Ísland á sex stórmót í handbolta á næsta ári Evrópska handknattleikssambandið tilkynnti í dag að Ísland yrði meðal þátttakenda í lokakeppni EM U19 og U17 landsliða kvenna næsta sumar. Þar með spila sex landslið Íslands á stórmóti í handbolta á næsta ári. 18.10.2022 16:23
Íslensku liðin mæta Elche og Madeira Valskonur drógust gegn spænska liðinu Elche og Eyjakonur gegn portúgalska liðinu Madeira þegar dregið var í 32 liða úrslit Evrópubikarsins í handbolta í dag. 18.10.2022 14:46
Jota missir af HM: „Sorgarfréttir fyrir strákinn, okkur og Portúgal“ Nú er orðið ljóst að portúgalski sóknarmaðurinn Diogo Jota missir af heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í Katar í næsta mánuði. 18.10.2022 13:24
Vilja afnema úrslitakeppnina strax Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Vålerenga, liðsins sem Ingibjörg Sigurðardóttir leikur með, vilja að nýja úrslitakeppnin sem notast er við í úrvalsdeild kvenna í Noregi í ár verði afnumin strax. 18.10.2022 12:03
Yfirlýsing ÍBV: Ætlaðir ljótir hlutir og undir því ætlum við ekki að sitja Knattspyrnuráð ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ráðið hafnar alfarið ásökunum um að aðbúnaði kvennaliðs félagsins hafi með ýmsum hætti verið ábótavant á nýafstaðinni leiktíð. 17.10.2022 15:34
Rekinn með tölvupósti: „Harkalegur kinnhestur“ „Þau gerðu þetta í gegnum tölvupóst fyrir 3-4 dögum,“ segir Jonathan Glenn sem þrátt fyrir frábæran árangur sem þjálfari kvennaliðs ÍBV í fótbolta í sumar hefur nú verið rekinn úr starfi. 17.10.2022 14:30
Sindri gaf ÍR sigur ÍR-ingar eru komnir áfram í 16-liða úrslit VÍS-bikars karla í körfubolta án þess að hreyfa legg eða lið því Sindri gaf leikinn við ÍR í 32-liða úrslitum. 17.10.2022 10:57
„Fann að maður vildi ekki svíkja alla“ „Maður var alveg að bugast [eftir að hafa hlaupið í þrettán klukkutíma í myrkri] en maður veit að sólin kemur upp,“ sagði Þorleifur Þorleifsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í bakgarðshlaupi. 17.10.2022 10:09
Jón Axel má spila með Grindavík Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson er kominn með félagaskipti til uppeldisfélags síns Grindavíkur og getur því spilað með liðinu í Subway-deildinni í körfubolta í vetur. 17.10.2022 09:31
HM-ævintýri Íslands á veitu FIFA: „Gerðu eitthvað sem var áður ómögulegt“ Alþjóða knattspyrnusambandið hefur nú birt á streymisveitu sinni, FIFA+, sérstakan þátt um HM-ævintýri Íslands sem árið 2018 varð fámennasta þjóð sögunnar til að taka þátt á HM karla í fótbolta. 14.10.2022 17:00