Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Norskur jarðgangasérfræðingur sem lagði mat á borkjarna úr rannsóknarholum á Heimaey og á Landeyjarsandi í tengslum við möguleg jarðgöng til Vestmannaeyja segir kjarnana mun betri en hann hafi búist við. 15.10.2026 08:41
Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Að minnsta kosti tuttugu og sjö nemendur og einn kennari eru látnir eftir að þak skóla í borginni Peshawar í Pakistan hrundi. Fleiri nemendur eru slasaðir og þá er óttast að einhverjir séu enn þá fastir í rústum byggingarinnar. 15.10.2026 07:36
Bo Johansson er látinn Bo Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, er látinn 83 ára að aldri. Danska ríkisútvarpið greinir frá andláti hans en Johansson þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 1990-91. 15.10.2026 06:50
Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Veðurfræðingur segir veðrið að mestu leyti hafa gengið eftir en verið verra á sumum stöðum en spár gerðu ráð fyrir. 15.10.2026 06:30
Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Rússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“. 14.10.2026 07:45
„Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Gærkvöldið verður án efa eftirminnilegt fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur. Ekki nóg með að Ísland hafi unnið 5-0 sigur á Króatíu heldur spilaði fyrirliðinn sinn 150. leik í íslensku landsliðstreyjunni. 14.10.2026 07:31
„Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Vakthafandi veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að veðrið sé í samræmi við það sem spár reiknuðu með. Skil lægðarinnar séu komin við landið sunnanvert þar sem sé kominn stormur og hættulegar vindhviður. 14.10.2026 07:13
Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í nótt grunaður um líkamsárás. Alls var tilkynnt um fimmtíu mál til lögreglu í gærkvöldi og í morgun og gista þrír fangageymslu lögreglunnar. 14.10.2026 06:37
Óveður gengur yfir landið Óveður gengur nú yfir landið og tóku veðurviðvaranir gildi í öllum landshlutum á miðvikudagsmorgun. Um sextíu ára gamalt met var slegið þar sem aldrei hefur mælst jafn lár loftþrýstingur. Fylgst var með veðrinu og áhrifum þess í fréttavakt. 14.10.2026 06:25
Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Kennarar sem sinnt hafa einkakennslu í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna segja það mikið högg að Starfsmenntunarsjóður ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu. Þá segja þeir að kröfur sem menntamálaráðuneytið setji til að fá vottun sem viðurkenndur fræðsluaðili séu ómögulegar að uppfylla fyrir einstaklinga. 13.10.2026 22:02