KA fær landsliðsmarkvörð Handknattleiksdeild KA hefur fengið liðsstyrk fyrir næsta vetur með komu markvarðarins Nicholas Satchwell. Satchwell sem er fæddur árið 1991 er landsliðsmarkvörður Færeyja. 16.4.2020 17:33
Guðni reiknar með styrk úr digrum sjóðum FIFA Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segist reikna með því að FIFA og UEFA nýti sína sjóði til að styðja við aðildarsambönd sín vegna fjárhagslegra afleiðinga kórónuveirufaraldursins. 16.4.2020 07:00
Dagskráin í dag: Garnirnar raktar úr Arnari Gunnlaugs, leið Selfoss að fyrsta titlinum og úrslitaleikur Keflavíkur og Snæfells Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. 16.4.2020 06:00
Níu félög vilja ekki hætta á að spila eftir 30. júní Að minnsta kosti níu félög úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta vilja að tekin verði skýr ákvörðun um það að keppnistímabilinu verði lokið 30. júní. 15.4.2020 23:00
Guðni um Rúmeníuleikinn: „Yrðum þá væntanlega að taka pylsuna aftur“ Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að EM-umspilsleikur Íslands og Rúmeníu gæti hugsanlega verið færður fram í nóvember. Þá þyrfti væntanlega að gera á ný sérstakar ráðstafanir til að hægt yrði að spila á Laugardalsvelli. 15.4.2020 22:00
„Söluræðan“ virkaði á Berg og Birgi Grótta, sem verður nýliði í Olís-deild karla í handbolta næsta vetur, hefur fengið til sín þá Birgi Stein Jónsson og Berg Elí Rúnarsson. Báðir skrifuðu undir samning til tveggja ára við félagið. 15.4.2020 21:29
Engir áhorfendur verði tímabilið klárað í Þýskalandi Ef takast á að ljúka keppnistímabilinu í boltaíþróttunum í Þýskalandi í sumar þá verður það gert fyrir luktum dyrum. Stórar samkomur eru bannaðar í landinu út ágúst. 15.4.2020 21:00
Eigandi Dusty ánægður með stórt skref: Meiri peningar í boði þarna Íslenska rafíþróttafélagið Dusty er komið inn í atvinnumannadeild í tölvuleiknum League of Legends. Eigandi Dusty segir það opna á góða tekjumöguleika fyrir félagið. 15.4.2020 20:00
Ísland með í strandhandbolta á ÓL í París? Íslenskt landslið í strandhandbolta gæti átt eftir að keppa á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Það er að minnsta kosti stefnan hjá Haraldi Þorvarðarsyni, handboltaþjálfara. 15.4.2020 19:30
Vonandi hægt að halda flest þessara móta Hvað verður um hin fjölmennu barnamót í fótbolta sem leikin eru víða um land á sumrin? Geta þau farið fram þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins? Guðni Bergsson, formaður KSÍ, var spurður út í málið í Sportinu í dag. 15.4.2020 19:00