Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Agnar Már Másson skrifar 4. október 2026 22:28 Úr búkmyndavél lögreglumannsins. Lögreglumaður í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið sýknaður af manndrápsákæru eftir að hann skaut svartan mann til bana í dyragættinni hjá honum árið 2024.
Lögreglumaðurinn, hinn 38 ára Eddie Duran, var sýknaður á fimmtudag. Þann 3. maí 2024 bankaði Duran á dyr íbúðar Forston í Okaloosa-sýslu í Flórída eftir að tilkynnt hafði verið um hávaðarifrildi í húsakynnum í hverfinu. Nokkrum sekúndum eftir að Forston, sem var einn heima á þessum tíma, kom til dyra skaut Duran húsráðandann til bana en Forston var þeldökkur og hermaður í flugher Bandaríkjanna. Fortson hélt á skammbyssu þegar hann kom til dyra en fjölskylda hans hélt því fram að lögregluþjónninn hefði bankað á rangar dyr. Yfirvöld hafa gefið út að tilkynningin um hávaða á heimilinu hafi verið röng. Myndband úr búkmyndavél lögreglufulltrúans sýndi að Fortson opnaði dyrnar með skammbyssu sér við hlið sem vísaði í gólfið. Lögreglumaðurinn hóf þegar í stað skothríð mörgum sinnum úr návígi. Fortson lést síðar á sjúkrahúsi. Hér að neðan má sjá myndbandið úr búkmyndavél lögregluþjónsins. Á eftir því má svo sjá myndband sem kærasta Forston tók af spjaldtölvu sinni en hún var í samtali við Fortson þegar hann var skotinn. Þar má heyra lögregluþjóninn segja Fortson að hætta að hreyfa sig, þegar sá síðarnefndi segist eiga erfitt með andardrátt. Eric Aden, lögreglustjóri í Okaloosa, rak Duran mánuði eftir atvikið og sagði að valdbeitingin hefði ekki verið réttlætanleg. Verjandi lögreglumannsins sagði í yfirlýsingu á föstudag að Duran hefði verið „að sinna starfi sínu“ þennan dag og að Fortson hefði enn verið á lífi ef hann hefði ekki vopnast áður en hann kom til dyra. Embætti ríkissaksóknara hvetur almenning til að bregðast „friðsamlega“ við dómnum. „Við skiljum að þessi dómur mun valda sársauka, reiði eða vonbrigðum hjá mörgum, sérstaklega sumum í samfélaginu sem líta á dauða flugliðans Fortson í samhengi við samskipti lögreglu á landsvísu,“ sagði í yfirlýsingu embættisins, að því er Reuters greinir frá. Skotárásin á Fortson var mikið fréttaefni í Bandaríkjunum á sínum tíma og hratt af stað umræðum um kynþátt og valdbeitingu lögreglu. Ben Crump mannréttindalögmaður segist í yfirlýsingu munu draga Duran og fleiri til ábyrgðar í málinu. Crum hefur áður unnið margra milljóna dollara sáttir fyrir fjölskyldur annarra svartra manna sem lögreglan hefur drepið, þar á meðal 27 milljónir dollara frá Minneapolis-borg fyrir morðið á George Floyd árið 2020 og 12 milljónir dollara frá Louisville-borg fyrir dauða Breonnu Taylor sama ár. Hann hefur nú höfðað alríkismál gegn Duran, lögreglustjóraembættinu í Okaloosa-sýslu og fleirum fyrir hönd fjölskyldu Fortson.
Dauði George Floyd Bandaríkin Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Sjá meira