Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Yfirmaður öldrunarlækninga á Landspítalanum kallar eftir frekari rannsóknum á geðrofslyfi sem næstum tvöfalt fleiri nota nú en fyrir tíu árum síðan. Sterkar vísbendingar eru um að hluti lyfjanotkunar vegna svefnvanda sé að færast á aðra lyfjaflokka. 20.10.2026 11:47
Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Íbúar Alberta-fylkis í Kanada höfnuðu í nótt tillögu um að hefja ferli í átt að sjálfstæði fylkisins. Úrslitin eru sigur fyrir forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, en aðskilnaðarsinnar segja sjálfstæðisbaráttunni ekki lokið. 20.10.2026 06:42
Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja nauðgunardómi Landsréttar þar sem maður var sýknaður eftir að hafa verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Verkefnastjóri í Háskóla Íslands segir dómara í málinu í andstöðu við eigin rökstuðning. 19.10.2026 11:44
Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt. 19.10.2026 06:39
Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 17.10.2026 20:01
„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Ýmsir hafa lagt orð í belg á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Ákvörðunin er sögð áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu Viðreisnar á meðan einhverjir vilja meina að augljóst sé að Jón sé ekki hópíþróttamaður og að hann eigi eftir að bregðast ríkisstjórninni og sínum fyrrverandi flokki. 16.10.2026 10:47
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Skipun um að að hægja á gervihnattakerfinu Starshield í Úkraínu kom innan úr Hvíta húsinu. Þetta kemur fram í frétt Reuters sem vísar í heimildir frá bandarískum og vestrænum embættismönnum sem fengu upplýsingar um málið. 16.10.2026 07:14
Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Einn var handtekinn af lögreglu fyrir hótanir og brot á vopnalagabrotum en greint er frá atvikinu í dagbók lögreglunnar. Einnig voru ökumenn sektaðir fyrir að nota farsíma við akstur og aka án þess að vera með próf. 16.10.2026 06:21
„Þetta situr náttúrulega í manni“ Íbúi á Siglufirði segir bæjarbúa standa saman í áfallinu eftir óveðrið í gær. Fjölskyldan hafi fengið skilaboð á skilaboð ofan um húsaskjól en þakið á húsi hennar fauk af í heilu lagi. Óljóst er hvenær þau geti gist í húsi sínu á ný. 15.10.2026 12:27
Andersson hafnað í sænska þinginu Tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra Svíþjóðar var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu nú rétt áðan. Niðurstaðan kemur lítið á óvart en borin var fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins væri skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins. 15.10.2026 10:52