Hann náði að flýja inn á annað salerni og sat þar af sér árásina í 90 mínútur ásamt tveimur öðrum. Erlent 26.7.2011 18:47
Lögmaður Breivik segir hann geðveikan Anders Behring Breivik er ánægður með afleiðingar hermdarverkanna sem hann framdi á föstudag, þó hann hafi ekki búist við að geta gengið jafnlangt og raun bar vitni. Lögfræðingur hans veitti hrollvekjandi innsýn í hugarheim hans í dag. Erlent 26.7.2011 18:32
Þrettán bera sama nafn og slátrarinn í Útey Þrettán norskir karlmenn bera svipað nafn og Anders Behring Breivik, sem hefur játað að hafa orðið 76 að bana í hryðjuverkaárásum í Osló og í Útey á föstudaginn. Símtölum frá blaðamönnum rignir nú yfir mennina þrettán og eru þeir dregnir niður í svaðið á allskyns spjallsíðum á Netinu. Erlent 26.7.2011 09:15
Breivik í tengslum við bresk hægri öfgasamtök Í ljós hefur komið að norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafði mikil og náin samskipti við hægri öfgasamtökin English Defence League í Bretlandi. Erlent 26.7.2011 07:18
Kalla eftir evrópskri samstöðu gegn hatri José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, kallaði í gær eftir samevrópskum viðbrögðum gegn útlendingahatri og fordómum í kjölfar hinna hryllilegu hryðjuverkaárása í Noregi. Erlent 25.7.2011 22:18
Þjóðverji bjargaði 20 ungmennum af Útey Frásagnir eftirlifenda af voðaverkunum í Útey hafa smám saman komið fram síðustu daga. Þær mála mynd af hryllilegum atburðum en inn á milli má finna sögur um manngæsku og samhjálp. Erlent 25.7.2011 22:18
Breivik var á skrá norsku öryggisþjónustunnar Nafn Anders Behring Breivik var á skrá öryggisþjónustu norsku lögreglunnar yfir Norðmenn sem átt höfðu viðskipti við pólskan eiturefnasöluaðila. Þetta kemur fram á vef norska miðilsins Verdens Gang. Erlent 25.7.2011 18:29
Færri látnir en talið var í fyrstu - enn fjölda saknað Lögreglan í Osló hefur tilkynnt að tala látinna eftir fjöldamorðin á föstudag er nokkuð lægri en talið var. Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir var sagt að 68 hefði verið skotnir í Útey og að 8 hefðu látist í sprengingunni í miðborg Oslóar. Enn er þó nokkurs fjölda saknað og því ekki hægt að segja til um endanlegan fjölda látinna. Samkvæmt þeim upplýsingum sem lögreglan býr nú yfir er heildartalan orðin 76 en ekki 93 eins og áður var talið. Erlent 25.7.2011 15:34
Haldast í hendur gegn ofbeldi Tæplega 650 þúsund manns hafa sýnt samúð sýna vegna fjöldamorðanna í Noregi og lýst yfir andúð sinni á ofbeldi, með því að skrá sig á vefsíðu norska fréttablaðsins Verdens gang. Þar af hafa þegar um þrjú þúsund Íslendingar skráð sig. Morðin í Osló og á Útey á föstudag hafa haft djúpstæð áhrif á norskt samfélag og finnur fólk um allan heim til samúðar vegna þeirra. Hægt er að skrá sig með því að smella hér, á vef VG. http://www.vg.no/nyheter/innenriks/oslobomben/lenke.php Erlent 25.7.2011 14:40
Breivik í fjögurra vikna einangrun: Segist vilja bjarga Evrópu Norska fjöldamorðingjanum Anders Breivik verður haldið í einangrun næstu fjórar vikurnar, samkvæmt ákvörðun dómsþingsins í Osló. Það er álit þingsins að nægjanleg gögn séu fyrir hendi til að ákæra Breivik. Erlent 25.7.2011 13:31
Handtaka í Póllandi í tengslum við fjöldamorðin Norska útvarpið segir að maður hafi verið handtekinn í Póllandi, sakaður um aðild að hryðjuverkaárásinni í Noregi. Anders Breivik var leiddur fyrir dómara í Osló í dag. Erlent 25.7.2011 13:20