Þrír dánir og tveir særðir eftir skothríð í byssubúð Maður skaut tvo til bana í byssubúð og skotsvæði í úthverfi New Orleans í Bandaríkjunum í gær. Hann er sagður hafa gengið þar inn og hafið skothríð og var árásarmaðurinn sjálfur skotinn til bana þegar starfsmenn og viðskiptavinir verslunarinnar hófu sjálfir skothríð. 21.2.2021 07:47
Töluvert af stútum á ferðinni Lögregluþjónar stöðvuðu fjölda ökumanna í gærkvöldi og í nótt, sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, samkvæmt dagbók lögreglunnar. 21.2.2021 07:20
Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins. 20.2.2021 15:25
Áfrýjun Navalnís hafnað Áfrýjunardómstóll í Moskvu hefur hafnað áfrýjun Alexei Navalní varðandi fangelsisdóms sem hann hlaut nýverið. Stjórnarandstæðingurinn rússneski verður mögulega sendur til fanganýlendu í dag. 20.2.2021 13:41
Hótuðu starfsfólki lífláti og heimtuðu pening Þrír menn vopnaðir hnífum reyndu að fremja rán í verslun í miðbænum í morgun. Gengu þeir þar inn, hótuðu starfsfólki lífláti og heimtuðu peninga. 20.2.2021 12:30
Enginn greindist innanlands og einn á landamærunum Enginn greindist smitaður af Covid-19 hér innanlands í gær og einn greindist á landamærunum. 20.2.2021 11:10
Repúblikanar reyna víða að gera fólki erfiðara að kjósa Repúblikanar víða um Bandaríkin vinna nú hörðum höndum að því að gera fólki erfiðara að taka þátt í kosningum þar í landi. Beina þeir sjónum sínum sérstaklega að póstatkvæðum og öðrum aðferðum sem fólk getur beitt til að greiða utankjörfundaratkvæði. 20.2.2021 11:01
Bitin í rassinn af birni Kona sem var í útilegu í Alaska í síðustu viku særðist á rassi þegar hún gekk örna sinna í kamri í óbyggðum ríkisins og telur að björn, sem var búinn að koma sér fyrir í kamrinum, hafi bitið sig. 20.2.2021 07:58
Grímudólgur réðst á starfsmann verslunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir lögregluþjóna hafa haft í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að mikið var um útköll og þar af var ellefu útköllum vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum sinnt. 20.2.2021 07:27
Segir Bandaríkin „snúin aftur“ Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ávarpaði gesti árlegrar öryggisráðstefnu í München í dag og sagðist ætla að senda skýr skilaboð. Þau væru á þá leið að Bandaríkin væru „snúin aftur“ og að Bandaríkin myndu bæta samskipti bandamanna þeirra hinum megin við Atlantshafið. 19.2.2021 17:07
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent