Stefna bandamönnum Trumps vegna sakamálarannsóknar í Georgíu Nokkrum af ráðgjöfum og bandamönnum Donalds Trump hefur verið stefnt vegna sakamálarannsóknar sem stendur nú yfir í Georgíuríki vegna viðleitni Trumps við að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020. Meðal þeirra sem búið er að stefna eru Rudy Giuliani, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, og Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður. 5.7.2022 22:15
Eins og þruma úr heiðskíru lofti Óvænt árás mávs á rottu á Kársnesi náðist á myndband í dag. Mávurinn steypti sér úr loftinu á miklum hraða og greip rottuna í gogginum. Rottan féll skömmu síðar aftur til jarðar. 5.7.2022 20:44
Dulbjó sig sem konu eftir árásina Hinn 22 ára gamli Robert E. Crimo, sem sakaður er um mannskæða skotárás í úthverfi Chicago í gær, keypti hálfsjálfvirkan riffil sem hann notaði við árásina með löglegum hætti. Eftir skothríðina er Crimo sagður hafa flúið af vettvangi með því að dulbúa sig sem konu og fela sig meðal flýjandi almennings. 5.7.2022 19:56
Ríkisstjórn Borisar sögð riða til falls eftir afsagnir Tveir háttsettir ráðherrar í ríkisstjórn Bretlands hafa sagt af sér í dag. Það er eftir sjónvarpsviðtal þar sem Boris Johnson, forsætisráðherra, viðurkenni að hann hefði ekki átt að skipa þingmann Íhaldsflokksins í stöðu aðstoðarþingflokksformanns, eftir að sá hafði verið sakaður um að káfa á tveimur mönnum. 5.7.2022 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Loftslagsráð og Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna stjórnvöld fyrir óskýr markmið í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum á sama tíma og losun gróðurhúsalofttegunda eykst mjög eftir heimsfaraldur. Ráðherra tekur undir gagnrýnina og vill gera betur. 5.7.2022 18:01
Búið að handtaka árásarmanninn Lögregluþjónar í Highland Park, úthverfi Chicago í Bandaríkjunum, hafa handtekið manninn sem hóf skothríð á skrúðgöngu í bænum í dag. Maðurinn skaut minnst sex til bana og særði 24. 4.7.2022 23:50
Heard vill úrskurðinn gegn sér felldan niður Lögmenn leikkonunnar Amber Heard hafa farið fram á það við dómara að úrskurðurinn í máli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni verði felldur niður og ný réttarhöld fari fram. Hún var nýverið dæmd til að greiða honum tæpar tvo milljarða króna í skaðabætur fyrir meiðyrði. 4.7.2022 23:38
Lýsa aðstæðum sem „helvíti á jörðu“ Úkraínskir hermenn eru að koma sér fyrir í nýjum varnarstöðum í austurhluta landsins eftir að Rússar náðu tökum á síðustu borg Luhansk-héraðs. Lysychansk féll i hendur Rússa um helgina og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir sigri í Luhansk. 4.7.2022 22:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið þrjá til bana í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn í gær verður í varðhaldi á lokaðri geðdeild út mánuðinn. Myndbönd úr eftirlitsmyndavélum gætu skipt sköpum við rannsókn málsins. Kaupmannahöfn er í sárum, segir sendiherra Íslands í borginni. 4.7.2022 18:01
Mannskæð skotárás á skrúðgöngu í Bandaríkjunum Minnst sex liggja í valnum og minnst 24 eru særðir eftir að maður hóf skothríð á skrúðgöngu í úthverfi Chicago í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn gengur enn laus og er lögreglan með mikinn viðbúnað á svæðinu. 4.7.2022 17:56