Alvarleg mistök, dýrara í baðlónin og páskaveðrið Alvarleg mistök hafa orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna samkvæmt Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Sviðsstjóri velferðarmála segir niðurstöðurnar áfall og úrbætur hafnar. Dæmi er um um að ekkert eftirlit hafi verið með fósturheimili um nokkurra ára skeið og sums staðar voru ekki leyfi fyrir hendi. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum. 27.3.2026 18:08
Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur Tímamótadómur var kveðinn upp í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær í máli þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Fyrirtækin Meta og Google voru dæmd til þess að greiða fjölskyldu konunnar sex milljónir Bandaríkjadala í miskabætur, eða um 840 milljónir íslenskra króna. Tiktok og Snapchat gerðu dómsátt í málinu. 26.3.2026 22:07
Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn en maðurinn er kominn úr lífshættu. Við förum yfir málið í kvöldfréttum. 26.3.2026 18:00
Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Mikill viðbúnaður er vegna aftakaveðurs sem á að ganga yfir landið á morgun. Almannavarnir hvetja fólk til að halda sig heima meðan veðrið gengur yfir og vegir verða víða lokaðir. Við ræðum við fulltrúa almannavarna og lögreglu i beinni í kvöldfréttum. 25.3.2026 18:05
Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Samþykki Íslendingar að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið er gert ráð fyrir að þær verði kláraðar fyrir lok kjörtímabilsins og að ráðist verði í stjórnarskrárbreytingar fyrir næstu kosningar. Utanríkisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Ráðherra segir engar viðræður hafnar. 25.3.2026 12:50
Ráðherra í áfalli, rógsherferð og æsispennandi kosningar Barnamálaráðherra segir ljóst að bregðast þurfi við holskeflu mála þar sem starfsmenn leikskóla eru sakaðir um brot gegn börnum. Í kvöldfréttum verður rætt við ráðherra sem segist í áfalli vegna málanna. 24.3.2026 18:12
Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan. 24.3.2026 14:18
Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Fylgi Samfylkingarinnar dregst saman í nýrri könnun Maskínu og mælist um tuttugu og fimm prósent. Fylgið hefur ekki verið minna í eitt ár og hefur minnkað um sex prósentustig frá því að flokkurinn flaug hæst í september í fyrra. Samfylkingin er þó enn langstærst og á eftir henni er Miðflokkur sem mælist með um átján prósent. 23.3.2026 18:37
Glæný könnun, óveðrið og sjálfkeyrandi bílar Í kvöldfréttum sjáum við glænýja könnun Maskínu á fylgi flokkanna. Fylgið hefur verið á hreyfingu og við sjáum hvernig það stendur í dag. Þá förum við út í óveðrið og heyrum í fulltrúa björgunarsveitanna sem hafa staðið í ströngu við að aðstoða ökumenn í dag. Vegir eru víða lokaðir og flugferðir innanlands voru felldar niður. 23.3.2026 18:00
Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Gervigreind spilar sífellt stærra hlutverk í ráðningarferli fyrirtækja. Atvinnurekendum berast allt að hundraðfalt fleiri umsóknir en áður þar sem auðveldara er orðið að smíða þær og senda út með aðstoð tækninnar. 21.3.2026 16:01