Flugu farandfólki óvænt til Martha's Vineyard Ríkisstjórar Texas og Arizona í Bandaríkjunum, sem eru Repúblikanar, hafa um mánaða skeið sent farandfólk með rútum til borga í Bandaríkjunum, án þess að láta Demókratana sem stjórna þar vita. Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, tók þetta skrefinu lengra á dögunum og flaug um fimmtíu manneskjum frá Texast til Martha‘s Vineyard í Massachusetts. 16.9.2022 09:19
Gátukvöld hjá Gameverunni Það verður reynt á heilastarfsemina í streymi Gameverunnar í kvöld. Marín og Kalli ætla að rugla áhorfendur og hvort annað í First Class Escape. 15.9.2022 20:31
Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, þakkaði Xi Jinping, forseta Kína, fyrir yfirvegaða afstöðu til innrásarinnar í Úkraínu. Pútín sagðist þó hafa skilning á spurningum og áhyggjum Xi af ástandinu í Úkraínu. Þá hét Pútín stuðningi Rússa við Kína varðandi meint yfirráð þeirra yfir Taívan. 15.9.2022 15:18
Spartverjar á Íslandi Paramount birti í gærkvöldi mynd af Spartverjum á Íslandi og sagði að tökur á annari þáttaröð sjónvarpsþáttanna Halo, sem byggja á samnefndum tölvuleikjum, væru hafnar. Myndin sýnir fjóra Spartverja í fullum skrúða við Kvernufoss. 15.9.2022 14:24
„Kokkur Pútíns“ býður föngum frelsi fyrir herþjónustu í Úkraínu Myndband af rússneska auðjöfrinum Yevgeny Prigozhin bjóða föngum náðun fyrir að ganga til liðs við málaliðahópinn sem kallast Wagner Group var birt á netinu í gær. Þar má sjá auðjöfurinn segja föngunum að gangi þeir til liðs við Wagner muni þeir aldrei fara aftur í fangelsi. Annað hvort muni þeir deyja í Úkraínu eða vera lausir allra mála eftir sex mánuði. 15.9.2022 11:49
Hringdi eftir hjálp en var skotinn til bana af lögregluþjónum Foreldrar ungs mans frá Colorado í Bandaríkjunum krefjast þess að lögregluþjónar verði ákærðir fyrir að bana honum. Hinn 22 ára gamli Christian Glass var skotinn til bana í júní eftir að hann hringdi í neyðarlínuna og bað um hjálp eftir að hann festi bíl sinn. 15.9.2022 09:39
Stríð og spurningar hjá Babe Patrol Það verður nóg um að vera hjá stelpunum í Babe Patrol í kvöld. Auk þess að spila Warzone ætla þær einnig að halda spurningakeppni. 14.9.2022 20:30
Armenar leita eftir hjálp Yfirvöld í Armeníu segja her Aserbaísjan hafa hernumið hluta landsins í kjölfar umfangsmikilla og mannskæðra árása. Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, hefur biðlað til ráðamanna annarra ríkja sem voru áður á yfirráðasvæði Sovétríkjanna að tryggja fullveldi Armeníu. 14.9.2022 15:56
Selenskí í Izyum og Rússar sagðir í basli í suðri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Izyum í Kharkív-hérað í morgun en hersveitir Úkraínu ráku rússneska hermenn þaðan á dögunum í vel heppnaðri gagnsókn. Forsetinn sagði eyðilegginguna mikla en hann hefði séð sambærilega eyðileggingu áður í öðrum bæjum og þorpum sem búið væri að frelsa frá Rússum. 14.9.2022 14:41
Rændi eigin sparifé til að borga krabbameinsmeðferð systur sinnar Vopnuð kona og hópur aðgerðasinna brutust inn í banka í Beirút í Líbanon í morgun. Konan tók rúmlega þrettán þúsund dali úr bankanum, sem hún sagði vera sparifé sitt og systur sinnar og sagðist hún ætla að nota það til að borga fyrir krabbameinsmeðferð systur sinnar. 14.9.2022 11:46