Mexíkó
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 10 ›
Bein útsending: Málþing um ofbeldi og morð á konum í Mexíkó Íslandsdeild Amnesty International stendur að málþingi um stöðu kvenna í Mexíkó í dag milli klukkan 12 og 13. Erlent 30.11.2021 11:30
Bandaríkin opna landleiðina og flugleiðina fyrir bólusetta Stjórnvöld í Bandaríkjunum hyggjast opna landamærin að Kanada og Mexíkó í nóvember fyrir fullbólusetta einstaklinga. Þau höfðu áður tilkynnt að landið yrði opnað ferðalöngum flugleiðina einhvern tímann í næsta mánuði. Erlent 13.10.2021 11:22
Hitti móður sína aftur eftir 14 ára aðskilnað Ung kona frá Flórída í Bandaríkjunum hitti móður sína í gær, í fyrsta sinn í 14 ár. Faðir hennar er sagður hafa rænt henni og farið með hana til Mexíkó árið 2007. Hún hafði samband við móður sína í gegnum Facebook á dögunum. Erlent 14.9.2021 22:12
Sautján sjúklingar létust þegar flæddi inn á sjúkrahús Að minnsta kosti sautján sjúklingar létust þegar á flæddi inn í spítala í Hidalgo-héraði í Mexíkó í nótt. Áin sem rann í nágrenni sjúkrahússins flæddi yfir bakka sína og það leiddi til rafmagnsleysis á spítalanum. Erlent 8.9.2021 07:59
Glataðir boltar og léleg logsuða orsök mannskæðs brúarhruns Sérfræðingar sem rannsaka mannskætt lestarslys sem varð í Mexíkóborg í Mexíkó í maí telja að glataðir boltar og léleg logsuða hafi á verið meðal orsaka þess að slysið varð. 26 létust þegar brú hrundi í þann mund sem lest ók á henni. Erlent 7.9.2021 22:44
Átján ára boxari lést fimm dögum eftir rothögg Átján ára hnefaleikakona frá Mexíkó, Jeanette Zacarias Zapata, er látin eftir rothögg í bardaga gegn Marie Pier Houle í Montreal á laugardaginn. Sport 3.9.2021 13:30
Minnst átta látnir vegna fellibyls í Mexíkó Minnst átta hafa látist svo vitað sé í fellibylnum Grace í austurhluta Mexíkó. Miklar hitabeltisrigningar og vindar hafa orðið til þess að víða er rafmagnslaust og flóð eru víða. Erlent 22.8.2021 09:40
Mexíkóar ætla að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum Ríkisstjórn Mexíkó ætlar að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum vegna þess hve mörg skotvopn berast ólöglega frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Lögsóknin beinist ekki gegn yfirvöldum Bandaríkjanna. Erlent 4.8.2021 16:51
Pegasus verkefnið veldur usla í stjórnmálaheiminum Um helgina kom upp á yfirborðið að stjórnvöld um allan heim noti ísraelska njósnaforritið Pegasus til að njósna um borgara sína. Meðal þeirra sem njósnað hefur verið um eru forseti Mexíkó og helsti andstæðingur forsætisráðherra Indlands. Rúmlega áttatíu blaðamenn frá sextán miðlum hafa unnið úr gagnaleka um málið síðustu mánuði. Erlent 20.7.2021 13:22
Boðar uppbyggingu múrs á landamærum Texas Ríkisstjóri Texas hefur heitið því að reisa múr við landamæri Texas að Mexíkó. Hann hefur sett milljarð Bandaríkjadala, eða um 122 milljörðum íslenskra króna, í verkefnið. Erlent 11.6.2021 15:50
Gríðarstór vatnspyttur stækkar og stækkar og ógnar bóndabæ Stór vatnspyttur sem myndaðist skyndilega á jörð í ríkinu Puebla í Mexíkó í maí síðastliðnum hefur stækkað og stækkað og er nú á stærð við knattspyrnuvöll. Nú er svo komið að jarðvegur undir býlinu á jörðinni er farinn að láta undan. Erlent 11.6.2021 09:10
Flokkur forsetans missir meirihlutann Flokkur Andres Manuel Lopez Obrador Mexíkóforseta virðist hafa misst meirihluta sinn í neðri deild mexíkóska þingsins í kosningum sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur benda þó til þess að flokkurinn, Morena, auk stuðningsflokka hans, hafi tryggt sér nægilega mörg þingsæti til að ná meirihluta. Erlent 7.6.2021 07:31
Frambjóðendur myrtir í massavís í aðdraganda kosninga í Mexíkó Minnst 34 frambjóðendur í komandi kosningum í Mexíkó hafa verið myrtir á undanförnum dögum. Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, segir glæpagengi vera að myrða frambjóðendur til að hræða fólk frá því að taka þátt í kosningunum, sem haldnar verða þann 6. júní. Erlent 27.5.2021 15:52
Fimmtán létust þegar lestarbrú hrundi í Mexíkóborg Að minnsta kosti fimmtán létust og tugir slösuðust þegar lestarbrú í Mexíkóborg hrundi í þann mund sem lest ók á henni. Erlent 4.5.2021 06:42
Létu þriggja og fimm ára stúlkubörn falla niður fjögurra metra háan landamæravegg Bandaríska landamæragæslan birti í gær myndband sem sýnir hvar tvö börn eru látin detta yfir rúmlega fjögurra metra háan vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Börnin tvö eru systkini frá Ekvador og talið er að smyglarar hafi verið að verki. Erlent 1.4.2021 16:24
Alþjóðleg jafnréttisráðstefna að hefjast í Mexíkó „Kynslóð jafnréttis“ er yfirskrift alþjóðlegarar ráðstefnu sem hefst í dag. Ísland tekur þátt. Heimsmarkmiðin 29.3.2021 13:14
Dauðsföllin í Mexíkó sextíu prósent fleiri en áður var haldið fram Stjórnvöld í Mexíkó hafa gefið út nýjar tölur varðandi faraldur kórónuveirunnar þar í landi sem leiða í ljós að þar hefur ástandið verið mun verra en hingað til hefur verið haldið fram. Erlent 29.3.2021 07:50
Biden í basli á landamærunum Þrátt fyrir að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hafi skrifað undir forsetatilskipanir og gripið til annarra aðgerða á fyrsta degi í embætti, hefur það litlum árangri skilað á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Í ljósi þess öngþveitis sem ríkir þar. Erlent 9.3.2021 23:01
Eiginkona El Chapo handtekin í Bandaríkjunum Emma Coronel Aispuro, eiginkona hins mexíkóska eiturlyfjabaróns, Joaquín Guzmán, betur þekktur sem El Chapo, var handtekin í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Hún er grunuð um aðild að skipulögðu, alþjóðlegu eiturlyfjasmygli. Erlent 23.2.2021 07:40
Minnst ellefu látnir vegna aftakaveðurs Minnst ellefu hafa látist í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna kulda og snjókomu. Þrír létust og tíu slösuðust eftir að hvirfilbylur reið yfir í Norður-Karólínu í morgun. Björgunaraðgerðir eru enn í gangi. Erlent 16.2.2021 18:22
Dauðsföllum fjölgar hratt í Mexíkó Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Mexíkó hefur aukist hratt að undanförnu. Nú hefur landið tekið fram úr Indlandi í dauðsföllum og er nú í þriðja sæti á heimsvísu. Erlent 29.1.2021 13:00
Forseti Mexíkó greindist með Covid-19 Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, hefur tilkynnt að hann hafi greinst með Covid-19. Erlent 25.1.2021 07:50
Þjálfari kvennaliðs Santos lést úr COVID-19 Kórónuveiran hefur haft mikil áhrif á eitt liðið í kvennafótboltadeildinni í Mexíkó. Fótbolti 21.1.2021 18:00
Fyrst í bólusetningu til að halda sér í framlínunni Gjörgæsluhjúkrunarfræðingurinn María Irene Ramirez var fyrsta manneskjan í Rómönsku-Ameríku til að fá bólusetningu gegn kórónuveirunni. Bólusetningar eru farnar af stað í Mexíkó, Chile og Kosta Ríka og stefnt er að því bólusetja fyrstu einstaklinga í Argentínu á næstu dögum. Erlent 25.12.2020 10:28
Mexíkó hættulegasta land heimsins fyrir blaðamenn Mexíkó var hættulegasta land ársins fyrir blaðamenn og voru níu slíkir myrtir á árinu. Alls hafa minnst 120 blaðamenn verið myrtir í landinu frá árinu 2000, samkvæmt hópnum Nefnd til verndar blaðamönnum (e. Committee to Protect Journalists) sem vaktar ofbeldi gegn blaðamönnum á heimsvísu. Erlent 22.12.2020 10:05
Handtekinn vegna blóðbaðsins í mexíkósku eyðimörkinni Lögregla í Mexíkó hefur handtekið mann sem grunaður er um að tengjast morðinu á níu meðlimum samfélags mormóna í norðurhluta Mexíkó í nóvember á síðasta ári. Erlent 24.11.2020 09:53
Hvetur G20 að koma til móts við fátækari ríki Andres Manuel Lopez Obrador, forseti Mexíkó, biðlaði í dag til G20 ríkjanna að koma til móts við fátækari ríki í skuldamálum. Erlent 22.11.2020 20:14
Fella niður mál gegn mexíkóskum ráðherra í Bandaríkjunum Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur fellt niður ákærur á hendur fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um stórfellt fíkniefnasmygl og peningaþvætti og ætlar að framselja hann til heimalandsins. Framsalið er með skilyrði um að mexíkósk yfirvöld rannsaki hann og sæki til saka eftir atvikum. Erlent 18.11.2020 15:47
Zeta sækir í sig veðrið Hitabeltisstormurinn Zeta sækir nú í sig veðrið og er óttast að hann verði orðinn að fellibyl þegar hann lendir á Yucatan skaganum í Mexíkó síðar í dag. Erlent 26.10.2020 07:02
Saka mexíkóska ráðherrann um mútuþægni og stórfellt fíkniefnasmygl Bandarískir saksóknarar saka fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um að hafa aðstoðað við smygl á þúsundum kílóa af fíkniefnum til Bandaríkjanna gegn mútum. Erlent 16.10.2020 23:19