Landhelgisgæslan
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 29 ›
Leitin að skipverjanum ekki enn borið árangur Leitinni að karlmanni, sem féll frá boði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa á laugardag var haldið áfram í dag. Hún hefur þó ekki borið árangur og henni hætt í kvöld. Leit hefst aftur í morgunsárið með varðskipi Landhelgisgæslunnar en óákveðið er hvort þyrlan verði kölluð út. Innlent 5.12.2022 19:46
Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir. Innlent 5.12.2022 14:31
Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni. Innlent 5.12.2022 10:50
Hefja leit að nýju við birtingu Leitinni að skipverja sem féll útbyrðis síðdegis í gær var frestað á tíunda tímanum í kvöld, en leit hefur ekki borið neinn árangur. Varðskipið Þór verður á svæðinu í nótt og mun áhöfn þess hefja leit aftur í birtingu. Innlent 4.12.2022 22:44
Þyrlur hættar leit en skip halda áfram fram eftir kvöldi Leit stendur enn yfir að skipverjanum sem féll útbyrðis af fiskiskipi á utanverðum Faxaflóa síðdegis í gær, þrátt fyrir að komið sé fram í myrkur. Innlent 4.12.2022 18:28
Átta skip og bátar byrjaðir að leita aftur Leit að sjómanni sem féll útbyrðis af fiskiskipi á utanverðum Faxaflóa í gær hófst aftur klukkan tíu í morgun. Átta skip og bátar eru ýmist komnir á staðinn eða væntanlegir en varðskipið Þór stýrir aðgerðunum. Innlent 4.12.2022 10:58
Leitin að sjómanninum hefst aftur í birtingu Dregið var úr umfangi leitar að sjómanni sem féll útbyrðis af fiskiskipi í utanverðum Faxaflóa í nótt. Til stendur að hefja leitina aftur við birtingu í dag. Innlent 4.12.2022 07:16
Skipverjinn ófundinn: Leitað fram á nótt Leit að manni sem féll útbyrðis af fiskiskipi um klukkan 17 í dag hefur enn engan árangur borið. Fimmtán skip og bátar ásamt tveimur þyrlum eru við leit eins sem stendur. Ekki hefur tekin ákvörðun um framhald leitar annað en að áfram verður leitað í kvöld og fram á nótt. Innlent 3.12.2022 22:09
Maður féll útbyrðis í Faxaflóa Björgunarsveitir og Landhelgisgæslan leita nú að manni sem féll útbyrðis af fiskiskipi rétt fyrir utan Faxaflóa í dag. Innlent 3.12.2022 18:15
Landhelgisgæslan dró skip til Reykjavíkur og myndaði aðgerðir Áhöfn varðskipsins Þórs kom íslensku togskipi til bjargar í gær þegar upp kom vélarbilun og leki inn í skipið. Áhöfnin tók aðgerðir sínar upp. Innlent 27.11.2022 15:28
Ökumaður fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ökumann sem velti bíl sínum á Steingrímsfjarðarheiði á Vestfjörðum nú síðdegis til Reykjavíkur. Maðurinn var einn í bílnum. Innlent 14.11.2022 20:27
Snarræði áhafnar þyrlunnar bjargaði mannslífi Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar komst í hann krappan á föstudag þegar sækja þurfti alvarlega veikan sjúkling á Ísafjörð í aftakaveðri. Áhöfnin ákvað að fljúga þyrlunni aftur á bak inn Skutulsfjörð og komst þannig á leiðarenda. Læknar sem meðhöndluðu manninn á Landspítalanum segja snarræði áhafnarinnar hafa bjargað lífi hans. Innlent 14.11.2022 07:00
Alvarlegt slys: Rann langa vegalengd niður fjallshlíð Maður rann langa vegalengd niður fjallshlíð í Mánaskál í Laxárdal rétt eftir hádegi í dag og hlaut slæm meiðsl af. Björgunarsveitir og sjúkralið fóru á vettvang og var slasaði fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Innlent 5.11.2022 18:55
Aðgæsluleysi og vanræksla ástæða strandsins Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að ástæða þess að grænlenska fiskveiðiskipið Masilik strandaði í desember á síðasta ári hafi verið aðgæsluleysi og vanræksla við stjórn skipsins. Innlent 2.11.2022 13:49
Stefnt að því að skemmtiferðaskip tilkynni leiðina að næstu höfn Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, stefnir að því að leggja fram frumvarp á vorþingi sem felur í sér ákvæði um að skemmtiferðaskip þurfi að tilkynna um áætlaða leið að næstu höfn hér á landi. Innlent 28.10.2022 10:33
Alvarlegt bílslys í Borgarfirði Alvarlegt bílslys varð á sjöunda tímanum í kvöld norður af Barnafossi í Borgarfirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti einn slasaðan til Reykjavíkur á slysadeild. Innlent 27.10.2022 21:45
Eyddu tundurdufli sem kom í veiðarfæri skips Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar eyddi tundurdufli sem kom í veiðarfæri togskips norðan við landið í dag. Tundurduflið reyndist breskt úr síðari heimsstyrjöldinni. Innlent 25.10.2022 15:53
Gert ráð fyrir Þór og flutningaskipinu til hafnar um klukkan níu Varðskipið Þór er nú á leið til hafnar í Reykjavík með flutningaskipið EF AVA í togi eftir að eldur kom upp í vélarrými skipsins síðdegis í gær. Innlent 25.10.2022 06:43
Sendu tvær þyrlur eftir sprengingu um borð í flutningaskipi Landhelgisgæslunni barst í dag tilkynning um eld um borð í erlendu flutningaskipi undan ströndum Íslands. Áhafnir tveggja þyrla, varðskipsins Þórs og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru kallaðar út á mesta forgangi. Innlent 24.10.2022 15:50
Létu eins og flugvél með 29 innanborðs hefði farist Um 200 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Ísafjarðarflugvelli laugardaginn 24. september. Þar voru æfð viðbrögð við flugslysi á eða við flugvöllinn. Innlent 24.9.2022 22:09
Búist við mikilli ölduhæð Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land næsta sólarhringinn. Varað er við því að samhliða veðrinu geti ölduhæð orðið mikil norðan og austan af landinu. Innlent 24.9.2022 20:50
Olíumengun frá togara reyndist vera sprungið hvalshræ Það sem talin var olíumengun úr togaranum Beiti TFES, og nýverið var tilkynnt um til Landhelgisgæslunnar, reyndist koma frá strungnum hvalshræi sem sat fast á perustefni skipsins. Innlent 16.9.2022 11:06
Varðskipið Þór til taks við Grímsey Varðskipið Þór kom að Grímsey um hádegisbil í dag og verður við eyjuna næstu daga. Öflug jarðskjálftahrina hefur riðið yfir í námunda við eyjuna síðan 8. september og var óvissustigi almannavarna lýst yfir á föstudaginn. Innlent 11.9.2022 14:16
Þór verður Grímseyingum innan handar Varðskipið Þór er á leið til Grímseyjar þar sem áhöfn hans verður til aðstoðar íbúum ef þess þarf. Óvissustig Almannavarna hefur verið sett á vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Innlent 10.9.2022 18:09
Ráðherra segir vonir um nýjan Baldur um áramót Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir vonir standa til þess að Vegagerðin fái nýtt skip til landsins um áramótin í stað Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Á meðan beðið sé eftir nýju skipi verði tryggt að dráttarbátur verði til staðar á Breiðafirði. Innlent 6.9.2022 22:22
Ný kirkja risin í Grímsey Á dögunum var ný Miðgarðskirkja í Grímsey orðin fokheld og turninum hafði verið komið fyrir. Í dag kom varðskipið Þór í eyna með stuðlabergsskífur sem fara á þak nýju kirkjunnar. Innlent 6.9.2022 17:45
Kona féll af baki á Tröllaskaga Um klukkan fjögur í dag var þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar kölluð út að beiðni lögreglu. Áhöfnin vinnur nú að því að sækja konu á Tröllaskaga. Innlent 3.9.2022 16:47
Skrifar sögu landhelgismálsins til þess að slaka á Fimmtíu ár eru liðin síðan landhelgin var færð út í fimmtíu mílur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sem er jafnframt sagnfræðingur hefur nú skrifað bók um sögu landhelgismálsins sem spannar árin 1961 til 1971. Innlent 1.9.2022 21:00
Slasaði hjólreiðamaðurinn undirgekkst aðgerð í nótt Karlmaður sem slasaðist alvarlega í reiðhjólakeppni á Úlfarsfelli í gær fór í aðgerð í nótt og liggur enn á Landspítalanum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á sjúkrahús í gær en talið var að áverkar mannsins væru þess eðlis að ekki væri öruggt að flytja hann með sjúkrabíl. Innlent 28.8.2022 11:24
Vitni að slysinu fengu áfallahjálp Vitni að hjólreiðaslysinu á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ í dag fengu áfallahjálp frá Rauða krossinum. Maður slasaðist alvarlega í slysinu en hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús um hádegisbilið í dag. Innlent 27.8.2022 19:34