Einstöku „Íslandshjóli“ stolið af miklum Íslandsvini Hjóli ofurhugans og ljósmyndarans Chris Burkard var stolið úr íbúð hans í Reykjavík í dag. Gluggi var spenntur upp á íbúð hans og það eina sem innbrotsþjófurinn tók var hjól sem var sér hannað fyrir Ísland. Einungis tvö svona hjól eru til. 14.1.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einar hörðustu aðgerðir frá upphafi kórónuveirufaraldursins taka gildi á miðnætti. Aðeins tíu manns mega koma saman. Sóttvarnalæknir vildi þó ganga lengra. Við förum yfir aðgerðirnar í fréttatímanum okkar á samtengdum Rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30. 14.1.2022 18:01
Vegfarandi stöðvaði ofurölvi ökumann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um rásandi aksturlag og mögulegan ölvunarakstur. Sá sem lét lögregluna vita stoppaði sjálfur akstur ökumannsins er hann stoppaði á rauðu ljósi. 14.1.2022 17:36
Viðræður strand og Rússar skoða hernaðaraðgerðir Zbigniew Rau, utanríkisráðherra Póllands, varaði við því í dag að hætta væri á stríði í Evrópu. Viðræður milli Bandaríkjamanna, Atlantshafsbandalagsins og Rússa um spennuna við landamæri Rússlands og Úkraínu hafa engum árangri skilað og Rússar segjast vera að skoða mögulegar hernaðaraðgerðir. 13.1.2022 23:08
Ákærðir fyrstir fyrir uppreisn vegna árásarinnar á þingið Stofnandi og leiðtogi hægri-öfgasamtakanna Oath Keepers hefur verið handtekinn og ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið í Bandaríkjunum í janúar í fyrra. Auk Stewart Rhodes hafa minnst tíu aðrir meðlimir og félagar samtakanna verið handteknir. 13.1.2022 22:01
„Algjörlega óviðráðanlegar aðstæður“ Ökumaður stærðarinnar vöruflutningabíls lenti í miklu basli á Háreksstaðaleið seinni partinn í gær í gríðarlegu hvassviðri og hálku. Framkvæmdastjóri Smyril Line þakkar fyrir að ekki hafi farið illa en einn reyndasti bílstjóri fyrirtækisins var undir stýri. 13.1.2022 18:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir hefur sérstakar áhyggjur af notkun hraðgreiningarprófa fyrir stærri viðburði því talsvert sé um að þau gefi falskar niðurstöður. Hann leggur til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra, aðeins tveimur dögum eftir að síðustu aðgerðir voru kynntar. 13.1.2022 18:00
Andrés missir titla sína Andrés prins hefur afsalað sér titlum sínum vegna ásakana gegn honum um kynferðisbrot. Um er að ræða titla hans innan hersins og konungsfjölskyldunnar og mun hann ekki koma að opinberum viðburðum en þessi ákvörðun var tekin með samþykki Elísabetar drottningar, móður Andrésar. 13.1.2022 17:38
Fella niður kennslu fyrir austan Aðgerðastjórn Austurlands ákvað á fundi í dag að fella niður kennslu í Nesskóla í Neskaupstað, Eskifjarðarskóla og Grunnskóla Reyðarfjarðar á morgun, föstudaginn 14. janúar. Það er gert vegna fjölgunar smitaðra á landshlutanum undanfarna daga. 13.1.2022 17:29
Ronnie Spector söngkona Ronettes er dáin Söngkonan Ronnie Spector, sem leiddi hljómsveitina The Ronettes og er hvað þekktust fyrir lög eins og Be My Baby og Baby I Love You, er dáin. Hún var 78 ára gömul. Í tilkynningu frá fjölskyldu hennar segir að Spector hafi glímt við krabbamein og hún hafi látist í faðmi fjölskyldu hennar. 12.1.2022 23:50