Gular viðvaranir fyrir vestan og sunnan Spáð er vaxandi norðaustanátt í dag sem mun ná í 15 til 25 metra á sekúndu eftir hádegi. 4.4.2020 07:41
Tekinn á 125 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 50 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann eftir að hann mældist á 125 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund. 4.4.2020 07:13
Dauðsföllum fjölgar um tæpan fjórðung í Bretlandi 684 hafa dáið vegna Covid-19 í Bretlandi á undanförnum sólarhring og er heildarfjöldi látinna nú í 3.605. Fjöldi látinna hefur verið að aukast síðustu daga og hefur aldrei verið hærri, eða 23 prósent. 3.4.2020 14:46
Ellefu félög BHM semja við ríkið Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og svo efnt til atkvæðagreiðslu um hann meðal hvers félags. 3.4.2020 13:44
Störfum fækkar í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í tæp tíu ár Miðað við nýjustu tölur yfirvalda þar hefur störfum fækkað um minnst 701 þúsund og atvinnuleysi fór úr 3,5 prósentum í 4,4 prósent. 3.4.2020 13:24
Tuttugu sjúklingar í þúsund rúma sjúkraskipi Sjúkraskipið USNS Comfort átti að létta undir með heilbrigðiskerfi New York borgar þar sem umfangsmikil útbreiðsla nýju kórónuveirunnar hefur sett mikið álag á sjúkrahús. 3.4.2020 10:52
Loka af bæ strangtrúaðra gyðinga þar sem kórónuveiran er talin mjög útbreidd Lögreglan í Ísrael hefur lokað af bænum Bnei Brak, þar sem margir strangtrúaðir gyðingar búa, vegna þess hve nýja kórónuveiran hefur dreifst þar samkvæmt sérfræðingum. 3.4.2020 10:20
Nýr og ódýrari iPhone á leiðinni? Sögusagnir eru á kreiki um að Apple muni opinbera nýjan síma á næstu dögum og jafnvel í dag. Það er síminn iPhone SE, sem á að vera ódýrari týpa af símum Apple. 3.4.2020 08:40
Ráku skipstjóra flugmóðurskips sem kallaði eftir hjálp vegna faraldursins Sjóher Bandaríkjanna lækkaði skipstjóra flugmóðurskipsins Theodore Roosevelt um tign í gær og færði hann úr stöðu sinni. Með því var honum refsað fyrir leka bréfs sem hann sendi til yfirmanna sinna og annarra vegna fjölda smita Covid-19 um borð í flugmóðurskipinu. 3.4.2020 07:47
Ríkisstjóri Georgíu segist nýbúinn að fá vel þekktar upplýsingar um faraldurinn Brian Kemp, ríkisstjóri Georgíu í Bandaríkjunum, sagði í gær að hann hefði komist að því á þriðjudaginn að fólk sem sýnir ekki einkenni gæti smitað aðra af Covid-19. 2.4.2020 15:05