Sjáðu hinn 62 ára Guðjón slá öllum við og komast í úrslit Reynsluboltinn Guðjón Hauksson stóð uppi sem sigurvegari á þriðja keppniskvöldi Úrvalsdeildarinnar í pílukasti og tryggði sér þar með sæti á úrslitakvöldinu í desember. 20.10.2022 13:01
Vildi skipuleggja flug í frí en fékk bara miða í aðra áttina: „Þetta var algjört áfall“ Danski varnarmaðurinn Jesper Juelsgård segir að sér hafi verið illa brugðið þegar hann fékk að vita það fyrir rúmri viku að hann yrði ekki áfram leikmaður knattspyrnuliðs Vals. Börn hans þrjú hafi verið komin inn í íslenska skólakerfið og hann reiknað með að búa áfram á Íslandi. 20.10.2022 10:01
Markahæstur þeirra sem eftir eru en má semja við hvaða félag sem er Guðmundur Magnússon, mögulega verðandi markakóngur Bestu deildarinnar í fótbolta, er með riftunarákvæði í samningi sínum við Fram og getur því samið við hvaða félag sem er nú í haust. 20.10.2022 09:46
Carrick gerist knattspyrnustjóri Michael Carrick, fyrrverandi leikmaður Manchester United, Tottenham og West Ham, er orðinn knattspyrnustjóri og hefur samþykkt að taka við enska B-deildarliðinu Middlesbrough. 19.10.2022 16:30
Heimaleikjabann Víkinga fellt niður Ekkert verður af fyrsta heimaleikjabanninu í sögu íslensks fótbolta, sem Víkingur Reykjavík átti að sæta, því áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úrskurð þess efnis úr gildi. 19.10.2022 14:55
Fjórir erlendir Stólar á vellinum og Haukar kæra líklega Körfuknattleiksdeild Hauka mun sennilega kæra úrslit leiksins við Tindastól í VÍS-bikarkeppni karla á mánudagskvöld, vegna meints brots Tindastóls á reglum um fjölda erlenda leikmanna. 19.10.2022 14:33
Arnór, Jesper, Heiðar og Sebastian í burtu frá Val Valsmenn eru þegar komnir vel á veg með að móta þann leikmannahóp sem Arnar Grétarsson fær í hendurnar þegar hann tekur við sem þjálfari liðsins að loknu tímabilinu í Bestu deild karla í fótbolta. 19.10.2022 13:32
Þrír berjast við goðsögnina Guðjón um sæti í úrslitum Hinn 62 ára gamli Guðjón Hauksson, ellefufaldur Íslandsmeistari í einmenningi í pílukasti, mætir til leiks í kvöld þegar þriðja keppniskvöldið í Úrvalsdeildinni fer fram á Bullseye, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 19.10.2022 12:30
„Gesturinn“ hló að mynd af sér með Miedema Beth Mead varð markadrottning EM í fótbolta í sumar, átti flestar stoðsendingar, var valin best og varð Evrópumeistari með Englandi. Samt þekkja ekki allir hana í sjón. 18.10.2022 17:31
Klopp fær stuðning frá öðrum stjórum Mikið hefur verið rætt og ritað um reiðikast Jürgens Klopp og bræði fleiri knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni um helgina, gagnvart dómurum. Kollegar Klopps segja hegðun hans skiljanlega. 18.10.2022 17:00