Landhelgisgæslan
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 29 ›
Ferðamaðurinn að Fjallabaki ófundinn: Þyrlan kölluð út Ferðamaðurinn sem kallaði eftir aðstoð á Mælifellssandi við Fjallabak er enn ófundinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út og umfangsmikil leit stendur nú yfir. Innlent 14.3.2022 22:08
Ferðamennirnir á leið af Vatnajökli til Reykjavíkur Ferðamennirnir sem leitað var að á Sylgjujökli í vestanverðum Vatnajökli eru komnir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar heilir á húfi. Hjálparbeiðni barst frá fólkinu um miðjan dag, það hafði fallið í vatn og blotnað og var orðið mjög kalt. Innlent 8.3.2022 17:38
Þyrlan og varðskipið Þór kölluð út til aðstoðar veikum sjómanni Landhelgisgæsla Íslands var í dag kölluð út til aðstoðar grænlensku fiskiskipi, sem var á veiðum djúpt vestur af Ísafjarðardjúpi, vegna veikinda hjá skipverja um borð. Bæði varðskip Gæslunnar og þyrla hennar voru kölluð út. Innlent 7.3.2022 23:37
Landhelgisgæslan sótti alvarlega slasaðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að sækja sjómann sem slasast hafði alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi. Skipverjinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi. Innlent 6.3.2022 21:25
Alvarlegar athugasemdir gerðar við þyrluskutl Gæslunnar með Áslaugu Örnu „Ferðir ráðherra eða annarra einstaklinga með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athugunarverðar.“ Innlent 25.2.2022 11:14
Freyja dregur norskt loðnuveiðiskip í höfn Varðskipið Freyja hefur síðan í gærkvöld haft norskt loðnuskip í togi sem fékk veiðarfæri í skrúfuna. Innlent 20.2.2022 10:09
Útkall barst gæslunni mínútu eftir að þyrlan tók á loft Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið að Gullfossi að sækja slasaðan einstakling. Þyrlan var nýtekin á loft til æfinga þegar útkall barst. Innlent 19.2.2022 17:26
Barnið komið upp úr sprungunni og aðgerðir afturkallaðar Betur fór en á horfðist þegar barn féll í sprungu nærri Hakinu, þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum, á öðrum tímanum í dag. Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks var kallað út og þyrla Gæslunnar ræst út. Innlent 15.2.2022 13:58
Allir hinir látnu fundnir: Sóttu líkin með kafbáti vegna erfiðra aðstæðna Aðstæður til köfunar í Þingvallavatni þóttu of erfiðar köfurum í dag vegna mikils kulda og ísmyndunar á Þingvallavatni. Því var smákafbátur með myndavélabúnaði og griparm notaður til að sækja lík þeirra sem létust í flugslysinu í síðustu viku. Innlent 10.2.2022 17:48
Aðgerðum frestað þangað til aðstæður leyfa Búið er að fresta aðgerðum á Þingvallavatni, þar sem stefnt var að því að ná líkum þeirra sem létust í flugslysinu á vatninu, þangað til aðstæður leyfa. Óvíst er hvenær hægt er að reyna aftur. Innlent 10.2.2022 10:48
Ís á vatninu hamlar aðgerðum í hörkufrosti á Þingvöllum Fresta hefur þurft aðgerðum á Þingvallavatni þar sem freista átti þess að ná líkum þeirra sem létust í flugslysunu þar í síðustu viku. Ís á vatninu hamlar aðgerðum. Innlent 10.2.2022 09:46
Tuttugu og tveir kafarar taka þátt Ríflega tuttugu kafarar koma að því að ná þeim sem fórust með flugvélinni í Þingvallavatni og flugvélinni sjálfri upp á yfirborðið. Aðgerðin sem hefst í fyrramáli er mjög flókin þar sem kafarar geta ekki athafnað sig nema í örfáar mínútur á svo miklu dýpi og kulda. Innlent 9.2.2022 19:08
Ryðja, tjalda og koma upp þyrlulendingarstað við Þingvallavatn Gert er ráð fyrir að fimmtíu til sextíu manns muni taka þátt í aðgerðum við Þingvallavatn á morgun. Um tuttugu manns vinna nú að því að setja upp vinnubúðir og aðstöðu við vatnið og er áætlað að aðgerðir hefjist klukkan níu í fyrramálið ef veður leyfir. Innlent 9.2.2022 16:36
Fluttu slasaðan vélsleðamann á Landspítalann Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna vélsleðaslyss á Arnarstapa á sunnanverðu Snæfellsnesi á fjórða tímanum í dag. Innlent 5.2.2022 19:12
Forgangsatriði að ná hinum látnu upp á yfirborðið Vont veður og erfiðar aðstæður við Þingvallavatn valda því að ólíklega verður hægt að hífa flugvélina sem fannst í gær upp úr vatninu fyrr en seint í næstu viku. Til skoðunar er þó hvort hægt verði að sækja þá látnu úr brakinu fyrr. Innlent 5.2.2022 18:17
Ná í fyrsta lagi í vélina seint í næstu viku Miðað við fyrirliggjandi veðurspá er útlit fyrir að veðurskilyrði til þess að hefja aðgerðir við að ná flugvélinni sem fannst á botni Þingvallavatns í nótt upp á yfirborðið verði ekki til staðar fyrr en í seinni hluta næstu viku. Innlent 5.2.2022 14:58
Þurfa tveggja sólarhringa veðurglugga til þess að ná vélinni á land Sérsveit ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslan þurfa minnst tvo sólarhringa af hagstæðum veðurskilyrðum til þess að ná flaki vélarinnar sem fannst í nótt á botni Þingvallavatns upp á yfirborðið. Aðgerðinni fylgja umtalsverðar hættur fyrir björgunarliðið. Innlent 5.2.2022 13:45
Veðurskilyrði slæm og flugvélin verður ekki sótt í dag Flugvélin sem fannst á botni Þingvallavatns í gærkvöldi verður ekki sótt í dag. Gríðarlega flókið verkefni bíður viðbragðsaðila; vélin er á 50 metra dýpi á svæði sem er hættulegt fyrir kafara að komast að og veðurskilyrði slæm næstu daga. Innlent 5.2.2022 10:41
„Við hættum ekki fyrr en við finnum eitthvað“ Björgunarsveitarmaður sem hefur leitað flugvélar sem týnd hefur verið frá því fyrir hádegi í gær segir leitarskilyrði vera gífurlega erfið við Þingvallavatn. Þó muni leitarfólk ekki hætta leit fyrr en vélin finnst. Innlent 4.2.2022 20:11
Flugmaðurinn sem leitað er reynslumikill og flýgur reglulega útsýnisflug Haraldur Diego, flugmaðurinn sem er einn þeirra fjögurra sem leitað hefur verið að í tæpan sólarhring, er reynslumikill í faginu. Hinir eru þrír erlendir ferðamenn. Flugvélin sem leitað er að er af gerðinni Cessna 172N með skráningarnúmerinu TF-ABB. Innlent 4.2.2022 12:02
Leit frestað til tíu í fyrramálið Leit stendur enn yfir að flugvél með fjóra innanborðs sem ekkert hefur spurst til í rúman sólarhring. Flugvélin fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálf ellefu í gær en um var að ræða útsýnisflug íslensks flugmanns með þrjá erlenda ferðamenn. Innlent 4.2.2022 06:26
Umfangsmikil leitaraðgerð vegna týndrar flugvélar Umfangsmikil leit stendur yfir að lítilli flugvél sem fór í loftið frá Reykjavík á ellefta tímanum í morgun og ekki spurst til síðan. Þrír farþegar voru í vélinni auk flugmanns. Innlent 3.2.2022 14:08
Lentu þyrlu Gæslunnar á borgarísjaka Landhelgisgæsla Íslands lenti þyrlu sinni, TF-GNA, á gríðarstórum borgarísjaka sem staðsettur var djúpt norður af Vestfjörðum síðdegis í gær. Innlent 2.2.2022 17:26
Þór ansi smár miðað við borgarísjakann Varðskipið Þór, sem þykir engin smásmíði, er ansi smátt við hliðina á borgarísjakanum stóra sem nú er um tuttugu sjómílur norður af Selskeri á Húnaflóa. Innlent 1.2.2022 18:49
Landhelgisgæslan varar við borgarísjaka Landhelgisgæsla Íslands varar við borgarísjaka sem er um 20 sjómílur norður af Selskeri á Húnaflóa. Áhöfnin á varðskipinu Þór sigldi fram hjá ísjakanum um hádegisbil í dag. Innlent 1.2.2022 17:16
Leitinni lokið og skipverjinn fundinn Umfangsmikil leit stendur nú yfir á höfuðborgarsvæðinu hjá Landhelgisgæslunni og björgunarsveitum eftir að bátur fannst mannlaus við Engey. Innlent 26.1.2022 13:14
Portúgalski flugherinn til Íslands til að sinna loftrýmisgæslu Flugsveit portúgalska hersins mun koma hingað til lands í vikunni til þess að hefja loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin mun koma hingað til lands með fjórar orrustuþotur og um 85 liðsmenn. Innlent 24.1.2022 12:11
Nær allir hlutar vindmyllunar endurunnir Nær allir hlutar vindmyllunar sem sem felld var í gær verður endurunnin, en næst á dagskrá er að búta hana niður og hreinsa svæðið. Fall vindmyllunar vakti mikla athygli í gær og létu landsmenn örlög myllunar sig varða. Innlent 5.1.2022 20:01
Vinsældir vindmyllunnar komu á óvart og mögulega efni í áramótaskaupið Stjórnarformaður félagsins sem átti vindmylluna sem féll í gær segir söknuður að myllunni. Vinsældir sprengingarinnar komu honum á óvart og bíður hann nú eftir því að sjá hvort að verkefnið rati í áramótaskaupið. Innlent 5.1.2022 12:15
Vonar að þjóðin hafi skemmt sér yfir baráttunni við vindmylluna Ásgeir Guðjónsson, einn af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar sem kom að því að fella vindmylluna í Þykkvabæ, segir að verkefnið sé með því flóknara sem hafi komið inn á borð þeirra. Um 100 kíló af sprengiefni voru notuð til að fella vindmylluna. Innlent 4.1.2022 20:46